Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Þessi leiðangur, sem við Arnar
Gunnarsson erum að fara í, gengur út
á að aðstoða vélhjólaframleiðandann
Royal Enfield,“ segir Jóhannes Guð-
mundsson, sem starfar á breyt-
ingaverkstæði og í ferðaþjónustu
jeppafyrirtækisins Arctic Trucks á
Íslandi, en þeir Arnar Gunnarsson,
samstarfsmaður hans og bifvélavirki,
eru staddir í Höfðaborg í Suður-
Afríku, sem er þó aðeins nánast byrj-
unarreiturinn í þeim leiðangri, sem
bíður þeirra næstu vikurnar, en Jó-
hannes og Arnar eru við sjötta mann
á leið í mörg þúsund kílómetra leið-
angur um Suðurskautslandið næstu
vikurnar.
Segja má að starfsfólk Arctic
Trucks hafi býsna marga fjöruna sop-
ið í leiðöngrum á borð við þennan, en
eins og fram kom í viðtali Við-
skiptaMoggans við Herjólf Guð-
mundsson, þáverandi fram-
kvæmdastjóra, í nóvember 2017 stóð
fyrirtækið að fyrsta leiðangrinum á
Suðurskautslandinu árið 1997 og hef-
ur nú verið þar með samfellda starf-
semi frá 2008, sem einkum tengist
vísindarannsóknum og ferða-
mennsku.
Átta dagar á Langjökli
Sem fyrr segir gengur leiðangur
Jóhannesar og Arnars út á aðstoð
við fjórmenninga frá Royal Enfield,
tvo vélhjólaökumenn og tvo kvik-
myndatökumenn. „Þetta eru upp-
haflega bresk hjól, en eru núna
framleidd á Indlandi. Mönnum hjá
fyrirtækinu datt í hug að það væri
sniðug hugmynd að aka vélhjóli til
Suðurpólsins. Þeir höfðu samband
við Arctic Trucks og vildu vita hvort
þetta væri hægt,“ segir Jóhannes
frá, í framhaldinu hafi fulltrúar Ro-
yal Enfield í tvígang komið til Ís-
lands til að reyna hjól sín og gera á
þeim breytingar með akstur í snjó í
huga.
„Við vorum með þá í samtals átta
daga uppi á Langjökli til að þjálfa
leiðangursmennina og velja rétt
dekk fyrir verkefnið,“ segir Jóhann-
es frá, en nú bíður þeirra leiðang-
ursmanna sex klukkustunda flug frá
Höfðaborg yfir til Suðurskauts-
landsins, sem er 14,2 milljónir fer-
kílómetra að flatarmáli, til sam-
anburðar eru Bandaríkin og Mexíkó
um 12 milljónir ferkílómetra til sam-
ans.
„Eftir sex tíma flug lendum við á
flugbraut sem Rússar reka sem heit-
ir Novo [rannsóknarstöðin Novolaz-
arevskaya sem Sovétmenn opnuðu
þar í janúar 1961], þar eru nokkrir
gámar, sem útbúnir eru sem svefn-
aðstaða og mötuneyti,“ segir Jó-
hannes og bætir því við að fyrsta
verk leiðangursins eftir komuna til
Novo verði að koma bifreiðum Arc-
tic Trucks þar á svæðinu í gang, sem
nú hafi staðið ónotaðar utandyra á
ísköldu heimskautinu í tvö ár.
„Það verður fjögurra til fimm
daga vinna, að hreinsa snjó úr vél-
arrýmum, koma þeim í gang og
sinna nauðsynlegum viðgerðum eft-
ir síðasta leiðangur. Svo leggjum við
í hann með 2.400 lítra af eldsneyti,
fullt af varahlutum og verkfærum
og tjöld og mat fyrir mánaðarlangan
leiðangur. Við verðum að þvera Suð-
urskautslandið áður en þeir byrja að
hjóla því þetta snýst um að fara frá
strönd upp á pól, sem er auðveldast
að gera frá Ross-íshellunni [um
500.000 ferkílómetra íshellu], þaðan
eru 680 kílómetrar upp á pól, en frá
Novo-stöðinni upp á pól eru 2.400
kílómetrar,“ útskýrir Jóhannes hið
ískalda jólaverkefni þeirra Arnars
árið 2021.
Fara í 3.500 metra hæð
Frá Ross-hellunni kveður hann leið-
angurinn njóta þeirrar samgöngu-
bótar að aka eftir beltaförum stórra
snjóbíla, er flytja vistir í pólstöð
Bandaríkjamanna. „Við verðum sem
sagt búnir að flytja hjólin 3.200 kíló-
metra leið áður en þeir byrja að hjóla,“
bendir Jóhannes á.
Hann kveður ferðalagið frá Novo-
stöðinni engan lautartúr. „Við förum
upp í 3.500 metra hæð, en loftið er
þynnra á suðurhvelinu en víða annars
staðar svo í raun er hægt að bæta 500
metrum við hæðina vegna þess. Bíl-
arnir finna fyrir súrefnisskortinum
engu síður en við og missa afl í hæð-
inni og meðan við erum að aðlagast
þessu ástandi þurfum við að fara okk-
ur hægt, þegar við tjöldum eða sinn-
um bílunum gerum við það mjög ró-
lega,“ segir Jóhannes.
Vita hverju við er að búast
Leiðangurinn lækki sig svo aftur
niður í 2.800 metra, en í þeirri hæð
er sjálfur Suðurpóllinn. Þegar þang-
að komi verði allt orðið mun auð-
veldara að sögn Jóhannesar þar sem
mannskapurinn verði kominn með
hæðaraðlögun. „Ferðalagið upp á
pól ætti að taka sjö til tíu daga ef við
lendum ekki í miklu brasi á leiðinni
með veður eða bílana, við vitum að
það verður alltaf eitthvað um bilanir
á leiðinni og reynum að vera með
alla helstu varahluti, Arctic Trucks
hefur verið með leiðangra á suð-
urskautið síðan 2008 og það er kom-
in mjög góð reynsla á Hilux-bílana
og menn vita svona nokkurn veginn
hverju við er að búast á leiðinni.“
Jóhannes segir hitastigið geta
farið niður í 50 mínusgráður á leið-
inni, sem fari þó upp á við aftur er
nær dregur pólnum og enn meir
þegar Ross-íshellunni er náð. „Þá
hefst það sem er tilgangur ferð-
arinnar og hjólið er tekið niður.
Hjólamennirnir frá Royal Enfield
skiptast á að keyra, en við erum
samt með tvö hjól með okkur, annað
til vara ef hitt skyldi bila,“ segir
hann frá og kveður þennan legg far-
arinnar taka fjóra til sex daga og
muni myndatökumennirnir þá taka
upp efni sem verður uppistaðan í
heimildarmynd um ferðina.
Jól fjarri heimahögum
Þegar Suðurpólnum verði náð fari
hjólið upp á bíl á nýjan leik og ekið
verði sem leið liggur niður í Union
Glacier-búðirnar á Ellsworth Land
þaðan sem flogið verði til Punta
Arenas í Chile við lok þessa metn-
aðarfulla verkefnis og þá komið nýtt
ár. Hvernig tilfinning skyldi það
vera að verja jólunum nánast eins
fjarri fjölskyldunni á Íslandi og
komist verður án þess að hreinlega
yfirgefa plánetuna?
„Ég er að fara í sjötta skiptið og
þetta verður í fimmta skiptið sem ég
er yfir jól og áramót þarna úti. Arn-
ar er að fara í fyrsta skiptið og þetta
er örugglega pínu erfitt fyrir hann,
nýkvæntan manninn, þau giftu sig
um daginn uppi á Langjökli og eiga
lítinn dreng, sem er nýlega orðinn
ársgamall,“ svarar Jóhannes,
greinilega ýmsu vanur sjálfur, en
finnur til með vinnufélaga sínum.
„Auðvitað er erfitt að vera svona
lengi í burtu frá fjölskyldunni, við
erum oftast kringum þrjá mánuði í
burtu, en núna eru þetta vonandi
bara um sjö vikur,“ segir Jóhannes
og ekki örgrannt um að mörgum
þætti slíkur tími væntanlega alveg
nógu langur. Hann segir verkefni
Arctic Trucks af ýmsum toga, eitt
sinn hafi þeir farið með Massey
Ferguson-dráttarvél á Suðurpólinn
og til baka vegna auglýsingagerðar
og hafi undirbúningur þeirrar farar
tekið tvö ár við breytingar á öku-
tækinu auk þess sem farið hafi verið
tvisvar á Langjökul og svo í loka-
prufu á Vatnajökul þar sem ekið var
allan sólarhringinn til að líkja eftir
því sem í vændum var.
Verkefnin af ýmsum toga
„Við höfum farið með vís-
indamenn í leiðangra, farið inn að
miðju Suðurskautslandsins til að út-
búa þar flugbraut fyrir vélar, sem
lenda þar á skíðum, fylgt göngu-
skíðahópum í pólferðir auk efnaðra
ferðamanna, sem sækjast eftir að
komast í erfiða leiðangra,“ nefnir
Jóhannes sem dæmi af verkefnum á
Suðurskautslandinu síðustu árin.
Leiðangursmenn sofi í tjöldum og
vélar bifreiðanna séu látnar ganga
allan sólarhringinn, jafnvel í sjö
vikna leiðangri, en þá var aðeins
drepið á vélunum þegar skipta
þurfti um olíu. „Ef einhverra hluta
vegna er drepið á bíl í lengri tíma í
þessu frosti þarf að setja tjaldhimin
yfir hann til að hita hann upp, Arctic
Trucks notar Langjökul og Vatna-
jökul sem þjálfunarumhverfi fyrir
Suðurpólinn,“ segir Jóhannes af
krefjandi verkefnum í fimbulkulda
óraveg frá heimaslóðum.
Undir lokin er ekki stætt á öðru
en að forvitnast um forláta KR-fána,
sem Jóhannes hefur jafnan með sér
í pólfarir sínar og flaggar í hinni
fjarlægu heimsálfu. Hvernig stend-
ur á þessu?
„Ég er fæddur og uppalinn í Vest-
urbænum og mig hafði lengi langað
að komast á Suðurpólinn. Þegar ég
sá að það væri að verða að veruleika
var það fyrsta sem mér datt í hug að
flagga KR-fánanum á pólnum,“ út-
skýrir Jóhannes. „Ég hef leitað að
fánum á pólnum frá öðrum minni fé-
lagsliðum, svo sem Liverpool eða
Barcelona, en ekkert fundið,“ segir
Jóhannes Guðmundsson frá Arctic
Trucks að lokum og dylur ekki
ísmeygilega gamansemi lokaorða
sinna í samtali við Morgunblaðið á
síðustu metrunum fyrir pólför
þeirra Arnars Gunnarssonar og
föruneytis þeirra.
Nýgift Arnar og Brynja gengu í það heilaga á Langjökli eins og sönnu útivistarfólki sæmir. KR-ingurinn Jóhannes kirfilega merktur sínu liði, KR-fáninn er einnig jafnan með í ferðum hans á pólinn.
Í mínus 50 gráðum um jólin
- Á leið á Suðurpólinn með vélhjólamenn - Sofa í tjöldum í brunagaddi - Aldrei drepið á bílvél-
unum - Æfa á íslenskum jöklum fyrir pólferðirnar - KR-fáninn alltaf í farteskinu á hjara veraldar
Suðurskautið Leiðangrar Arctic Trucks-manna um ísauðnir krefjast vandlegs undirbúnings sem hæglega getur
orðið áralangur, svo sem þegar æft var í tvö ár fyrir ferð með Ferguson-dráttarvél á Suðurpólinn á dögunum.