Morgunblaðið - 20.12.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.12.2021, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Viðar Ingi Pétursson Sími: 569 1109 vip@mbl.is Heilsa &útivist –– Meira fyrir lesendur Nú er tíminn til að huga að betri heilsu og bættum lífstíl. Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir fimmtudaginn 23. desember. fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. janúar SÉRBLAÐ Er hugsanlegt að það sé tenging milli aukins nýgengis krabbameins og af- lagðrar herstöðvar í Miðnesheiði? Fyrrver- andi þingmaður, Sig- ríður Jóhannsdóttir úr Keflavík, mælti þessi orð á Alþingi árið 1999: „Okkur ber því að gæta hagsmuna þegna okkar, krefjast þess að þessi mál verði rannsökuð og viðeigandi ráð- stafanir gerðar til úrbóta. Á und- anförnum árum hafa verið dregin fram í dagsljósið fjölmörg meng- unarslys sem orðið hafa í nágrenni herstöðva víða um heim frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Vegna fá- kunnáttu voru menn lengi vel ekki á varðbergi og með ýmsu móti, jafnvel af ásetningi, fóru niður í jarðveg efni eins og afísingarefni, ýmiss konar hreinsiefni svo sem hið stór- hættulega leysiefni tríklóretýlen, TCE, hið baneitraða PCE, úrgangs- olíur, slökkviefni, rafgeymaleifar (blý og sýra), spennaolía, sem stund- um innihélt PCB, málningarleifar, málmhúðunarleifar, þotueldsneyti og ýmislegt annað miður geðslegt. Áður fyrr vildu menn umfram allt skjótvirk efni en voru ekki alltaf meðvitaðir um skaðsemi þeirra.“ Það má segja að þarna hafi fyrsta neyðarópið frá þingmanni kjördæm- isins komið innan veggja alþingis, en svo gerist það 9. desember sl. að sjö þingmenn Suðurkjördæmis leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að farið verði í að rannsaka þessa hluti, sem er vel, en þá hljóta að vakna spurningar eins og: Hvað hefur breyst? Kann skýringin að liggja í nýlegum opinberum rann- sóknum á tíðni nýgengis krabba- meins á Suðurnesjum, en rann- sóknir benda til þess að Suðurnesjamenn séu með mjög há- ar, hugsanlega hæstu, tölur nýgeng- is krabbameins á landinu öllu. Nú hljóta íbúar að spyrja: Kann ástæðan að liggja í nálægð við varn- arsvæðið? Er hugsanleg tenging milli hás hlutfalls krabbameins og mengunar á gamla varnarsvæðinu, er það skýringin? Hvaða afsökun hafa stjórnvöld eða heimamenn fyrir því að ekki var farið af stað strax í að fá óháða hlutlausa rannsókn á svæðinu, gerða af verktökum sem hafa engra hagsmuna að gæta? Þannig voru hlutirnir unnir í Þýska- landi, en hér á landi var fenginn bandarískur verktaki til að rann- saka svæðið með aðstoð starfs- manna heilbrigðiseftirlits Suð- urnesja. Kæru bæjarbúar. Með fullri virð- ingu hef ég mínar efasemdir um slíka rannsókn, mér er líka spurn: Var eitthvað annað sem hékk á spýt- unni en að tryggja lífsgæði íbúa í og við gömlu varnarstöðina eftir að varnarliðið fór með skömm haustið 2006? Af hverju lá svona mikið á að selja eignirnar og koma þeim til borgaralegra nota í stað þess að gera allsherjarúttekt á svæðinu með tilliti til mengunar og fleiri þátta sem fylgja erlendum her? Fólk spyr sig líka: Gerðu íslensk stjórnvöld einhvern viðauka í viðskiln- aðarsamningi á þann veg að komi mengun í ljós síðar verði hægt að sækja bætur á Bandaríkjamenn? Hvað er það sem menn vilja ekki ræða og af hverju þessi þöggun um þessa hluti? Kann það að vera raunin, sem kemur æ betur í ljós í hárri tíðni krabbameins hér um slóðir? Sem íbúi í Reykjanesbæ og um- hverfissinni kalla ég eftir því að bæjarfulltrúar á Suðurnesjum, þingmenn kjördæmisins og íbúar sameinist um að vinna þetta mál saman og það af fullri hörku, þótt ekki væri nema til að tryggja fram- tíðarbúsetu íbúa í virðingu fyrir þeim sem fallið hafa fyrir krabba- meinsdjöflinum hér suður með sjó. Ágætu bæjarbúar: Köllum eftir öllum opinberum sem öðrum rann- sóknum sem gerðar hafa verið á svæðinu í og við gömlu varnarstöð- ina, allt sem gæti kastað nýju ljósi á hlutina. Útvíkkum rannsóknir okk- ar, það gerum við með því að kalla líka fram áður gerðar rannsóknir þeirra Einars Vals Ingimund- arsonar umhverfisverkfræðings og Árna Hjartarsonar jarðfræðings. Að lokum ætla ég rétt að vona að með skrifum mínum hafi ég náð at- hygli íbúa sem ráðamanna hér á Suðurnesjum með að okkur ber skylda til að fá þessa hluti á hreint. Það gerum við með nýjum, hlut- lausum og óháðum rannsóknum, gerðum af fyrirtækjum og ein- staklingum sem engra hagsmuna eiga að gæta hvað niðurstöðu rann- sókna varðar. Læt hér fylgja hlekk á athyglisverða frétt um það sem er að gerast á aflagðri herstöð Banda- ríkjamanna í Afganistan og hvað Bandaríkjamenn hræðast mest. Greinin minnir óneitanlega á margt sem við fyrrverandi starfsmenn varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli könnumst við, en það eru aflagðir gamlir, opnir ruslahaugar þar sem sorpi var brennt úti undir opnum himni. Þá var víða að finna á gamla varnarsvæðinu meðan á dvöl setu- liðsins stóð frá 1951-2006. https://www.scientificameri- can.com/article/u-s-forces-are- leaving-a-toxic-environmental- legacy-in-afghanistan/?fbclid=Iw- AR3x_QVF3E7Ex2Q7Vy-9ulrpO TeYIB8fDJGbwtHcxOrM3F QndQtp0Mfgejs Stytt slóð: http://mbl.is/go/taura Suðurnesjamenn: Köllum eftir óháð- um og hlutlausum rannsóknum Eftir Sigurjón Hafsteinsson Sigurjón Hafsteinsson »Er hugsanlegt að það sé tenging milli aukins nýgengis krabbameins og af- lagðrar herstöðvar í Miðnesheiði? Höfundur er íbúi í Reykjanesbæ. molikarlinn@simnet.is Áður hefur komið fram hér í blaðinu að þjóðkirkjan hefur komið sér upp sér- stöku kirkjumáli. Margir muna það efa- laust að hjá sumum kirkjudeildum tíðk- uðust eða tíðkast enn forn kirkjumál eins og latína í Róm- arkirkjunni og kirkju- slavneska í rétttrúnaðarkirkjunni. Mál þjóðkirkjunnar er hins vegar ekki fornt heldur nýsmíði og veit ég ekki um önnur dæmi slíks. Í byrjun var það látið heita „málfar beggja kynja“ eins og í jafnrétt- isstefnu kirkjunnar frá 1998 og til þess vísað þegar stefnan var upp- færð fyrir árin 2011 og 2012 og í framkvæmdaáætlun fyrir árin 2015 til 2017. Skilgreiningu var ekki að finna á þessu máli en þó var í skjalinu ein vísbending nán- ast eins og í ratleik: „Leitast skal við að nota nýjustu þýðingu Bibl- íunnar í öllu starfi kirkjunnar.“ Leitarmenn lenda þó þar í blind- götu enda á þetta nýja kirkjumál sér enga stoð í þýðingunni frá árinu 2007. Segir svo á heimasíðu biblíufélagsins: „Í fyrsta sinn er reynt að koma hér á málfari beggja kynja. Oftast var t.d. for- nafninu „þeir“ í Gamla testament- inu breytt í hvorugkyn, ef fullljóst var að um blandaðan hóp var að ræða, annars ekki.“ Í jafnrétt- isstefnu 2019 er miðað við að kyn- in séu þrjú en ekki tvö og er því vísað til „málfars allra kynja“. Nánari skilgreiningu á slíku mál- fari er heldur ekki að finna þar. Í framkvæmdaáætlun áranna 2019 til 2023 er vísað til þessa nýja kirkjumáls en það er ekki skil- greint þar. Segir þar að halda skuli námskeið fyrir presta, djákna og starfsfólk safnaða um „málfar allra kynja“. Þá verði handbók kirkjunnar gerð rafræn og reglulega uppfærð með tilliti til „málfars allra kynja“. Einnig segir að höfðað skuli til allra kynja í út- gefnu efni kirkjunnar og þeir sem boði og fræði skuli huga að ábyrgð sinni í þessu efni. Loks segir að breyta skuli skráning- arformum, prests- þjónustubókum o.fl. í sömu veru. Þótt enga viðunandi skilgreiningu á þessu nýja kirkjumáli sé að finna í kirkjulegum gerðum má ráða helstu einkenni þess af því máli sem nú tíðkast víða við kirkjulegar athafnir þótt því fari fjarri að þar sé allt einhlítt eins og rakið verður. Í því er hvor- ugkyn fleirtölu látið vera almennt, hlutlaust kyn í stað karlkynsins eins og verið hefur í íslensku. Þá er það annað einkenni þessa máls að samband kyns og tölu í setn- ingum er rofið. Til dæmis er per- sónufornafnið þau látið vísa til karlkyns og hvorugkyns nafnorða sem merkja hóp fólks en þó ekki ef um kvenkyns nafnorð er að ræða, að því er virðist. Þetta nýja mál mun vera byggt á þeirri hug- mynd að málfræðikyn og lífkyn séu nánast eitt og hið sama og að íslenska sé „karllæg“ tunga. Hér í blaðinu hafa birst nokkrar greinar þar sem sýnt hefur verið fram á að þessi hugmynd er alröng, að jafnréttishugsunin, sem hún bygg- ist á, falli þannig um sjálfa sig, að þetta nýja kirkjumál brjóti gegn máltilfinningu alls þorra fólks og loks að málfar af þessu tagi sé til þess fallið að valda skaða á miklu beygingamáli eins og íslenska er. Birtist ein þessara greina 22. júlí sl. undir heitinu „Nýlenska Rík- isútvarpsins“. Á fyrsta sunnudegi í aðventu var útvarpað messu og predikun biskups Íslands úr Hallgríms- kirkju. Eins og vænta mátti var mörgu brýnu og göfugu efni hreyft í þeirri ræðu en hún var flutt á hinu nýja kirkjumáli. Meðal þess sem biskup vék að voru alls- nægtir fólks og tvisvar vísaði hann til fólks með pfn. þau. Þá gerði hann að umtalsefni aðstoð við fólk sem býr við kröpp kjör en nú var pfn. það látið vísa til fólksins eins og tíðkast mun hafa í kirkjunni al- veg frá kristnitöku. Þegar þar var komið í ræðunni að sagt var frá lýðnum sem hrópaði „krossfestið hann!“ var vísað til lýðsins með pfn. þau. Biskup vék svo aftur að bágstöddu fólki en nú var ekki annað að heyra en að hið forna kirkjumál leitaði aftur á huga hans og vísaði hann til fólksins með for- nafninu það. Loks er að nefna fagnandi fólk sem ýmist var vísað til með pfn. þau eða þá að nafn- orðið var látið taka með sér sögn í eintölu að fornum hætti. Fleira merkilegt mætti til tína. Á þriðja sunnudegi í aðventu var útvarpað kaþólskri messu úr Dómkirkju Krists konungs. Heyra mátti prest flytja hana með út- lendum málhreim sem vitaskuld er ekkert við að athuga. Predikun hans og mál allt var flutt á óað- finnanlegu og rétt beygðu máli. Hann veit, eins og aðrir lands- menn, að kristni og tunga hafa hér ávallt átt samleið. Var fagnaðar- erindið flutt á íslensku frá fyrstu stundu og kirkjan leiddi íslenska tungu til öndvegis með því að gera hana að ritmáli. Hefur kirkjan ásamt mæðrum þessa lands öðrum fremur varðveitt íslenskt mál lítt breytt fram á okkar tíma og gert okkur kleift að lesa texta frá upp- hafi ritaldar í landinu. Raunalegt er að þjóðkirkjan skuli hafa ratað í þessar ógöngur. Hér munu áhrif frá Kvennakirkj- unni og flumbrugangur kirkju- þingsmanna hafa ráðið. Ekki hefur einu sinni verið reynt að skilgreina þetta nýja kirkjumál en reyndar verður ekki séð að neitt vit geti orðið í slíkri skilgreiningu. Hefur kirkjuþing því dæmt biskup, aðra kennimenn og messuþjóna til þeirrar hneisu og vafalaust skap- raunar að skripla á þessari illu skötu. Tvær messur Eftir Pétur Guðgeirsson »Hefur kirkjuþing því dæmt biskup, aðra kennimenn og messu- þjóna til þeirrar hneisu og vafalaust skapraunar að skripla á þessari illu skötu. Pétur Guðgeirsson Höfundur er fv. héraðsdómari. petrus@visir.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.