Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 36
36 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 VARNARMÁL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Það er helst þróun nýrrar tækni sem nú ógnar Norður-Ameríku, tækni sem var ekki til fyrir um 20- 30 árum,“ segir dr. James Fergu- son, prófessor í stjórnmálafræði við Manitoba-háskóla, en hann flutti á miðvikudaginn erindi á vegum Varðbergs og Alþjóðamálastofn- unar HÍ um varnir og öryggi á norðurslóðum. Ferguson er frá Kanada, en hann er sérfræðingur um varnir Norður- Ameríkuríkjanna, og þá sérstaklega NORAD-loftvarnarkerfisins, sem Bandaríkin og Kanada standa sam- eiginlega að. Hann segir að einkum Rússar, en einnig Kínverjar, séu nú að tileinka sér hina nýju tækni, sem felur meðal annars í sér langdrægar stýriflaugar, ofurhljóðfráar eld- flaugar og jafnvel kjarnaknúnar stýriflaugar, sem myndu gefa þeim mjög langt drægi, en um leið skap- ist þörf á að endurhugsa varnir Norður-Ameríku og fælingarmátt- inn af þeim. Ógnirnar eru aðrar í dag Ferguson segir að ógnin af hinni nýju tækni sé nú þegar orðin yfir- þyrmandi fyrir varnir vestrænna ríkja. „Við höfum ekki fjárfest í vörnum síðan kalda stríðinu lauk, því við höfum ekki þurft að fjár- festa. Varnirnar yrðu brotnar á bak aftur. Við eigum við vanda að stríða í að finna ógnirnar með ratsjá, rat- sjárlínurnar eru úreltar og úr sér gengnar.“ Ferguson bætir við að það hafi fyrst og fremst verið ógn frá lang- drægum sprengjuflugvélum gagn- vart Norður-Ameríku, sem myndu þá fljúga beint yfir norðurslóðir. Núna nái svæðið sem þurfi að vakta hins vegar niður Kyrrahafsströnd- ina og svo norðvesturleiðina um Atl- antshafið. „Og þessar leiðir, og þá sérstaklega svæðið sem Grænland og Ísland eru á, hafa verið utan vé- banda NORAD, og það þarf að breytast.“ Aðspurður hver staðan sé nú með tilliti til Íslands segir Ferguson að innan Atlantshafsbandalagsins og þá um leið í Kanada og Bandaríkj- unum sé GIUK-hliðið svonefnda ennþá mikilvægt, en að mikilvægi þess hafi breyst frá tímum kalda stríðsins. „Þá skipti það máli til að verja liðsflutninga á Atlantshafi frá Ameríku til Evrópu ef til stríðs kæmi, sem var hluti af fælingar- mætti bandalagsins, en það hefur breyst.“ Ferguson segir að NORAD þurfi að breytast með og víkka sjón- deildarhringinn. Ferguson segir að hann telji að vestanhafs þurfi að endurskoða þá afstöðu manna að Grænland og Ís- land tilheyri Evrópu þegar komi að varnarmálum. Vandinn við það sé sá að nú sé hægt að skjóta vopnum að Norður-Ameríku sem fari framhjá austurströnd Grænlands, án þess að hægt sé að fylgjast með þeim og koma í veg fyrir að þeim verði beitt. Þegar komi að Íslandi þýði hin nýja tækni að ekki sé lengur nóg að fylgjast með sprengjuvélum sem beri stýriflaugar, heldur sé nú þörf á að fylgjast með stýriflaugunum sjálfum, sem séu mun minni. „Og það kallar á nýjar ráðstafanir fyrir Ísland, á sama tíma og það kallar á að NORAD og Norður-Ameríkurík- in horfi meira til austurs á sama tíma og Grænland og Ísland ættu að horfa meira til vesturs í varnar- málum.“ Erum lík Kanadamönnum Ferguson bendir á að bandarísk- ar herstöðvar hafi verið í báðum löndum, en að mögulega gætu kom- ið upp pólitísk vandamál við að hefja aftur á ný viðbúnað á borð við þann sem var í kalda stríðinu. „Það sem slær mig við Ísland er að þið eruð mjög lík Kanadamönnum. Þar er minnihluti, um 15-20%, sem and- mælir öllu sem Bandaríkjamenn gera, bara af því að það eru þeir. Svo eru langflestir sem hafa blendnar tilfinningar, en svo eru þeir sem telja að náið samband sé landinu fyrir bestu í varnarmálum.“ Ferguson bætir við að stóra spurningin sé hvort það samband eigi að vera við Atlantshafsbanda- lagið eða Bandaríkin, og að bæði á Íslandi og í Kanada sé tilhneiging í opinberri umræðu að setja fram hluti sem snerti í raun tvíhliða varn- arsamskipti ríkjanna við Bandaríkin sem mál Atlantshafsbandalagsins. „Hinn punkturinn sem ég myndi leggja áherslu á, er að hvort sem ykkur líkar betur eða verr, þá er Ís- land mjög mikilvægt geóstragetískt svæði,“ segir Ferguson. „Þið viljið kannski vera hlutlaus eða halda ykkur utan átaka, og í því svipar ykkur einnig til Kanadamanna. Því miður fáið þið ekki það val. Þið verðið alltaf skotmark út af stað- setningu ykkar. Þá vaknar spurn- ingin, hvernig getið þið best tryggt öryggi ykkar, og ég tel svarið vera í nánara sambandi við Norður- Ameríku, sem stefnusmiðir á Ís- landi ættu nú þegar að vera að hug- leiða.“ Þarf að ýta ógninni norðar Ferguson segir að markmiðið í Norður-Ameríku sé að tryggja fæl- ingarmáttinn gagnvart aðallega Rússum, en einnig síðar meir Kín- verjum. Til þess þurfi að ýta ógn- inni sem lengst frá ströndum álf- unnar. „Fyrsta skrefið að því á margan hátt er að tryggja að á Ís- landi séu ratsjárstöðvar og búnaður til að styðja við aðgerðir hersveita á norðurslóðum, ef til krísuástands kæmi,“ segir Ferguson. Ferguson segir að með því megi bæði fæla Rússa áður en til slíkrar krísu kæmi, og einnig ýta sömu ógn eins langt norður í burtu frá Íslandi og mögulegt er. „Því ef þið hugsið ekki um mikilvægi Íslands og þá þörf, þá verður landið að víglínunni [ef til átaka kemur] og Rússar og Bandaríkjamenn munu berjast um ykkur.“ Ættum að horfa meira til vesturs - Dr. James Ferguson segir nýja tækniþróun kalla á að Bandaríkin og Kanada horfi til Grænlands og Íslands í varnarmálum - Íslendingar þurfi einnig að huga að nánara varnarsamstarfi til vesturs Morgunblaðið/Unnur Karen Varnarmál Dr. James Ferguson segir nýja tækni í vopnabúnaði kalla á breytt viðbrögð ríkja Norður-Ameríku í varnarviðbúnaði sínum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.