Morgunblaðið - 20.12.2021, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021
ÍTALÍA 2022
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 WWW.UU.IS
SKÍÐAFRÍ Á MADONNA
Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina. Við
bjóðum beint flug vikulega til Ítalíu, þar sem
farþegar okkar geta valið úr tveimur frábærum
skíðasvæðum, Madonna og Pinzolo.
Kláfur tengir skíðasvæðin Pinzolo og Madonna, svo
auðvelt er að nýta sér bæði skíðasvæðin.
Farastjórar okkar á staðnum eru þau Dinna og
Helgi. En þau hafa mikla reynslu af skíðaferðum.
SKÍÐI
2022PINZOLO EÐAMADONNA
ÍSLENSK
FARARSTJÓRN OG
FLUTNINGUR Á
SKÍÐABÚNAÐI
INNIFALIÐ Í VERÐI
22. - 29. JANÚAR
29. JAN.- 05. FEB.
05. - 12. FEBRÚAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta eru engar gleðifréttir. Hum-
arveiðin hefur dregist saman jafnt
og þétt síðustu ár svo sást í hvað
stefndi. Nýjustu tíðindi eru kannski
ekki svo mjög óvænt,“ segir Jón Páll
Kristófersson, rekstrarstjóri
Ramma í Þorlákshöfn. Hafrann-
sóknastofnun tilkynnti fyrir helgi þá
ráðgjöf sína að veiðar á humri verði
óheimilar næstu tvö ár, svo allrar
varúðar sé gætt.
Jafnframt er tillaga Hafró sú að
veiðar með botnvörpu verði bannað-
ar á tilteknum
svæðum á veiði-
slóðinni nærri
Hornafirði. Vís-
indamenn segja
að í ár hafi hum-
arafli á hverja
sóknareiningu
verið hinn
minnsti frá upp-
hafi, eftir sam-
fellda lækkun frá
2007. Stofnstærð humars í mælingu
þessa árs sé um fjórðungi minni en
var 2016. Stofnmæling með núver-
andi fyrirkomulagi talninga á hum-
arholum á sjávarbotni hófst þegar
stofninn var þá þegar í mikilli lægð.
Allir árgangar í stofnunum allt frá
2005 séu mjög litlir. Verði ekki gripið
til verndar og veiðstopps nú megi
búast við áframhaldandi samdrætti.
Þrjú fyrirtæki með mestu
umsvifin í humrinum
Þrjú sjávarútvegsfyrirtæki hafa
verið umsvifamest í veiðum og
vinnslu á humri, það er Rammi,
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum og
Skinney-Þinganes sem er með starf-
semi bæði á Höfn í Hornafirði og í
Þorlákshöfn.
Útgefinn humarkvóti á þessu ári
var 143 tonn og skiptist að mestu
milli þessara fyrirtækja. Annars hef-
ur kvóti þessa ár, eins og fram hefur
komið í Morgunblaðinu, að mestu
verið veiddur til að meta ástand
stofnsins. Tveir bátar Ramma hf.,
Jón á Hofi ÁR og Fróði ÁR hafa ver-
ið gerðir út á humar.
„Vægi veiða og vinnslu humars
hefur því miður farið minnkandi
undanfarin ár í starfsemi okkar hér í
Þorlákshöfn,“ segir Jón Páll sem tel-
ur mikilvægt að áfram verði fylgst
með viðgangi humarstofnsins þrátt
fyrir fyrirhugað veiðibann.
Ráðgjöf um stopp er ekki óvænt
- Humarstofninn stendur veikt - Hafró vill stöðva veiðar í tvö ár - Litlir árgangar frá 2005 - Eyjar,
Þorlákshöfn og Hornafjörður helstu útgerðarstaðir - Mikilvægt að áfram verði fylgst með þróuninni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Humar Handagangur í öskjunni í
vinnsluhúsi austur í Þorlákshöfn.
Jón Páll
Kristófersson
Jólasveinar kunna margt og meira en að stíga snjó og
stinga glaðning í staka skó. Oftast þegar þeir koma til
byggða eyða þeir dögunum í slag við vindinn, dans í
rigningunni eða gerð snjókarla. Veðrið hefur ekki boð-
ið upp á neitt af þessu og kannski þess vegna sást til
þeirra á róðrarbrettum á Pollinum við Akureyri.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Kynlegir kvistir á lygnum sjó
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráð-
herra sagði ekkert minnisblað hafa
borist frá Þórólfi Guðnasyni sótt-
varnalækni þegar Morgunblaðið
náði sambandi við hann í gærkvöldi.
Á föstudag kvaðst Willum eiga von
á að fá minnisblaðið í hendurnar um
helgina en núgild-
andi takmarkanir
innanlands renna
út þann 22. des-
ember.
Í samtali við
Morgunblaðið í
gærmorgun sagði
Þórólfur að minn-
isblaðið væri í
smíðum og væri á
lokametrunum.
Þá hefur hann áð-
ur sagt að afléttingar fyrir jól séu
ólíklegar þó hann hafi ekki gefið upp
hverju megi búast við á minnis-
blaðinu.
Óttast útbreiðslu Ómíkron
Að minnsta kosti 160 Ómíkron-
smit hafa verið staðfest hér á landi
og var meirihluti þeirra meðal fólks
utan sóttkvíar við greiningu. Már
Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúk-
dómadeild, telur líklegt að útbreiðsla
veirunnar muni brátt líkjast því sem
hefur sést hjá nágrannaríkjum okk-
ar. Því megi hæglega búast við 600
smitum á dag á næstu misserum.
„Okkur líst ekki vel á þetta. Öll
reynsla í nágrannaríkjum er þannig
að þetta mun bara vaxa núna í veld-
isvexti og við getum alveg gert ráð
fyrir því að þetta verði eins og í Dan-
mörku. Þá gætum við verið að sjá
sirka 600 smit á dag. Ef svo fer, þá
munum við vera með á tíu dögum sex
þúsund smit og tólf þúsund smit á
tuttugu dögum,“ sagði hann við
mbl.is í gær.
Ef spáin raungerist segir hann
eina kostinn í stöðunni að allt sam-
félagið bregðist við.
Gæti stefnt í 120 innlagnir
Tólf sjúklingar liggja nú inni á
Landspítala vegna Covid-19, þar af
er einn á gjörgæslu í öndunarvél.
Að sögn Más má ekki lesa of mikið
í þær tölur en ef útbreiðsla veirunn-
ar mun líkja eftir því sem gerðist á
Norðurlöndunum má búast við 120
spítalainnlögnum í einu, ef gert er
ráð fyrir að 1% þeirra sem veikjast
muni leggjast inn.
„Þorri fólks mun ekki veikjast
mikið og alvarlega en það er þetta
sem út af stendur sem kemur til
kasta heilbrigðisstofnana.“
Mikilvægt að grípa í taumana
Hann segir nú tvo mikilvæga
þætti í stöðunni til að stemma stigu
við útbreiðslu veirunnar. Annars
vegar að grípa harkalega í taumana
hvað varðar samkomutakmarkanir
og hins vegar að hvetja fólk í örv-
unarbólusetningar og hefja bólu-
setningar barna á aldrinum fimm til
ellefu ára.
„Þeim mun meira ónæmi sem við
höfum í samfélaginu, því erfiðara er
fyrir veiruna að dreifast.“
Hann segir mikilvægt að bregðast
við stöðunni. Að öðrum kosti muni
heilbrigðiskerfið lenda í mjög mikl-
um vandræðum.
„Jafnvel þó að Covid væri ekki að
dreifa sér þá er spítalinn með of fá
sjúkrarúm miðað við þörfina í sam-
félaginu. Ef ekkert er gert hvað ger-
ist þá? Fólk þarf bara að gera það
upp við sig. Það er ekki pláss fyrir
120 til viðbótar.“
Komið út um allt
Að sögn Más hafa eins og áður
sagði að minnsta kosti 160 Ómíkron-
smit verið staðfest og var stór hluti
þeirra meðal einstaklinga utan
sóttkvíar við greiningu.
„Þetta segir mér að Ómíkron er
örugglega komið út um allt í sam-
félaginu. Það er það sem er að reka
þetta áfram – veldisvöxtinn.“
Heilbrigðisráðherra Willum beið í
gær eftir minnisblaði frá Þórólfi.
Búast megi við
600 smitum á
dag á næstunni
- Minnisblað ekki borist í gærkvöldi
Már
Kristjánsson Morgunblaðið/Eggert