Morgunblaðið - 26.11.2021, Side 30

Morgunblaðið - 26.11.2021, Side 30
30 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 uð um 1570, en í jarðabók sem var gerð 1638-39 er dýrleika jarða getið í fyrsta skipti, konungsbréf sem léns- menn lásu yfirleitt upp á Alþingi, þar sem fram komu fyrirskipanir kon- ungs um ýmis málefni, dómabækur, máldagabækur yfir eignir kirkj- unnar, skjöl klaustranna og afrit þeirra, ýmiss konar reikningar og skjöl sem varða fjárhagsmálefni,“ segir Kristjana. Hún telur að eitt ein- tak af 13. aldar lögbókinni Jónsbók, að minnsta kosti, hafi legið á Bessa- stöðum og segir að það séu varðveitt ekki færri en 33 eintök af bókinni á dönsku. Erindrekar konungs töldu sig augljóslega þurfa að kynna sér vel hinn forna rétt á Íslandi. Reikningar varpa ljósi á söguna „Þessi skjöl öll auk lénsreikning- anna varpa ljósi á söguna og þá eru lénsreikningarnir áhugaverðir,“ seg- ir Kristjana. „Ég skrifa upp tvo þeirra, einn frá 1590-91 þegar Ísland var svokallað afgjaldslén og annan frá 1647-48 og þá var landið svokallað reikningslén. Sá reikningur er ít- arlegri en þessi eldri. Reikningarnir eru yfirlit yfir rekstur lénsins í heild og sýna vel tekjur konungs af Gull- bringusýslu, umboðsjörðum og klaustrajörðum og hverjir bæirnir eru. Þeir sýna sérstaklega rekstur Gullbringusýslu, og búanna á Bessa- stöðum, Viðeyjar og stundum Arn- arstapa, t.d. mannslán, sýslugjalds- menn, formenn konungs á skipum og þannig upplýsingar um konungs- útgerðina, laun vinnufólks, fæði, tekjur af sakeyri, innistæðuskrá og svo mætti lengi telja.“ Nýtist öðrum fræðimönnum Kristjana segir að rannsókn henn- ar geti nýst öðrum fræðimönnum. „Skjalaskráin yfir skjöl lénsmanns á Bessastöðum, sem fylgir bókinni, er leiðarvísir fyrir aðra og í henni er einnig getið annarra skjala sem varð- veitt eru og varpa líka ljósi á söguna. Og svo, eins og ég nefndi, skrifaði ég upp tvo reikninga sem ég vona að veki áhuga annarra á að skoða fleiri. Skriftin virkar kannski í upphafi ekki aðgengileg en það eru til leiðbein- ingar og ef menn nenna er þetta ekki neitt sérstakleg flókið,“ segir hún. Sú spurning vaknar hvort lénið Ís- land hafi haft verulega þýðingu fyrir fjárhag Danakonungs og veldis hans á 16. og 17. öld. Kristjana er ekki viss um það. Ísland hafi verið meðallén að umfangi í lénsveldi konungs, sum lén hans hafi verið stærri og önnur minni. „Tekjur konungs af landinu voru 3.200 ríkisdalir fastir þegar lén- ið var afgjaldslén. Þá tóku lénsmenn landið á leigu og borguðu þessa upp- hæð en hvað þeir fengu í sinn vasa er óljósara, t.d. tekjur af búunum, tíund og fleira. Tekjurnar voru meiri, um 6 til 7 þúsund ríkisdalir, þegar landið var reikningslén. En þá fékk fulltrúi konungs kaup og skilaði öllu öðru til konungs. Eitt lítið herskip sem var byggt kringum 1639 kostaði t.d. um 6.000 ríkisdali,“ segir Kristjana. Ísland ekkert öðruvísi lén Var einhver munur á stjórnsýslu Danakonungs á Íslandi og framkomu lénsmanna hans við landsmenn hér og annars staðar í ríkinu? „Ég geri ráð fyrir að hún hafi verið mjög svip- uð,“ segir Kristjana. „Ísland var ekk- ert öðruvísi en önnur lén konungs. Lénsmennirnir voru einkum að- alsmenn, flestir danskir en líka norskir og þýskir. Þeir skiptu um lén, fóru í önnur lén og þá ekkert endi- lega stærri eða betri en Ísland.“ Í bókinni rekur Kristjana dæmi um spillingu, m.a. mútuþægni léns- mannanna, sem hér voru. Hún kveðst telja að slíkt hafi einnig við- gengist í öðrum lénum konungs og að Ísland hafi ekki haft sérstöðu að þessu leyti. Ný sýn á sögu 16. og 17. aldar - Í ritinu Lénið Ísland birtir Kristjana Kristinsdóttir lektor niðurstöður rannsókna sinna á skjölum fulltrúa Danakonungs hér á landi - Náma upplýsinga um samfélagið á Íslandi fyrir 400 til 500 árum Morgunblaðið/Eggert Sagnfræði Dr. Kristjana Kristinsdóttir, lektor og skjalavörður, með eina af skjalabókum lénsmanna konungs á Bessastöðum. Frumheimildir um störf þeirra hafa um margar aldir verið sundraðar í söfnum hér og í Danmörku og ekki fyrr en nú að þær eru skoðaðar út frá uppruna og samhengi. Lénið Ísland Doktorsrit Kristjönu er nær 700 síður að lengd. SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Óhætt er að segja að nýútkomið rit Kristjönu Kristinsdóttur Lénið Ís- land sætir tíðindum í íslenskri sagn- fræði. Þetta er stórvirki, byggt á margra ára rannsóknum hennar á svonefndum lénsreikningum frá 16. og 17. öld og öðrum gögnum úr skjalasafni lénsmanna Danakonungs á Bessastöðum. Að stofni til er um að ræða doktorsritgerð sem hún varði við Háskóla Íslands í janúar á þessu ári. Kristjana er menntuð í sagnfræði og skjalfræði og starfar sem lektor í skjalfræði við Háskólann og er jafn- framt sérfræðingur við Þjóð- skjalasafnið. „Tildrög verksins eru að ég fór að skoða lénsreikninga frá árunum 1588 til 1662 sem eru varðveittir á Þjóð- skjalasafni. Skriftin á þeim er kannski ekki mjög auðveld en ég hafði áhuga á sögu 16. og 17. aldar og þá eiginlega á stjórnsýslusögu og tengslum hennar við myndun skjala og þá skjalasafna,“ segir Kristjana. Hún segir að þetta tímabil hafi ekki verið mikið rannsakað en hún vonist til þess að starf sitt auðveldi öðrum að skoða þennan tíma frekar. Stjórnsýsla og lénsreikningar Í ritinu er fjallað um þróun stjórn- sýslu á Íslandi og verkefni léns- manna konungs á tímabilinu, um innihald lénsreikninga og endur- skoðun þeirra hjá embættismönnum konungs í Kaupmannahöfn, og myndun skjalasafns Bessastaða. „Mín leið til að skoða þetta efni var að spyrja: Hverjir voru lénsmenn á Íslandi? Hvað felst í heimildinni léns- reikningur? Hvernig mótast og þróast stjónrsýsla konungs? Hvaða skjöl urðu til á þessu tímabili við stjórn og rekstur lénsins Ísland?“ segir Kristjana. Skjölin sem urðu til við störf léns- manna á Íslandi eru helst jarðabæk- ur yfir jarðir konungs, sú elsta skrif- BLACK/CYBER HELGI 26.-29.11 SPORTÍS SPORTIS.IS // SKEIFAN 11 // 108 RVK //S.520-1000 ALLT AÐ 40% AFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.