Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 84
S V A R T U R FÖ S TU D A G U R Ú T N Ó V EM B ER – FR Á B Æ R V ER Ð ! Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Tryggvi Snær Hlinason, miðherji íslenska karlalands- liðsins í körfuknattleik, mætir sjaldan leikmönnum sem eru stærri en hann. Í kvöld þarf hann hins vegar að glíma við hinn 221 sentimetra háa Matt Haarms þegar Ísland mætir Hollandi í undankeppni heimsmeistara- mótsins í Almere. »71 Tryggvi í slag við stóran Hollending ÍÞRÓTTIR MENNING Leikhópurinn Lotta sýnir Ævintýri í jólaskógi frá 27. nóvember til 29. desember í Guðmundarlundi. Sýningin er utandyra og því þurfa gestir ekki að fara í hraðpróf. Aðeins 25 gestir komast á hverja sýningu og má sjá sýningartíma og dagsetningar á tix.is. Ævintýrið var fyrst sýnt í fyrra og í því hitta áhorfendur þau Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og tröllasystkini þeirra. Sýn- ingar hefjast á tíu mínútna fresti og byrja þegar tekur að skyggja. Gestir fara í hópum um skóginn með vasa- ljós og hitta þar fyrir kynjaverur. Eftir stutta göngu er komið að sviði þar sem flutt er lítil jólasaga. Ævintýri í jólaskógi á aðventunni Þegar hann hafi tekið bílpróf 1957 hafi hann þurft að skila hreinu saka- vottorði. Þegar hann hafi sótt um það í sakaskrá, sem þá var, hafi hann sagt til nafns. Afgreiðslumaðurinn hafi sagt að hann gæti ekki gefið út vottorð með nafninu Guðmundur Þ án staðfestingar á því fyrir hvaða nafn þornið stæði. „Ég vissi ekki hvað ég átti að gera en datt þá í hug að fara upp á Þjóðskjalasafn og tala við séra Jón Guðnason, starfsmann safnsins, sem hafði verið prestur í Strandasýslu og skrifað bókina Ævi- skrár Strandamanna. Hann vottaði að ég héti Guðmundur Þ og ég fram- vísaði vottorðinu í sakaskrá. Þar hitti ég á sama mann og áður, hann vildi ekki viðurkenna þetta og skrif- aði Guðmundur Þorn í sakavott- orðið. Í ökuskírteinið var skrifað Guðmundur Þ Jónsson og þornið hefur aldrei verið neitt mál eftir þetta.“ Hann gerir hlé á máli sínu í ör- skamma stund en heldur svo áfram: „Ekkert mál nema hvað ég hef þurft að nota Th í staðinn fyrir þornið í vegabréfinu, því þornið gildir ekki í útlöndum, og eins get ég ekki notað Þ í netfanginu.“ Hins vegar hafi þornið komið sér vel. „Æði margir hafa heitið Guðmundur Jónsson á minni leið og þornið hefur því að- greint mig frá þeim.“ Guðmundur Þ Jónsson stundaði nám í verkalýðsmálaskóla í Moskvu í tvö ár. „Sem krakki var ég yfirleitt kallaður Gummi og í þessum póli- tíska skóla gekk ég alltaf undir nafn- inu Jonsson. Þar reyndi aldrei á þornið.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Millistafir í nöfnum fólks standa gjarnan fyrir annað nafn og til dæm- is heitir Guðmundur Þ. Guðmunds- son, landsliðsþjálfari í handbolta, Guðmundur Þórður. Guðmundur Þ Jónsson, fyrrverandi verkalýðsfor- ingi, borgarfulltrúi og varaþingmað- ur, heitir hins vegar Guðmundur Þ, þar sem bókstafurinn Þ stendur að- eins fyrir það sem hann er: Þorn. Foreldrar Guðmundar voru Ben- onía Bjarnveig Friðriksdóttir og Jón Magnússon í Árneshreppi á Strönd- um. Guðmundur segir að margir hafi heitið Guðmundur í sveitinni og víð- ar, þegar hann fæddist á Gjögri 1939. Guðmundur Guðmundsson, skólastjóri í Finnbogastaðaskóla, hafi tekið upp millistafinn Þ til að- greiningar frá öðrum en móðir hans hafi heitið Þuríður. Draumur og sakavottorð Á meðgöngunni hafi móður hans dreymt Guðmund Þ og ráðið draum- inn svo að hann hafi verið að vitja nafnsins. „Því ákvað hún að ég myndi heita Guðmundur Þ,“ út- skýrir hann. Fyrir skírnina hafi móðir hans sagt sr. Þorsteini Björnssyni, síðar fríkirkjupresti, að sonurinn ætti að heita í höfuðið á Guðmundi Þ. „Prestur skildi málið þannig að ég ætti bara að heita Guð- mundur, eins og hún sagði mér,“ rifjar Guðmundur Þ upp. Þegar presturinn hafi spurt í athöfninni hvað barnið ætti að heita hafi móðir hans sagt Guðmundur Þorn. Hik hafi komið á sr. Þorstein en síðan hafi hann látið sig hafa það. „Eftir athöfnina sagði hann, að sögn móður minnar, að það væri á mörkunum að skíra með einum bókstaf, en hann hefur staðið vandræðalaust síðan, því fæstir hafa spurt fyrir hvað þornið standi. Ég skrifa aldrei punkt fyrir aftan þornið því þetta er ekki skammstöfun.“ Hann bætir við að í manntalinu, þar sem fermingin sé skráð, sé x í sviga við þornið og neð- anmáls standi: „Samkvæmt eigin sögn og kirkjubók Árnespresta- kalls.“ „Þetta hefur þótt dálítið skrýtið,“ segir hann. Engan ama hefur Guðmundur haft af þorninu en hann rifjar upp eitt skemmtilegt atvik vegna þess. Þornið eitt og sér - Þ er ekki skammstöfun í nafni Guðmundar Þ Jónssonar Morgunblaðið/Unnur Karen Þorn Guðmundur Þ Jónsson, fyrrverandi verkalýðsforingi með meiru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.