Morgunblaðið - 26.11.2021, Page 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
Þ
ú færð aldrei sigrað þinn
fæðingarhrepp, / stjúpmóð-
urauga hans vakir yfir þér
alla stund. / Með meinfýsn-
um skilningi tekur hann ósigrum /
þínum, afrekum þínum með sjálf-
sögðu stolti.“
Þetta er úr ljóðinu Þú ert svona
stór úr Þorpinu eftir Jón úr Vör. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson var lítill þegar
hann fluttist að vestan, frá Þingeyri
fremur en Ísafirði. En hann varð stór í
Reykjavík. Og
heimaslóðirnar
fylgdu honum að
Bessastöðum og
Sámsstöðum þeg-
ar „hallar í síðasta
hluta ævinnar“
(86). Ég veit ekki
nema betur megi
sjá feril hans í
ljóðinu en flestra
annarra samtímamanna. Með báðum
formerkjum og ævinlega í ökkla eða
eyra; raust hans hefur verið hávær
síðan 1970. Ósigrarnir sárir, sigrarnir
stærri, formennska í Alþýðu-
bandalagi, ráðherradómur og forseta-
kjör, trekk í trekk eins og sagt var.
Á Ísafirði voru kratar allsráðandi,
vinstrið næstum allt á einum hesti.
Þetta vildi Ólafur Ragnar færa upp á
landið (10, 19-20). Hann var í þremur
flokkum með þetta „leiðarstef“ (19) en
árangurslaust. Nú járna fjórir flokkar
sinn fótinn hver á hestinum, einn að
vísu úti á hlaði þessi misseri. Líklega
er markmið hans í þessum efnum enn
á fertugu dýpi – ef það var þá mark-
mið umfram eigin persónu, segja efa-
semdarmenn.
Ólafur Ragnar er einbirni og fór
þriggja ára til afa síns og ömmu á
Þingeyri vegna berklaveiki móður
sinnar sem dvaldist langdvölum á Víf-
ilsstöðum og Kristnesi. Á Þingeyri var
hann sex ár og síðar oft um sumur.
Grímur Kristgeirsson (1897-1971)
rakari var 18 árum eldri en Svanhild-
ur Ólafsdóttir (1914-1966) kona hans;
Grímur átti tvö alsystkin en alls eign-
aðist Kristgeir 18 börn; fjölskyldan
var flókin (37). Brugðið er upp eft-
irminnilegri mynd af Hjalta Krist-
geirssyni (104-107). Lífið er aldrei ein-
falt þegar pólitík og trú renna saman.
Grímur rakari fluttist suður þegar
drengurinn var 10 ára og þá samein-
aðist fjölskyldan. Ólafur þekkti naum-
ast móður sína. Þetta var stundum
„ögrandi vandi“ (111) og lesandi
skynjar vel fjarlægðina milli mæðg-
inanna. Strákurinn flýði oft í bæk-
urnar. Uppvaxtarárum er lýst við leiki
og störf með vaxandi aldri; bækurnar
mikilvægar, félagarnir, útvarpið í
senn gleðigjafi og menntandi; allir
þorpsbúar á Þingeyri áttu þátt í upp-
eldi stráksins eins og tíðkaðist í kaup-
túnum landsins. Afi og amma trúuð.
Ólafur Ragnar var einfari öðrum
þræði og er enn (115).
Hann settist í Miðbæjarskóla í
Reykjavík, hafði hlaupið yfir bekk fyr-
ir vestan og varð ekki efstur í Miðbæj-
arskólanum, ári yngri en félagarnir.
„Úrslitin nokkuð undrunarefni; vissan
um að vera á toppnum hafði fylgt mér
að vestan“ (137). Síðan lá leiðin í
landspróf í Vonarstræti til þess að
komast í MR. „Innganga í MR var
lykill að áhrifastöðu í framtíðinni. Það
var mikið í húfi“ (132): „Í rúm hundr-
að ár höfðu flestir leiðtogar landsins
lokið prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík“ (144). Ellefu ára gamall
sagði hann vini sínum að markmiðið
væri að verða yngsti forsætisráðherra
landsins (137)! Það heppnaðist ekki en
Ólafur Ragnar sat þó forseta lengst í
embætti! 20 ár. Hann stóð fyrir upp-
reisn á fyrsta ári í MR gegn inspector
scholae, tapaði, en lærdómurinn var
þessi: „Að taka forystu varð sjálfgefið
og eðlislægt“ (168). Hann rótaðist
áfram: „Dugnaðurinn hefur löngum
verið mér tvíeggjað sverð. Skilað góð-
um verkum en líka öfund og and-
stöðu“ (187). Ólafur Ragnar stamaði í
æsku en náði stjórn á því með æfingu
(41). Þjálfun í fundarsköpum og ræðu-
mennsku fékk hann víða, í „krafti
barnastúkunnar, skátastarfsins og fé-
lagslífs skólanna [formaður Framtíð-
arinnar einn vetur í MR] var ég næsta
fullnuma þegar ég gekk inn á völl bar-
áttunnar um völdin á Alþingi og í rík-
isstjórn“ (118). En Ólafuŕ Ragnar
þakkar mælskuna líka erfðum úr föð-
urætt, frá Grími og Kristgeiri: „Ég
hlaut svo þessa gáfu þeirra; fágaði við
kennslu og á Alþingi. Í forsetatíð varð
ýmsum tíðrætt um blaðalausar ræður
mínar. Þótti einstakt; aðrir lásu bara
texta“ (39). Kínverskir túlkar fórnuðu
höndum.
Grímur hvatti son sinn til dáða. Eft-
ir honum er haft: „Strákurinn á eftir
að sigra íhaldið!“ (87) „Í síðustu heim-
sókn minni til pabba á spítalann kom
þessi hvatning: „Segðu forystunni [í
Framsókn] að þú ætlir inn á Alþingi;
hvað sem það kostar!“ Hann dó um
nóttina“ (93).
Kjarninn í bókinni eru uppvaxtar-
árin en sprotar teygja sig meira og
minna upp úr flestum köflum til sam-
tímans. Brugðið upp myndum af fólki
fyrir vestan og syðra, andstæðingum
og samherjum, ættingjum og vinum.
Víða blasir við, bæði í frásögninn og
milli lína hver klettur Guðrún Katrín
var honum og ráðgjafi. Á köflum
breytist Ólafur Ragnar í „við Búbba“.
Ólafur Ragnar skrifar að jafnaði
stuttar setningar, stíllinn verður fyrir
vikið hraður og verður best lýst með
dæmi. Guðmundur Karl Pétursson
læknir gerði aðgerð á móður drengs-
ins við berklunum: „Hann þróaði að-
ferð sem nefnd var höggning. Rif voru
tekin úr sjúklingum. Átti að draga úr
sjúkdómnum og létta öndun. Svæfing
var ekki notuð. Hinir berklaveiku vak-
andi meðan rifin voru tekin. Níu úr
mömmu. Morfín í stórum skömmtum“
(30). Iðulega er sleppt frumlagi eða
umsögn svo gripin séu upp hugtök úr
setningafræði.
Neyðarlegar eru sögur af sam-
skiptum Ólafs Ragnars og Davíðs
Oddssonar þegar þeir fjandvinir sátu
sinn í hvoru embætti forseta og for-
sætisráðherra og Ólafur Davíðsson
skólabróðir forseta var ráðuneyt-
isstjóri og sendiboði (201). Gaman
verður að fá sjónarhorn Davíðs!
Mikill bálkur mynda fylgir þessari
sögu, margar bráðskemmtilegar, en
betur hefði þurft að vanda til mynda-
texta, nafngreina fleiri menn sem
hefði verið í lófa lagið. Eysteinn Jóns-
son skipaði Guðlaug Rósinkranz þjóð-
leikhússtjóra en ekki Hriflu-Jónas
(218); ólíklegt er að Jónas hafi andað
ofan í hálsmálið hjá Eysteini þegar
hér var komið þótt vissulega væri
Rósinkranz afar handgenginn Jónasi.
Vikið er að tímaritinu Birtingi sem
var boðberi nýrra tíma. Það var ekki
einungis innihaldið, útlit og umbrot
var nýtt í augum lesenda og ættað úr
smiðju Harðar Ágústssonar (220).
Rætur eru ekki einungis æsku-
minningar fyrrverandi forseta, litaðar
blikandi fjarlægð, heldur einkum
staðfesting á metnaði og vottur um
markvissa sókn til valda og áhrifa. Í
þeirri atlögu tíðkuðust hin breiðu
spjótin á báða bóga og ekki greri alltaf
um heilt. Ekkert hefur hingað til bug-
að leiftrandi sjálfstraust Ólafs Ragn-
ars Grímssonar. Vissulega verður
hann aldrei alþjóðareign, ef svo má
segja. Ég held líka hann sækist ekki
eftir því. Enginn frýði honum vits en
meira var hann grunaður um græsku í
hita baráttunnar, svo færð séu til
nútímamáls gömul ummæli um valda-
mann.
Veldur hver á heldur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í ræturnar Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, á gangi með hund sinn í fyrra. Rætur eru ekki einungis
æskuminningar fyrrverandi forseta, litaðar blikandi fjarlægð, heldur einkum staðfesting á metnaði og vottur um
markvissa sókn til valda og áhrifa, skrifar gagnrýnandi meðal annars í rýni sinni um nýjustu bók Ólafs Ragnars.
Æviminningar
Rætur. Á æskuslóðum minninga og
mótunar bbbbn
Eftir Ólaf Ragnar Grímsson.
Innbundin, 241 bls., myndir, skrár.
Mál og menning, 2021.
SÖLVI
SVEINSSON
BÆKUR
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is
Enski kvikmynda-
leikstjórinn Rid-
ley Scott kennir
snjallsímum um
laka aðsókn að
kvikmynd hans
The Last Duel eða
öllu heldur unga
fólkinu í dag sem
alið sé upp við að
horfa á snjallsíma.
Scott lét þessi ummæli falla í hlað-
varpsþætti Marc Maron, WTF, sem
varð aðgengilegur á mánudaginn
var. Kvikmynd Scott hefur skilað 27
milljónum dollara í miðasölu en kost-
aði 100 milljónir að framleiða. „Ég
held að þegar öllu er á botninn hvolft
snúist þetta um að við erum með
áhorfendur sem hafa alist upp við
þessa fjandans snjallsíma,“ sagði
Scott við Maron í þættinum. Sagði
hann þennan tiltekna hóp aldamóta-
kynslóðina sem „vildi ekki læra neitt
nema það kæmi frá snjallsímanum“.
Aldamótakynslóðin er ekki sú eina
sem fékk á baukinn í spjallinu því
Scott lét kvikmyndagagnrýnendur
líka hafa það óþvegið og sagðist ekki
hafa lesið gagnrýni frá því rýnir
rakkaði niður Blade Runner árið
1982.
Kennir snjallsímum um laka aðsókn
Ridley Scott
Með kveðju frá Íslandi, á ensku
From Iceland With Love, er heiti
sýningar Magdalenu Margrétar
Kjartansdóttur sem opnuð var 6.
nóvember í BAG – Banco das Artes
Galeria, í Municipio Leiria í Portú-
gal. Í kjölfar þátttöku Magdalenu
árið 2019 í Münsterland
Festival-listahátíðinni í Þýskalandi
bauðst henni að sýna í BAG, að því
er fram kemur í tilkynningu.
Magdalena er fædd 1944 í
Reykjavík og lauk námi frá grafík-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands. Verk hennar á sýningunni,
nítján stórar tré-og dúkristur, fjalla
um reynsluheim kvenna sem hún
tjáir á kröftugan hátt, að því er
fram kemur í tilkynningu. Sýningin
í BAG galleríinu í Leiria stendur
yfir til 30. janúar á næsta ári. Grafík Verk eftir Magdalenu Margréti.
Magdalena sýnir í BAG í Leiria