Morgunblaðið - 26.11.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 26.11.2021, Síða 28
28 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Þessi leiðangur, sem við Arnar Gunnarsson erum að fara í, gengur út á að aðstoða vélhjólaframleiðandann Royal Enfield,“ segir Jóhannes Guð- mundsson, sem starfar á breyt- ingaverkstæði og í ferðaþjónustu jeppafyrirtækisins Arctic Trucks á Íslandi, en þeir Arnar Gunnarsson, samstarfsmaður hans og bifvélavirki, eru staddir í Höfðaborg í Suður- Afríku, sem er þó aðeins nánast byrj- unarreiturinn í þeim leiðangri, sem bíður þeirra næstu vikurnar, en Jó- hannes og Arnar eru við sjötta mann á leið í mörg þúsund kílómetra leið- angur um Suðurskautslandið næstu vikurnar. Segja má að starfsfólk Arctic Trucks hafi býsna marga fjöruna sop- ið í leiðöngrum á borð við þennan, en eins og fram kom í viðtali Við- skiptaMoggans við Herjólf Guð- mundsson, þáverandi fram- kvæmdastjóra, í nóvember 2017 stóð fyrirtækið að fyrsta leiðangrinum á Suðurskautslandinu árið 1997 og hef- ur nú verið þar með samfellda starf- semi frá 2008, sem einkum tengist vísindarannsóknum og ferða- mennsku. Átta dagar á Langjökli Sem fyrr segir gengur leiðangur Jóhannesar og Arnars út á aðstoð við fjórmenninga frá Royal Enfield, tvo vélhjólaökumenn og tvo kvik- myndatökumenn. „Þetta eru upp- haflega bresk hjól, en eru núna framleidd á Indlandi. Mönnum hjá fyrirtækinu datt í hug að það væri sniðug hugmynd að aka vélhjóli til Suðurpólsins. Þeir höfðu samband við Arctic Trucks og vildu vita hvort þetta væri hægt,“ segir Jóhannes frá, í framhaldinu hafi fulltrúar Ro- yal Enfield í tvígang komið til Ís- lands til að reyna hjól sín og gera á þeim breytingar með akstur í snjó í huga. „Við vorum með þá í samtals átta daga uppi á Langjökli til að þjálfa leiðangursmennina og velja rétt dekk fyrir verkefnið,“ segir Jóhann- es frá, en nú bíður þeirra leiðang- ursmanna sex klukkustunda flug frá Höfðaborg yfir til Suðurskauts- landsins, sem er 14,2 milljónir fer- kílómetra að flatarmáli, til sam- anburðar eru Bandaríkin og Mexíkó um 12 milljónir ferkílómetra til sam- ans. „Eftir sex tíma flug lendum við á flugbraut sem Rússar reka sem heit- ir Novo [rannsóknarstöðin Novolaz- arevskaya sem Sovétmenn opnuðu þar í janúar 1961], þar eru nokkrir gámar, sem útbúnir eru sem svefn- aðstaða og mötuneyti,“ segir Jó- hannes og bætir því við að fyrsta verk leiðangursins eftir komuna til Novo verði að koma bifreiðum Arc- tic Trucks þar á svæðinu í gang, sem nú hafi staðið ónotaðar utandyra á ísköldu heimskautinu í tvö ár. „Það verður fjögurra til fimm daga vinna, að hreinsa snjó úr vél- arrýmum, koma þeim í gang og sinna nauðsynlegum viðgerðum eft- ir síðasta leiðangur. Svo leggjum við í hann með 2.400 lítra af eldsneyti, fullt af varahlutum og verkfærum og tjöld og mat fyrir mánaðarlangan leiðangur. Við verðum að þvera Suð- urskautslandið áður en þeir byrja að hjóla því þetta snýst um að fara frá strönd upp á pól, sem er auðveldast að gera frá Ross-íshellunni [um 500.000 ferkílómetra íshellu], þaðan eru 680 kílómetrar upp á pól, en frá Novo-stöðinni upp á pól eru 2.400 kílómetrar,“ útskýrir Jóhannes hið ískalda jólaverkefni þeirra Arnars árið 2021. Fara í 3.500 metra hæð Frá Ross-hellunni kveður hann leið- angurinn njóta þeirrar samgöngu- bótar að aka eftir beltaförum stórra snjóbíla, er flytja vistir í pólstöð Bandaríkjamanna. „Við verðum sem sagt búnir að flytja hjólin 3.200 kíló- metra leið áður en þeir byrja að hjóla,“ bendir Jóhannes á. Hann kveður ferðalagið frá Novo- stöðinni engan lautartúr. „Við förum upp í 3.500 metra hæð, en loftið er þynnra á suðurhvelinu en víða annars staðar svo í raun er hægt að bæta 500 metrum við hæðina vegna þess. Bíl- arnir finna fyrir súrefnisskortinum engu síður en við og missa afl í hæð- inni og meðan við erum að aðlagast þessu ástandi þurfum við að fara okk- ur hægt, þegar við tjöldum eða sinn- um bílunum gerum við það mjög ró- lega,“ segir Jóhannes. Vita hverju við er að búast Leiðangurinn lækki sig svo aftur niður í 2.800 metra, en í þeirri hæð er sjálfur Suðurpóllinn. Þegar þang- að komi verði allt orðið mun auð- veldara að sögn Jóhannesar þar sem mannskapurinn verði kominn með hæðaraðlögun. „Ferðalagið upp á pól ætti að taka sjö til tíu daga ef við lendum ekki í miklu brasi á leiðinni með veður eða bílana, við vitum að það verður alltaf eitthvað um bilanir á leiðinni og reynum að vera með alla helstu varahluti, Arctic Trucks hefur verið með leiðangra á suð- urskautið síðan 2008 og það er kom- in mjög góð reynsla á Hilux-bílana og menn vita svona nokkurn veginn hverju við er að búast á leiðinni.“ Jóhannes segir hitastigið geta farið niður í 50 mínusgráður á leið- inni, sem fari þó upp á við aftur er nær dregur pólnum og enn meir þegar Ross-íshellunni er náð. „Þá hefst það sem er tilgangur ferð- arinnar og hjólið er tekið niður. Hjólamennirnir frá Royal Enfield skiptast á að keyra, en við erum samt með tvö hjól með okkur, annað til vara ef hitt skyldi bila,“ segir hann frá og kveður þennan legg far- arinnar taka fjóra til sex daga og muni myndatökumennirnir þá taka upp efni sem verður uppistaðan í heimildarmynd um ferðina. Jól fjarri heimahögum Þegar Suðurpólnum verði náð fari hjólið upp á bíl á nýjan leik og ekið verði sem leið liggur niður í Union Glacier-búðirnar á Ellsworth Land þaðan sem flogið verði til Punta Arenas í Chile við lok þessa metn- aðarfulla verkefnis og þá komið nýtt ár. Hvernig tilfinning skyldi það vera að verja jólunum nánast eins fjarri fjölskyldunni á Íslandi og komist verður án þess að hreinlega yfirgefa plánetuna? „Ég er að fara í sjötta skiptið og þetta verður í fimmta skiptið sem ég er yfir jól og áramót þarna úti. Arn- ar er að fara í fyrsta skiptið og þetta er örugglega pínu erfitt fyrir hann, nýkvæntan manninn, þau giftu sig um daginn uppi á Langjökli og eiga lítinn dreng, sem er nýlega orðinn ársgamall,“ svarar Jóhannes, greinilega ýmsu vanur sjálfur, en finnur til með vinnufélaga sínum. „Auðvitað er erfitt að vera svona lengi í burtu frá fjölskyldunni, við erum oftast kringum þrjá mánuði í burtu, en núna eru þetta vonandi bara um sjö vikur,“ segir Jóhannes og ekki örgrannt um að mörgum þætti slíkur tími væntanlega alveg nógu langur. Hann segir verkefni Arctic Trucks af ýmsum toga, eitt sinn hafi þeir farið með Massey Ferguson-dráttarvél á Suðurpólinn og til baka vegna auglýsingagerðar og hafi undirbúningur þeirrar farar tekið tvö ár við breytingar á öku- tækinu auk þess sem farið hafi verið tvisvar á Langjökul og svo í loka- prufu á Vatnajökul þar sem ekið var allan sólarhringinn til að líkja eftir því sem í vændum var. Verkefnin af ýmsum toga „Við höfum farið með vís- indamenn í leiðangra, farið inn að miðju Suðurskautslandsins til að út- búa þar flugbraut fyrir vélar, sem lenda þar á skíðum, fylgt göngu- skíðahópum í pólferðir auk efnaðra ferðamanna, sem sækjast eftir að komast í erfiða leiðangra,“ nefnir Jóhannes sem dæmi af verkefnum á Suðurskautslandinu síðustu árin. Leiðangursmenn sofi í tjöldum og vélar bifreiðanna séu látnar ganga allan sólarhringinn, jafnvel í sjö vikna leiðangri, en þá var aðeins drepið á vélunum þegar skipta þurfti um olíu. „Ef einhverra hluta vegna er drepið á bíl í lengri tíma í þessu frosti þarf að setja tjaldhimin yfir hann til að hita hann upp, Arctic Trucks notar Langjökul og Vatna- jökul sem þjálfunarumhverfi fyrir Suðurpólinn,“ segir Jóhannes af krefjandi verkefnum í fimbulkulda óraveg frá heimaslóðum. Undir lokin er ekki stætt á öðru en að forvitnast um forláta KR-fána, sem Jóhannes hefur jafnan með sér í pólfarir sínar og flaggar í hinni fjarlægu heimsálfu. Hvernig stend- ur á þessu? „Ég er fæddur og uppalinn í Vest- urbænum og mig hafði lengi langað að komast á Suðurpólinn. Þegar ég sá að það væri að verða að veruleika var það fyrsta sem mér datt í hug að flagga KR-fánanum á pólnum,“ út- skýrir Jóhannes. „Ég hef leitað að fánum á pólnum frá öðrum minni fé- lagsliðum, svo sem Liverpool eða Barcelona, en ekkert fundið,“ segir Jóhannes Guðmundsson frá Arctic Trucks að lokum og dylur ekki ísmeygilega gamansemi lokaorða sinna í samtali við Morgunblaðið á síðustu metrunum fyrir pólför þeirra Arnars Gunnarssonar og föruneytis þeirra. Nýgift Arnar og Brynja gengu í það heilaga á Langjökli eins og sönnu útivistarfólki sæmir. KR-ingurinn Jóhannes kirfilega merktur sínu liði, KR-fáninn er einnig jafnan með í ferðum hans á pólinn. Í mínus 50 gráðum um jólin - Á leið á Suðurpólinn með vélhjólamenn - Sofa í tjöldum í brunagaddi - Aldrei drepið á bílvél- unum - Æfa á íslenskum jöklum fyrir pólferðirnar - KR-fáninn alltaf í farteskinu á hjara veraldar Suðurskautið Leiðangrar Arctic Trucks-manna um ísauðnir krefjast vandlegs undirbúnings sem hæglega getur orðið áralangur, svo sem þegar æft var í tvö ár fyrir ferð með Ferguson-dráttarvél á Suðurpólinn á dögunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.