Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 68
68 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
2012
2021
HJÁ OKKUR FÁST
VARAHLUTIR
Í AMERÍSKA BÍLA
st’ al og
Stál og stansar
60 ÁRA Bernd fæddist ná-
lægt Köln í Þýskalandi og ólst
þar upp og gekk í skóla fyrir
hæfileikarík börn í tónlist. „Ég
hafði alltaf mikinn áhuga á
brúðuleikhúsi, en tónlistin var
alltaf í fyrsta sæti.“ Snemma
fékk Bernd mikinn áhuga á að
ferðast um heiminn og hann
kom til Íslands árið 1982 á leið
sinni til Alaska, þangað sem
hann ætlaði að flytjast búferl-
um. „En ég kom aftur til Íslands því náttúra landsins og menningin heillaði mig
og ég get ekki ímyndað mér að búa annars staðar í dag.“ Á Íslandi ákvað Bernd
að einbeita sér að brúðuleikhúsinu því þar sameinast svo margt í listinni sem
hann hann hefur áhuga á. „Þetta er mín leið til að tjá mig og mitt framlag til
samfélagsins. Ég tel mig ákaflega heppinn mann að hafa uppfyllt æskudraum
minn og geta ferðast um allan heiminn.“ Bernd segir það mikil forréttindi að
geta kynnst mismunandi menningarheimum í starfinu. „Stærsta gjöfin er von-
in, því ég finn í gegnum störf mín með mismunandi þjóðum að við getum gert
svo óskaplega margt ef við viljum. Brúðuleikhúsið er tungumál og myndmál
sem allir geta skilið með sínum hætti. Við höfum verið að ferðast með sýningu
sem heitir Umbreyting, sem er verk án orða og því kjörið til sýninga á alþjóð-
legum vettvangi. Ég finn það líka svo vel að þótt við lítum öðruvísi út eða búum
við mismunandi menningu, þá erum við öll svo lík innst inni. Við erum öll að
leita að kærleikanum.“ Þegar sýningarhald féll niður í Covid ákvað Bernd að
byrja á verkefni sem hann hafði haft í huga lengi. „Ég hef verið að kenna net-
námskeiðið The Art of the Wooden Puppet og þar er ég með nemendur frá yfir
100 löndum og er kominn með 5 manns í vinnu.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Bernds er Hildur Magnea Jónsdóttir heilsuráð-
gjafi, f. 17.7. 1967. Börn þeirra eru: Elín Auðbjörg Pétursdóttir, f. 9.5. 1988,
Ronja Elín Ogrodnik, f. 27.8. 1990, Viggó Pétur Pétursson, f. 29.9. 1991, og Be-
orn Marvin Ogrodnik, f. 2.12. 1993. Barnabörnin þrjú eru: Alba Aríana Matt-
hews, f. 12.7. 2017, Emilía Sól Elínardóttir, f. 10.12. 2019, og Eldon Björn
Viggósson, f. 23.3. 2021. Foreldrar Bernd eru Johann Wilhelm Ogrodnik, f. 2.9.
1924, d. 17.8. 2017, og Margret Ogrodnik, f. 17.9. 1927, d. 11.11. 2019. Bræður:
Ulrich Ogrodnik, f. 1.1. 1956, og Jürgen Ogrodnik, f. 23.3. 1959.
Bernd Ogrodnik
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Einhverjir draugar úr fortíðinni eru
að gera þér lífið leitt. Hafðu það hugfast,
þegar þú hjálpar fólki, að sá sem er í sanni
örlátur, gefur fólki það sem það þarfnast.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú virðist hafa talað einhvers staðar
af þér og verður því að taka afleiðingum
orða þinna. Sumt er bara svona og við því
er ekkert að gera.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Forðastu eins og heitan eldinn að
láta einkamálin hafa áhrif á starf þitt því
þetta tvennt á ekki að fara saman. Nöldur
og neikvæðni drepa allt framtak.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú hefur óvenjumikla þörf fyrir að
skipuleggja þig. Ráðstefnur, fundir og sam-
ræður við aðra einkennast af hressleika,
bjartsýni og jákvæðni.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Gættu þess að einblína ekki á eitt at-
riði þegar þú reynir að finna málum þínum
lausn. Búðu þig undir að laðast sterklega
að einhverjum sem er alger andstæða þín.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Hægðu á þér. Gakktu glaður til
verks og láttu ekki nokkurn mann sjá ann-
að en að þú njótir vinnunnar.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hlustaðu á þinn innri mann og leyfðu
honum að ráða, enda þótt þér finnist ým-
islegt athugavert við ráðagerðir hans.
Vertu raunsær.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Reyndu að halda þig á jörðinni
og líta á aðra sem jafningja. Þú ert búinn
að vera að glíma við stórt verkefni í langan
tíma og nú er bara að leggja að því loka-
hönd.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Lífið er endalaus lærdómur.
Trúðu á þig og ekki hika við að koma með
uppástungur og hvetja aðra til dáða.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Hættu að sýna gagnrýninni
manneskju þolinmæði, ekki síst ef viðkom-
andi manneskja ert þú. Varastu að láta
aðra teyma þig á asnaeyrunum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Ekki láta skapið hlaupa með þig
í gönur. Þegar um sameiginleg mál er að
ræða þýðir ekkert fyrir þig að ætla að
stjórna öllu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þegar þú nálgast málin úr óvæntri
átt, eins og þú gerir oft, þá máttu reikna
með því að þurfa að útskýra þinn málstað.
starf, samið forvarnaefni í for-
varnadeild LSS. „Það var ákveðið
að innleiða svokallað brunavarnaá-
tak í grunnskóla landsins og koma
á samstarfi við grunnskólana og
slökkviliðin í landinu. Það tókst það
vel til að þetta átak hefur haldist
allar götur síðan og verið mjög
skemmtilegt.“
Þegar talsvert var liðið á tímabil
Guðmundar hjá slökkviliðinu skildu
hjónin. Eftir að hann kynntist
seinni eiginkonu sinni keyptu þau
sérhæð í Laugardalnum árið 1988
og þar tengdist hann aftur Þrótti í
gegnum foreldrastarf þeirra hjóna.
„Ég var fenginn til að vinna að því
að setja af stað unglingamót í
Laugardalnum með fleira góðu
fólki eftir heimsókn á mót á Ak-
ureyri 2001. Það varð úr að við fór-
um sem fararstjórar með hóp
ungra drengja á Watford Football
Festival, til að taka þátt í mótinu,
og síðar á Tivoli Cup í Danmörku,
til að kanna hvernig staðið væri að
svona viðburðum. Við stofnuðum
Rey Cup árið 2002 og ég var þar
fyrsti mótsstjórinn og í kjölfarið er
ég ráðinn sem framkvæmdastjóri
bæði Þróttar og Rey Cup árið
2003. Nú var fjárhagshlutinn ansi
þungur og í gegnum samstarf við
ráðinn í eitt stöðugildi, bæði sem
formaður og framkvæmdastjóri fé-
lagsins. Ég hafði brennandi áhuga
á málefninu og fannst gífurlega
gaman að þróa þetta starf með
góðu fólki og ég fór víða um landið
og kynntist mörgum.“ Það var
fleira á borði Guðmundar en bar-
átta fyrir réttindum og kjörum, því
farið var á fullt í öflugt forvarna-
G
uðmundur Vignir Ósk-
arsson fæddist 26.11.
1951 á Leifsgötu 7 í
Reykjavík en bjó á
Lóugötu 2 frá 2 til 6
ára. „Þegar ég var 5 ára vélaði ég
mömmu til að fá að fara einn út á
róluvöll, en lenti í mjög slæmu bíl-
slysi og það leit út fyrir að ég
myndi missa annan fótinn. En fyrir
harðfylgni mömmu og Snorra Hall-
grímssonar skurðlæknis, var mér
tjaslað saman og aðgerðin tókst
það vel að ég hélt löppinni og gat
spilað fótbolta upp í 5 flokk.“ Þegar
Guðmundur var 6 ára fluttist fjöl-
skyldan á Bústaðaveg þar sem for-
eldrar hans voru að byggja hús í
Langagerði sem þau fluttu í þegar
hann var 11 ára.
Guðmundur byrjaði sem lærling-
ur í pípulögnum árið 1968 og lauk
sveinsprófi 1971. „Þá var mikið
byggingarátak í Breiðholtinu og
maður vann í lagnavinnu bæði í
blokkum, skólum og húsum og mik-
ið að gera.“ Guðmundur fékk
meistararéttindi árið 1973 og stofn-
aði þá fyrirtækið Húshitun sf. með
Svavari bróður sínum og öðrum
vini. Þá var Guðmundur komin með
eiginkonu, byggði stigagang með
gömlum vinum í Fífuseli sem fjöl-
skyldur þeirra fluttu síðan í. „Það
var mikil samstaða og vinátta hjá
okkur sem hefur haldist allar götur
síðan. Seinna byggðum við hjónin
einbýlishús í Klyfjaselinu.“
Eftir mikla vinnutörn í pípulögn-
um ákvað Guðmundur að taka sér
hlé og fór í afleysingar hjá Slökkvi-
liðinu 1976 og var fljótt fastráðinn.
Þar átti hann eftir að starfa næstu
16 árin og þar hófst líka félags-
málaáhuginn. Ákveðið var að sam-
eina tvö fagfélög sem voru án
samningsréttar og Landssamband
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna (LSS) varð til á grundvelli
nýrra samningsréttarlaga og var
Guðmundur fyrsti formaður fag-
stéttarfélagsins og stofnfundur
þess var haldinn í Munaðarnesi
1992. Það gerðist ekki átakalaust
og það tók tvö ár að vinna þennan
rétt og var fyrsti kjarasamningur
undirritaður 1994. „Þarna er ég
kominn á fullt í félagsmálin og var
borgina varð að samkomulagi að fá
Íþróttafélag Ármanns í Laugardal-
inn sem eftir það skartaði 16
íþróttadeildum og stofnað rekstr-
arfélagið Laugarból, þar sem ég
varð framkvæmdastjóri. Síðar var
ákveðið að aðskilja rekstur félag-
anna. Sumarið 2007 var ég ráðinn
til Reykjavíkurborgar á fram-
kvæmdasvið sem verkefnastjóri
samræmdrar vinnu gegn veggja-
kroti sem var í miklu óefni á þess-
um tíma. Samhliða því átti ég í
samskiptum við vegglistamenn eins
og í Hljómalindargarðinum. Síðan
fékk ég margvísleg miðborgarverk-
efni og ég minnist með hlýhug
verkefnisins Jólaborgin Reykjavík,
en þá var ég hluti af hópi sem sá
um skreytingar fyrir jólin í borg-
inni, m.a. uppsetningu jólabjallanna
sem síðan hafa glatt augu og hjörtu
borgarbúa.
Árið 2011 þá tók Guðmundur við
stöðu verkefnastjóra leyfisveitinga
borgarlands hjá umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkurborgar
sem tók til framkvæmda og við-
burða og keppnishalds í borginni á
miklum umbreytingatímum, m.a. í
kjölfar nýs aðalskipulags 2013 og
átaks við að gæða miðborgina lífi.
Frá 2016 kenndi Guðmundur í opn-
um Háskóla HR með Vegagerðinni
í réttindanámi um vinnusvæða-
merkingar og öryggisáætlanir
„Ég hef alltaf verið félagslyndur
maður og hef haft mjög gaman af
störfum mínum í gegnum tíðina
auk þess að hafa mikinn áhuga á
þjóðmálum, heillaðist af stjórnar-
skrárferlinu á sínum tíma og bauð
mig fram og fékk þar það skemmti-
lega númer 7913.“ Guðmundur hef-
ur verið virkur í fleiri félagsmálum
og má þar nefna stjórn BSRB og
stjórn Brunamálastofnunar.
Guðmundur og kona hans, Arna
Hólmfríður, eru útivistarfólk og
stunda auk þess golf og vatnaveiði.
„Við toppuðum það þegar við fór-
um á Hornstrandir í fimm daga í
fyrra. Svo hef ég gaman af tónlist
og er gamall bílskúrsrokkari, en við
náðum því í hljómsveitinni Axla-
bandinu að spila á efri hæðinni í
Glaumbæ, sem yljar í minning-
unni.“
Guðmundur Vignir Óskarsson fyrsti formaður Landssambandsslökkviliðs- og sjúkraflutninga
2021 Arna Hólmfríður og Guðmundur Vignir með börnum og mökum.
Þakklátur fyrir góða samvinnu alla tíð
Hjónin Guðmundur og Arna Hólm-
fríður á Hornströndum í fyrra.
Til hamingju með daginn