Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 78
78 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 H ádegisleikhús Þjóðleik- hússins hóf göngu sína í Leikhúskjallaranum í haust og verða þar í vet- ur sýndir fjórir einþáttungar sem valdir voru úr um 250 innsendum verkum. Eftir heimsókn gulklædda parsins í verki Bjarna Jónssonar sem frumsýnt var í september var nú í nóvember komið að rauðklæddum konum. Má svo búast við græn- klæddu fólki í janúarsýningunni og loks bláu í mars til að binda saman liti regnbogans? Litaþemað hingað til hefur að minnsta kosti gefist mjög vel og sett skemmtilega og heildstæða áferð á hádegisleikhúsröðina. Í verki sínu Rauða kápan teflir Sól- veig Eir Stewart saman tveimur kon- um sinni af hvorri kynslóðinni, sem við fyrstu sýn eiga lítið sameiginlegt en ná óvæntri tengingu. Áður en leik- urinn hefst hafði sú eldri, Sigrún (Edda Björgvinsdóttir), stuttu áður í misgripum tekið með sér kápu þeirrar yngri, Unu (Snæfríður Ingvarsdóttir), enda kápur þeirra nákvæmlega eins hvað varðar lit og lögun – sem vekur áhugaverðar spurningar um það hvort og hvernig fötin endurspegla þann sem klæðist þeim. Konurnar hafa mælt sér mót á veitingahúsi til að skiptast á kápum og þar hefst leikurinn. Þó yfirbragð kvennanna og fatastíll sé um margt ólíkur vekur strax athygli að Eva Signý Berger klæðir þær í svart/ hvítar flíkur sem undirstrika það þjónustuhlutverk sem þær hafa báð- ar tekið sér í lífinu. Sá munur er þó á að Una getur að öllum líkindum lagt þjónsbúninginn á hilluna þegar heim- spekináminu lýkur, meðan Sigrún hefur augsýnilega átt erfiðara með að fóta sig í nýju hlutverki eftir að „þjón- ustuhlutverki“ hennar í 30 ára löngu hjónabandi lauk. Texti Sólveigar er lipur og fer vel í munni. Ýmislegt er látið ósagt, en skilst milli línanna. Rauða kápan veit- ir áhorfendum mun betri innsýn í persónu Sigrúnar en Unu, sem þjón- ar fremur því hlutverki að veita Sig- rúnu nauðsynlegan mótleik til að hún geti gert upp hluti úr fortíðinni og fengið nýja sýn á hlutina. Á aðeins tæpum hálftíma næst að draga upp einstaklega sterka mynd af konu sem telur sig eiga auðvelt með að sjá í gegnum annað fólk en hefur þó reynst ótrúlega glámskyggn á ýmislegt í lífinu. Styrkur sýningar- innar liggur ekki síst í frábærum leik Eddu Björgvinsdóttur sem hefur full- komið vald á tímasetningum við- bragða sinna, líkamstjáningunni, tón- falli raddarinnar, augngotum og þöglum leik þar sem lesa má tilfinn- ingar og hugsanir út úr andliti henn- ar. Það jafnast hreinlega á við masterklass í leik að fylgjast með Eddu fara á kostum á sviðinu. Hilmar Guðjónsson leikstýrir verk- inu og hefur gott auga fyrir sviðsetn- ingunni og dýnamík persóna. Líkt og í uppfærslunni Út að borða með Ester eftir Bjarna Jónsson sitja áhorfendur hringinn í kringum upp- hækkað leiksviðið og býðst að snæða gómsæta súpu sem innifalin er í miðaverðinu. Í báðum uppfærslum hafa leikstjórar og leikendur gert sitt besta til að hafa sviðsumferðina lipra og kvika þannig að áhorfendur þurfi ekki að horfa á hnakka sama leikara of lengi í senn. Engu að síður er með hringuppstillingunni alltaf ákveðin hætta á því að áhorfendur missi af lykilviðbrögðum persóna sitji þeir ekki réttum megin og því spurning hvort mögulega færi betur á því að leika aðeins á þrjár hliðar til að tryggja betri sjónlínur. Hádegisleikhúsið hefur farið ákaf- lega vel af stað og er vonandi komið til að vera sem kærkomin viðbót í leiklistarflóruna. Ekki spillir heldur fyrir hversu góður andi ríkir í Leik- húskjallaranum þar sem vel er tekið á móti leikhúsgestum með næringu fyrir bæði líkama og sál. Skapa fötin manninn? Frábær „Það jafnast hreinlega á við masterklass í leik að fylgjast með Eddu fara á kostum á sviðinu,“ segir í rýni. Þjóðleikhúsið Rauða kápan bbbbn Eftir Sólveigu Eiri Stewart. Leikstjórn: Hilmar Guðjónsson. Leikmynd og bún- ingar: Eva Signý Berger. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Leikarar: Edda Björg- vinsdóttir og Snæfríður Ingvarsdóttir. Frumsýning í Leikhúskjallara Þjóðleik- hússins miðvikudaginn 11. nóvember 2021, en rýnt í 3. sýningu á sama stað föstudaginn 19. nóvember 2021. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Hitt kynið nefn- ist myndlistar- sýning sem opn- uð var í síðustu viku á kaffihús- inu Mokka við Skólavörðustíg. Þar sýnir Katrín Matthíasdóttir verk sín og seg- ist hafa fengið titilinn að láni frá grundvallarriti femínískra fræða, Le Deuxième Sexe eftir Simone de Beauvoir. Hún segir sýninguna óð til kvenna, móður sinnar og allra kvenna og að ásjóna fáeinna þeirra sé fest á pappír. „Hvað hefur það í för með sér að vera kona í dag? Þið megið sko bara spá í það sjálf. Til dæmis hér og nú – eða á eftir – eða síðar,“ skrifar Katrín meðal annars í tilkynningu. Hitt kynið á Mokka Eitt verka Katrínar Steven Meyers hefur verið ráð- inn deildar- forseti kvik- myndadeildar Listaháskóla Íslands. Í til- kynningu segir að með ráðn- ingu hans sé brotið blað í sögu kvikmyndalistar á Íslandi sem nú verði í fyrsta sinn kennd á háskólastigi hér á landi. Steven lauk BA-gráðu í félagsfræði frá University of Michigan, diplómu í kvikmynda- gerð frá Academy of Film and Television (FAMU) í Prag og MFA í kvikmyndaleikstjórn frá Columbia University School of the Arts. Hann hefur starfað sem ráðgjafi hjá Kvikmynda- miðstöð Íslands frá árinu 2013 og hafði áður starfað við hand- ritsráðgjöf fyrir ýmsa kvik- myndaframleiðendur frá árinu 2007. Steven hefur auk þess leik- stýrt og skrifað handrit að fimm stuttmyndum sem hafa m.a. ver- ið sýndar á Palm Springs og á Clermong-Ferrand stutt- myndahátíðunum. Steven Meyers deildarforseti Steven Meyers Sigrún Inga Hrólfsdóttir hefur verið valin í rannsóknarstöðu innan Lista- safns Reykjavíkur sem hefur það markmið að rannsaka hlut kvenna í íslenskri listasögu, að því er fram kemur í tilkynningu frá safninu. „Tillaga Sigrúnar um rannsókn og sýningu sem byggir á list Hildar Há- konardóttur var valin úr þrettán fjölbreyttum umsóknum,“ segir í til- kynningu og að dómnefnd hafi talið viðfangsefni Sigrúnar líklegt til að hafa áhrif á sýn manna á hlut Hildar í samhengi íslenskrar listasögu. Hildur hafi á löngum ferli tekið á málefnum samtíma síns og nýtt til þess fjölbreytta miðla, þó mest vefn- að, fjallað um kynjapólitík og sam- félagsmál, verið virk í Rauðsokka- hreyfingunni og verið ein fárra kvenna í SÚM auk þess að hafa verið skólastjóri Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands frá 1975-78 og átt þannig þátt í mótun myndlist- armenntunar á Íslandi. Í tilkynningunni segir um Sigrúnu að hun sé starfandi myndlistar- maður og eigi að baki öflugan feril bæði undir eigin nafni og með Gjörningaklúbbnum. „Hún hefur staðið að útgáfum og birt greinar og fetar hér inn á frekari brautir fræði- mennsku. Sigrún lauk námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1996 og stundaði síðan framhalds- nám við Pratt Institute í New York. Sigrún lauk meistaraprófi í heim- speki frá Háskóla Íslands árið 2016. Hún var deildarforseti myndlistar- deildar Listaháskóla Íslands 2016 - 2021. Alls bárust 13 tillögur frá fjöl- breyttum hópi fræðimanna sem báru með sér að hér er á ferðinni viðfangsefni sem vert er að gefa gaum. Í valnefnd sátu Ólöf Kristín Sigurðardóttir safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Edda Halldórsdóttir listfræðingur við deild safneignar og rannsókna í safninu og Æsa Sigur- jónsdóttir dósent í listfræði við Háskóla Íslands,“ segir þar. Rann- sóknarstaðan er unnin í samstarfi við listfræði við Háskóla Íslands og hlaut hún öndvegisstyrk Safnaráðs til þriggja ára og verður auglýst aft- ur árið 2022. Rannsakar Sigrún I. Hrólfsdóttir. Sigrún Hrólfsdóttir í rannsóknarstöðu HEIMILI ENSKA BOLTANS Á VEFNUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.