Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 72
VIÐTAL
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Jólaóratórían er miðlægt glæsiverk
í sögu þeirrar kirkjutónlistar sem
tengist jólum. Fyrir þá sem þekkja
er þetta kannski hápunkturinn á
þeirri jólamúsík sem til er,“ segir
Hörður Áskelsson organisti og
stjórnandi um tónleika þar sem flutt
verður Jólaóratórían eftir Johann
Sebastian Bach. Tónleikarnir verða
haldnir í Eldborgarsal Hörpu á
sunnudag, 28. október, kl. 17.
Flytjendur eru Mótettukórinn,
Alþjóðlega barokksveitin í Reykja-
vík og einsöngvararnir Herdís Anna
Jónasdóttir sópran, Alex Potter
kontratenór, Benjamin Glaubitz ten-
ór og Jóhann Kristinsson bassi.
Konsertmeistari er finnski fiðluleik-
arinn Tuomo Suni en Hörður stjórn-
ar.
Jólaóratórían verður flutt í tilefni
af fertugasta starfsári Mótettukórs-
ins og Listvinafélagsins í Reykjavík
sem er jafnframt 40 ára starfs-
afmæli Harðar á Íslandi. Verkið,
sem segir söguna af fæðingu Jesú, á
sér langa sögu hér á landi og hefur
notið mikilla vinsælda.
Í sérstöku öndvegi
„Það voru frumkvöðlar á undan
mér sem fluttu þetta verk, Pólýfón-
kórinn og Kór Langholtskirkju,
þannig að Jólaóratórían heyrðist
nokkuð reglulega. Það var yfirleitt í
kirkjum nema að Pólýfónkórinn
flutti hana margoft í Háskólabíói í
dymbilvikunni. Ég var búinn að vera
organisti og stjórnandi í Hallgríms-
kirkju í 12 ár þegar ég flutti hana
fyrst, það var gríðarlega spennandi.
Ég hafði áður spilað með í hljóm-
sveit þar sem Jólaóratórían var á
dagskrá. Orgelið gegnir mikilvægu
hlutverki, það fylgir guðspjalla-
manninum í gegnum allt verkið, svo
ég hafði kynnst verkinu þeim megin
frá. Svo telst mér til að ég hafi flutt
þetta sjö sinnum. Þetta verk hefur
verið í sérstöku
öndvegi og það
eru engar óra-
tóríur sem ég hef
flutt oftar en
þessa.“
Að þessu sinni
verða fluttar
fyrstu fjórar
kantöturnar af
sex. „Venjulega
láta menn sér
nægja að flytja fyrstu þrjár, það eru
kantötur sem eiga við fyrsta, annan
og þriðja í jólum. Á þessum tíma
héldu menn hátíðarmessur á stóru
hátíðunum þrjá daga í röð. En við
flytjum fyrstu fjórar. Svo er framtíð-
arhugmynd að flytja á næstu eða
þarnæstu jólum aðrar kantötur,
kannski fyrstu þrjár og síðustu eða
næstsíðustu. Það höfum við líka
gert. Ég hef upplifað það að hlusta á
þær allar sex og það var mjög flott
en löng seta.“
Mótettukórinn er fullur tilhlökk-
unar að flytja þetta verk nú í annað
sinn í Hörpu en kórinn flutti allar
sex kantöturnar í nývígðri Hörpu á
30 ára afmæli sínu árið 2012.
„Við höfðum fengið þá reynslu
fyrir tíu árum tæpum að flytja órató-
ríuna í Hörpu. Það var stórt fyrir-
tæki. Við vorum svo vön Hallgríms-
kirkju þannig þetta var mjög spenn-
andi og svo var húsið nýtt. Þegar
það kom til tals að gera þetta verk
aftur þá pöntuðum við Hörpu. Þetta
hafði fengið gríðarlega góðar undir-
tektir þar og það er í bígerð, eftir að
kórarnir fóru úr Hallgrímskirkju, að
gera samstarfssamning við Hörpu.
Það er í kortunum að við tengjumst
Hörpu meira með einhverjum hætti.
Þetta er ekki komið á hreint en það
er mikill vilji fyrir þessu og okkur
hefur verið mjög vel tekið í þessu
húsi. Hljómburðurinn í Hörpu er
mjög skýr og húsið er alveg frábært.
En það er öðruvísi en Hallgríms-
kirkja með sinn mikla og fallega eft-
irhljóm.“
Af fullum krafti
Flytjendur Jólaóratóríunnar eru
tæplega 90 í heildina: 50 manna kór,
29 hljóðfæraleikarar, fjórir ein-
söngvarar og stjórnandi. Það krefst
skipulags. „Það er allt svo tauga-
veiklað út af þessum blessaða far-
aldri. Við þurfum sérstaklega að
raða okkur upp á sviðinu með tilliti
til sóttvarna. En það er búið að sam-
þykkja það og við fáum góðan stuðn-
ing til þess að leysa þetta.“
Hörður segir æfingarnar ekki
hafa gengið eins auðveldlega og
venjulega. „Við höfum þurft að fella
niður æfingar. En við byrjuðum
snemma að æfa og það er töluverð
kunnátta í hópnum frá síðasta flutn-
ingu á þessu verki, þótt það séu um
fimm ár síðan. Kórinn kemur af full-
um krafti inn í þetta.“
Stór hluti flytjenda kemur erlend-
is frá og því mikið lán að það virðist
ætla að takast að stefna þessu fólki
saman. Hörður segir að vonast sé til
að það fjölgi í hópi Íslendinga sem
eru sérhæfðir í barokkflutningi. Það
hafi orðið framfarir hér á landi und-
anfarin ár og fjölgað í hópnum en
ekki nægilega til þess að hægt sé að
manna svona stóra barokkhljóm-
sveit.
Rúmlega tuttugu erlendir sér-
fræðingar í barokkhljóðfæraleik
koma því til landsins til að taka þátt í
flutningnum. „Þeir eru hluti af
Alþjóðlegu barrokksveitinni okkar,
sem við stofnuðum og hefur fylgt
okkur í yfir 20 ár og komið misoft á
hverju ári og flutt með okkur marg-
ar magnaðar óratóríur frá barokk-
tímanum. Hún kennir sig núna við
Reykjavík eftir að við fórum úr Hall-
grímskirkju. Þetta er mikið sama
fólkið, þótt það verði auðvitað alltaf
mannabreytingar. Þetta er fyrsta
flokks fólk, sérfræðingar í upp-
runafluttningi og það hefur verið
okkar gæfa að geta fengið þau svona
oft hingað. Margt af þessu fólki er
sjálfstætt starfandi og ferðast um
allan heim. Það er reynslumikið og
við græðum mikið á því.“
Alþjóðlega barokksveitin flytur
Jólaóratóríu Bachs í fimmta sinn
undir stjórn Harðar. „Það er gaman
að þau eru svo miklir vinir, allt þetta
fólk. Kjarninn kynntist í námi í Den
Haag þar sem dóttir okkar lærði og
hún kom okkur í samband við þetta
fólk á sínum tíma. Þeim finnst svo
ótrúlega gaman að koma saman.
Þetta er alltaf eins og dásamlegt
ættarmót þegar þau koma saman.
Það er tilhlökkun að hittast og vera
með svona frábærum flytjendum,“
segir stjórnandinn.
„Þetta er bara ævintýri. Við erum
farin að trúa því að þetta gangi upp.
Við höfum verið áhyggjufull og þetta
er flóknara en flest sem maður gerir.
Ef það kemur ekki eitthvað þeim
mun verra upp á þá verða þessir tón-
leikar.“
Áskorun felst í aðstöðuleysi
Hörður og kórarnir hans tveir,
Mótettukórinn og Schola cantorum,
kvöddu Hallgrímskirkju eftir ára-
tuga starf í því húsi í kjölfar deilna
við sóknarnefnd. Þótt samningur við
Hörpu sé í kortunum segir stjórn-
andinn að framtíðin sé nokkuð óljós.
„Við erum með svolítinn hala á eftir
okkur af viðburðum og stórum verk-
efnum sem hafa frestast vegna
Covid. Við erum búin að leggja niður
drög að óskaverkefnum á næstu ár-
um á ýmsum stöðum og það er
spennandi. En maður saknar nátt-
úrulega staðarins sem maður vann á
í 39 ár. Ég upplifði ótrúlega hluti
gerast í Hallgrímskirkju. Ég byrjaði
að starfa þar áður en hún var full-
byggð þannig ég upplifði vígslu
kirkjunnar og vígslu stóra orgelsins.
Svo hafði ég yfirumsjón með öllum
tónlistarflutningi. Það sem er erf-
iðast og maður þarf að venjast er að
vera upp á aðra kominn með æfinga-
aðstöðu og tónleikastaði. Það er
flókið og það felst í því áskorun en
það er svolítið gaman að fara víðar,
ég neita því ekki.“
Hörður stefnir að því að halda
tvenna jólatónleika, eina með Mót-
ettukórnum og aðra með Schola can-
torum. Hann segir þó að það ríki enn
svolítil óvissa vegna ástandsins en
þó sé búið að bóka jólatónleika
Schola cantorum 15. desember í
Kristskirkju, Landakoti og hefð-
bundna jólatónleika Mótettukórsins,
þar sem einsöngur og orgelið koma
við sögu, 19. desember í Fríkirkj-
unni. Þeir verði haldnir „ef Guð og
veiran leyfir“. „Maður lifir svolítið
einn dag í einu, það er ekkert annað í
boði. Þetta er mjög spennandi. Það
eru margir sem ætla að koma og það
er eftirvænting í loftinu.“
Hópurinn „Þetta er mjög spennandi. Það eru margir sem ætla að koma og það er eftirvænting í loftinu,“ segir Hörður um tónleikana sem fram undan eru.
„Þetta er bara ævintýri“
- Hin glæsilega Jólaóratóría Bachs flutt í Hörpu - Mótettukórinn, Alþjóðlega barokksveitin
í Reykjavík ásamt einsöngvurum - Hörður Áskelsson segir hópinn hlakka til að koma saman
Hörður
Áskelsson
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646