Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 73
MENNING 73 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 T itill kvikmyndarinnar The French Dispatch er nafn á bandarísku dagblaði í skáldaðri franskri borg á 20. öld. Arthur Howitzer Jr. (Bill Murray), ritstjóri dagblaðsins The French Dispatch, deyr skyndilega úr hjartaáfalli. Samkvæmt óskum hans skal útgáfa blaðsins tafarlaust stöðvuð og í kjölfarið síðasta kveðju- blaðið gefið út þar sem þrjár greinar úr fyrri útgáfum blaðsins eru endur- birtar ásamt minningargrein. Í myndinni eru þessar þrjár sögur í síðustu útgáfu The French Dispatch lífgaðar við. Kvikmyndinni hefur verið lýst sem ástarbréfi til blaðamanna og er hún innblásin af ást leikstjórans, Wes Anderson, á tímaritinu The New Yorker . Sum atriðin eru byggð á raunverulegum persónum og greinum úr tímaritinu. Fyrsta saga myndarinnar segir frá geðveikum listamanni, Moses Rosenthaler (Benicio Del Toro), sem situr í Ennui-fangelsinu fyrir morð þar sem hann málar abstrakt nektar- myndir af Simone (Léa Seydoux) fangelsisforingja. Julie Cadazio (Adrien Brody) listaverkasali er strax heillaður af verkum hans og sannfærir myndlistarunnendur um að sýna þau. Fljótlega verða mál- verk Rosenthaler stórverk innan listaheimsins. Þessi saga er byggð á „The Days of Duveen“, sex greinum í The New Yorker um listaverkasal- ann Lord Duveen. Önnur saga myndarinnar fjallar um hernámsmótmæli stúdenta í maí árið 1968 og er innblásin af tvíþættri grein Mavis Gallant „The Events in May: A Paris Notebook“. Síðasta sagan hefst á sjónvarpsviðtali þar sem Roebuck Wright (Jeffrey Wright) segir frá því þegar honum var boðið í kvöldmat hjá lögreglu- stjóra Ennui (Mathieu Amalric) þar sem frægi lögregluþjónninn og kokkurinn Lt. Nescaffies (Steve Park) eldaði en nafn hans er fyndin tilvísun í bæði skyndikaffið Nescafé og franska kokkinn Escoffier. The French Dispatch má líkja við eina stóra myndfléttu eða teikni- mynd. Hver saga er drifin áfram með miklum hraða og margt á sér stað á stuttum tíma en kvikmyndin er ekki nógu einföld til þess að sá stíll virki. Áhorfendum tekst ekki að meðtaka það sem birtist þeim á skjánum og þar sem litlum tíma er eytt í hvert atriði verður persónu- sköpunin mjög takmörkuð. And- erson leggur þess í stað gríðarlega áherslu á myndheildina (mise-en- scène), framsetninguna í hverju skoti fyrir sig og má líkja hverjum ramma við listaverk þar sem öll smáatriðin hafa hlotið merkingu. Hægt er að færa rök fyrir því að myndheildin, þ.e.a.s. allt sem sést inn í myndarammanum, sé það sem geri myndina. Anderson leyfir sér þannig að leggja alfarið áherslu á út- lit myndarinnar sem líkist oft setti í leikriti þar sem engin áhersla er lögð á raunsæi. Úr því verður til heillandi tilbúin frönsk borg í allri sinni lita- dýrð. Anderson leikur sér bæði með hlutfallsstærð kvikmyndarinnar og skiptist á að sýna hana í lit og svart- hvítu. Breytingarnar frá svarthvítu yfir í lit er hægt að skilja sem svo að fortíðin elti einstaklinga nútíðar sem er viðeigandi í þessu samhengi þar sem Anderson er að færa greinar fortíðar yfir á nútímaskjáinn. Breyt- ingin á hlutfallsstærðinni, þ.e.a.s. hæð og lengd ramma eins og það birtist á skjánum, er hins vegar yfir- leitt óskiljanleg nema í atriðinu þeg- ar málverk listamannsins Rosen- thaler er sýnt. Áður er hlutfallsstærð skjásins þröng en þegar freskan er sýnd stækkar hlut- fallið þannig að freskan náist öll á mynd. Í þessu atriði er breytingin á hlutfallinu mikilvæg og gefur áhorf- andanum hugmynd um hversu þýðingarmikil freskan er. Í The French Dispatch leggur kvikmyndahöfundurinn, Wes And- erson, meiri vinnu í kápuna heldur en bókina sjálfa. Hann nýtir sér kvikmyndaformið til fullnustu til að skapa þá fallegu myndheild sem birtist að skjánum. Þessi gríðarlega áhersla á útlit myndarinnar bitnar á söguþræðinum sem er óþarflega flókinn og persónusköpuninni sem er lítil sem engin þar sem litlum tíma er eytt í hverja persónu. Í fyrri myndum hans, eins og The Royal Tenenbaums (2001) og The Grand Budapest Hotel (2014), tekst And- erson ekki á við sama vandamál en þar er söguþráður og persónur ekki síður áhugaverðar en leikmynd og listrænt útlit myndarinnar. Fram- setning The French Dispatch er virkilega flott, eins og í flestum öðr- um kvikmyndum hans, og maður þarf ekki að þekkja vel til Anderson til þess að vita að hvert smáatriði hefur merkingu . Áhorfendum er hins vegar ekki gefinn tími til þess að rýna í flókna framsetninguna og samhliða flóknum samræðum og flókinni fléttu verður myndin yfir- þyrmandi. Best væri að lýsa The French Dispatch á eftirfarandi hátt; myndin er of einkennileg, meira segja fyrir Wes Anderson-kvikmynd. Anderson tapar sér Kápa Anderson leggur meiri vinnu í kápuna heldur en bókina sjálfa í The French Dispatch, nýtir sér kvikmynda- formið til fullnustu til þess að skapa þá fallegu myndheild sem birtist á skjánum, eins og gagnrýnandi kemst að orði. Bíó Paradís og Háskólabíó The French Dispatch / Síðasta franska sendingin bbbnn Leikstjórn: Wes Anderson. Handrit: Wes Anderson. Aðalleikarar: Benicio Del Toro, Adrien Brody, Tilda Swinton, Léa Seydoux, Frances McDormand, Timot- hée Chalamet, Lyna Khoudri, Jeffrey Wright og5 Bill Murray. Þýskaland og Bandaríkin, 2021. 108 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Hafdís Huld og Alisdair Wright hlutu fyrir fáeinum dögum tvöfalda platínuplötu fyrir plötuna Vöggu- vísur sem kom út árið 2012. Hefur platan notið vinsælda æ síðan og hefur nú selst í yfir tuttugu þúsund eintökum en í fyrra var hún mest selda plata ársins. Hlýtur hún því viðurkenningu fyrir, staðfesta af Félagi hljómplötuframleiðenda. Alda Music, sem gaf plötuna út, óskar Hafdísi og Alisdair til ham- ingju með áfangann og á meðfylgj- andi mynd má sjá þau hampa hinni tvöföldu platínuplötu. Hlutu tvöfalda platínuplötu Platína Alisdair og Hafdís með platínu- plötuna sem þau hlutu fyrir yfir 20 þúsund seld eintök af Vögguvísum. Hinn mikli smell- ur kanadíska tónlistarmanns- ins The Weeknd, Blinding Lights, er nú orðinn vin- sælasta lag allra tíma á banda- ríska vinsælda- listanum Bill- board. Hefur það rutt smelli Chubby Checker, The Twist, úr fyrsta sætinu en það lag er frá árinu 1960. Lag The Weeknd, sem er lista- mannsnafn Abel Tesfaye, kom út í nóvember fyrir tveimur árum og var í 90 vikur samfleytt á lista Billboard yfir vinsælustu lögin í Bandaríkjunum. Billboard-listinn er samantekt á mest spiluðu lög- unum í útvarpi, smáskífusölu og lagastreymi. Hefur listi Billboard yfir 100 vinsælustu lögin verið tek- inn saman í 63 ár, að því er fram kemur í frétt á vef BBC. Blinding Lights vinsælla en Twist The Weeknd Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T 94% Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.