Morgunblaðið - 20.12.2021, Síða 27
ton. Mohemmed ben Sulayem, nýr
forseti FIA, segir það ekki útilokað að
Hamilton muni sæta einhvers konar
refsingu fyrir að mæta ekki á verð-
launahátíðina, sem Wolff gerði ekki
heldur.
_ Suður-Ameríkuþjóðirnar tíu verða
þátttakendur í Þjóðadeild UEFA í
karlaflokki í fótbolta frá og með árinu
2024, samkvæmt varaforseta Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA, Pól-
verjanum Zbigniew Boniek. Hann
staðfesti við pólska netmiðilinn Mec-
zyki að viðræður milli knattspyrnu-
sambanda Evrópu og Suður-Ameríku
um framkvæmd keppninnar væri á
lokastigi. Þegar liggur fyrir að Evr-
ópumeistarar Ítalíu og Suður-
Ameríkumeistarar Argentínu mætast í
London 1. júlí
2022 í nokk-
urs konar
meist-
arakeppni
heimsálfanna
tveggja.
_ Pólski
markahrók-
urinn Robert Lewandowski hirti ann-
að áratuga gamalt met af þýsku goð-
sögninni Gerd Müller þegar hann
skoraði eitt marka Bayern München í
4:0 sigri á Wolfsburg í þýsku 1. deild-
inni í knattspyrnu.
Lewandowski skoraði sitt 43. deild-
armark og bætti þannig met Müllers
yfir flest mörk skoruð í þýsku deild-
inni á einu almanaksári
_ Kyrie Irving, ein af stórstjörnum
Brooklyn Nets í NBA-deildinni í
körfuknattleik, mun snúa aftur á
körfuboltavöllinn á nýju ári eftir að
hafa verið útilokaður frá æfingum og
keppni á tímabilinu til þessa vegna
þess að hann vill ekki þiggja bólu-
setningu við kórónuveirunni. ESPN
greindi hins vegar frá því um helgina
að vegna mikils leikjaálags og
meiðsla innan leikmannahópsins
undanfarið hafi Brooklyn ákveðið að
leyfa Irving að taka þátt í tilteknum
útileikjum þar sem ekki er gerð krafa
um að hann sé bólusettur. Vegna
strangra sóttvarnaregla í New York,
þar sem Brooklyn er til húsa, má
óbólusettur Irving ekki spila leiki þar
og það sama gildir um Toronto, þar
sem slíkar reglur eru einnig í gildi
_ Thiago, miðju-
maður enska
knattspyrnuliðs-
ins Liverpool, var
ekki í leik-
mannahópi liðsins
gegn Tottenham
Hotspur í gær
vegna gruns um
að hann sé smit-
aður af kórónuveirunni í annað sinn.
Eftir að hafa gengist undir hraðpróf
fékkst jákvæð niðurstaða og er hann
því kominn í einangrun. Nú er beðið
niðurstöðu úr einkennasýnatöku, PCR-
prófi, til þess að ganga úr skugga um
hvort hann sé í raun og sann smitaður.
Frá þessu er greint á heimasíðu Liver-
pool en Thiago smitaðist einnig af veir-
unni á síðasta tímabili.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021
1. deild kvenna
Snæfell – ÍR .......................................... 72:62
Vestri – Ármann ................................... 50:83
Tindastóll – Fjölnir b ........................... 85:78
KR – Þór Ak.......................................... 73:67
Staðan:
ÍR 10 8 2 759:599 16
Ármann 10 8 2 828:632 16
KR 10 7 3 754:696 14
Þór Ak. 10 6 4 722:644 12
Aþena/UMFK 10 5 5 699:725 10
Hamar/Þór 10 5 5 724:707 10
Snæfell 10 5 5 745:735 10
Stjarnan 10 4 6 674:701 8
Tindastóll 10 4 6 752:782 8
Fjölnir b 10 2 8 586:764 4
Vestri 10 1 9 575:833 2
Spánn
Valencia – Breogan............................. 97:98
- Martin Hermannsson skoraði 19 stig og
gaf 3 stoðsendingar fyrir Valencia.
Andorra – Zaragoza ........................... 83:92
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 14 stig
og tók 4 fráköst.
Belgía/Holland
Antwerp Giants – Leuven Bears ....... 68:88
- Elvar Már Friðriksson skoraði 15 stig og
gaf 6 stoðsendingar fyrir Antwerp.
Landstede Hammers – Yoast............. 88:71
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor-
aði 10 stig fyrir Landstede og tók 2 fráköst.
Hague Royals – Amsterdam ............ 70:103
- Snorri Vignisson skoraði 11 stig og tók 7
fráköst fyrir Hague.
Ítalía
Virtus Bologna – Fortitudo Bologna 76:70
- Jón Axel Guðmundsson skoraði 2 stig og
tók 2 fráköst.
Rúmenía
Phoenix Constanta – Alexandria ...... 52:58
- Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 2 stig,
tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar fyrir
Constanta.
4"5'*2)0-#
Grill 66-deild karla
Þór – Hörður......................................... 31:30
Afturelding U – ÍR............................... 25:36
Valur U – Vængir Júpíters.................. 39:26
Fjölnir – Haukar U .............................. 29:26
Kórdrengir – Berserkir ....................... 25:19
Staðan:
ÍR 10 9 0 1 362:284 18
Hörður 10 8 0 2 340:283 16
Fjölnir 10 7 0 3 307:293 14
Þór 10 7 0 3 292:275 14
Selfoss U 9 6 0 3 270:258 12
Haukar U 8 4 0 4 218:207 8
Valur U 9 3 1 5 272:261 7
Afturelding U 10 3 1 6 259:291 7
Kórdrengir 8 3 0 5 217:225 6
Vængir Júpíters
10 1 0 9 242:318 2
Berserkir 10 0 0 10 241:325 0
Grill 66 deild kvenna
ÍBV U – FH .......................................... 21:28
Selfoss – Valur U.................................. 38:32
Staðan:
ÍR 10 8 1 1 252:208 17
Selfoss 10 7 1 2 292:258 15
FH 10 6 2 2 254:211 14
Fram U 10 5 0 5 276:274 10
Grótta 9 5 0 4 223:209 10
Valur U 10 4 1 5 269:278 9
HK U 10 4 1 5 265:258 9
Stjarnan U 10 4 0 6 253:299 8
Víkingur 10 4 0 6 235:259 8
ÍBV U 9 3 0 6 213:215 6
Fjölnir/Fylkir 10 1 0 9 210:273 2
Þýskaland
RN Löwen – N-Lübbecke ................... 36:25
- Ýmir Gíslason skoraði ekki fyrir Löwen.
Göppingen – Füchse Berlín................ 24:31
- Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk
fyrir Göppingen.
Melsungen – Erlangen........................ 30:28
- Elvar Örn Jónsson skoraði 1 mark fyrir
Melsungen, Arnar Freyr Arnarsson 1 en
Alexander Petersson skoraði ekki.
Balingen – Flensburg ......................... 23:23
- Daníel Ingason skoraði ekki fyrir Bal-
ingen og Oddur Gretarsson er meiddur.
- Teitur Örn Einarsson skoraði 2 mörk
fyrir Flensburg.
B-deild:
Rimpar – Gummersbach .................... 28:25
- Óðinn Ríkharðsson skoraði 3 mörk fyrir
Gummersbach, Elliði Snær Viðarsson 1 en
Hákon Daði Styrmisson var ekki með. Guð-
jón Valur Sigurðsson þjálfar liðið.
Aue – Dormagen.................................. 28:28
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3
mörk fyrir Aue en Sveinbjörn Pétursson
var ekki með.
Danmörk
Kolding – GOG..................................... 26:35
- Ágúst Elí Björgvinsson varði 5 skot í
marki Kolding.
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 2 skot í
marki GOG.
Aalborg – Bjerringbro/Silkeborg .... 30:36
- Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir
Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.
Austurríki
Alpla Hard – Bregenz......................... 27:26
- Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard.
%$.62)0-#
ENGLAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Meistararnir í Manchester City eru
með þriggja stiga forskot í toppsæti
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu en efstu fjögur liðin lék öll um
helgina þrátt fyrir allt.
Manchester City vann öruggan sig-
ur á Newcastle United 4:0 í New-
castle og setti í leiðinni met. Hefur lið-
ið unnið þrjátíu og fjóra leiki í
deildinni á sama árinu og sló met sem
Liverpool hefur átt frá árinu 1982.
Manchester City hefur unnið átján
leiki á útivelli á árinu 2021 og er það
einnig met í efstu deild á Englandi.
Rúben Dias, Joao Cancelo, RIyad
Mahrez og Raheem Sterling skoruðu
mörkin fyrir City sem er með 44 stig.
Stigi munaði á City og Liverpool fyrir
leikina í gær en Liverpool gerði 2:2
jafntefli gegn Tottenham Hotspur í
London eftir fjörugan leik. Diogo Jota
og Andrew Robertson skoruðu mörk
Liverpool en Robertson er á leið í
leikbann því hann fékk rauða spjaldið
á 76. mínútu. Þau tíðindi urðu í leikn-
um að enski landsliðsmiðherjinn
Harry Kane skoraði fyrir Tottenham
og hefur þá skorað tvívegis í deildinni
á tímabilinu Heung-Min Son skoraði
einnig og jafnaði þá 2:2 á 74. mínútu.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, var ekki sérlega ánægður
að leiknum loknum. Sjónvarpsmaður
Sky Sports spurði hvort leikurinn
hafi verið frábær á heildina litið tók
Klopp ekki undir það og sagðist hafa
upplifað leikinn frekar sem barning.
Þegar talið barst að dómgæslunni
sagði hann eðlilegt að Robertson hafi
verið rekinn út af. Tæklingin hafi
„ekki verið sú gáfulegasta á hans
ferli“. En Klopp sagði jafnframt að
Harry Kane hefði átt skilið að fá
rautt spjald fyrir tæklingu á 20. mín-
útu. Klopp benti á að VAR hefði ekki
verið notað í því tilfelli né þegar Liv-
erpool vildi fá víti í leiknum. Þessi at-
vik skipti miklu máli en ekki sé slæmt
að gera jafntefli gegn Tottenham á
útivelli.
Chelsea sýnir veikleikamerki
Chelsea hefur lent í erfiðleikum
með að ná í þrjú stig að undanförnu
og gerði markalaust jafntefli gegn
Wolves á útivelli í gær. Chelsea hefur
sýnt veikleikamerki að undanförnu.
Liðið missti niður 3:2 í 3:2 gegn Zenit
í Meistaradeildinni. Fyrir rúmri viku
var liðið 2:1 yfir á heimavelli gegn
Leeds og missti það niður í 2:2.
Chelsea náði þó í þrjú stig eftir mark
úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Á
fimmtudagskvöldið missti Chelsea
svo niður 1:0 í 1:1 gegn slöku liði
Everton sem fékk varla marktæki-
færi í leiknum.
Í norðurhluta Lundúna hefur Ars-
enal hins vegar tekið vel við sér. Eftir
að hafa tapað sex leikjum í deildinni
er Arsenal samt í fjórða sæti deild-
arinnar eftir flotta rispu. Arsenal
vann Leeds 4:1 á útivelli á laugardag
og í síðustu viku vann Arsenal spút-
níklið West Ham. Gabriel Martinelli
skoraði tvö mörk gegn Leeds og
Bukayo Saka og Emile Smith Rowe
sitt hvort markið. Raphinha skoraði
fyrir Leeds sem hefur aðeins unnið
þrjá leiki í deildinni. Eins og mörg
dæmi eru um getur annað tímabilið í
efstu deild reynst liðum erfitt og
Leeds þarf að gera betur til að lenda
ekki í alvarlegri fallhættu.
„Ég er svo ánægður og hefur spil-
að fimm síðustu leiki. Ég reyni að
gera mitt besta innan vallar sem ut-
an,“ sagði hinn tvítugi Martinelli sem
kom til Arsenal frá Ltuano í Brasilíu
árið 2019. Hann er einn þeirra leik-
manna sem hagnast nú á fjarveru
fyrirliðans, Pierre-Emericks Auba-
meyang, sem er í agabanni.
Forskot City jókst örlítið
- Liverpool og Chelsea gerðu jafntefli
- Arsenal í fínum málum án fyrirliðans
AFP
Í Newcastle Riyad Mahrez fagnar marki sínu fyrir Man City.
Forráðamenn ensku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu funda með
öllum félögum deildarinnar í dag til
að ræða hvað taka skuli til bragðs
vegna þeirrar holskeflu kór-
ónuveirusmita sem nú herja á leik-
menn og starfsmenn félaganna.
Undanfarna viku hefur úrvals-
deildin þurft að fresta alls tíu leikj-
um, þar af sex nú um helgina.
The Athletic greindi frá því í gær
að efni fundarins muni snúast um
mögulega frestun á 20. umferðinni
sem á að fara fram 28., 29. og 30.
desember.
Ekki verður rædd möguleg frest-
un á leikjum á annan í jólum sam-
kvæmt fréttinni. Þá á heil umferð
að fara fram og er mikil hefð fyrir
því. Englendingar hafa átt því að
venjast á annan í jólum sé leikin
knattspyrna. Líklega þyrfti miklar
hamfarir þyrfti til að breyta þeim
venjum.
AFP
London Þétt var setið á leik Tottenham og Liverpool í gær.
Fundahöld í dag
vegna veirunnar
Landsliðsmaðurinn Albert Guð-
mundsson lét mjög að sér kveða
þegar AZ Alkmaar vann 4:1-
heimasigur á Willem II í hollensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu á
laugardagskvöldið.
Albert byrjaði reyndar á vara-
mannabekknum hjá AZ Alkmaar en
lét heldur betur vita af sér þegar
tækifæri gafst. Albert kom inn á
sem varamaður á 61. mínútu og 13
mínútum síðar hafði hann náð í víti.
Íslendingurinn skaut í stöngina í
vítinu en boltinn fór í markvörðinn
og í netið. Er markið skráð sem
sjálfsmark. Albert skoraði hins veg-
ar mark á 86. mínútu og annað til á
89. mínútu og þar við sat.
Albert var því ansi nálægt því að
skora þrennu í leik í efstu deild í
Hollandi. Albert og samherjar hans
eru í sjötta sæti deildarinnar með
29 stig eftir 17 leiki.
Á skotskónum í Tyrklandi
Leikjahæsti leikmaður íslenska
landsliðsins frá upphafi, Birkir
Bjarnason, skoraði í tyrknesku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu á laug-
ardaginn. Birkir var í byrjunarliði
Adama Demirspor og hann skoraði
þriðja mark liðsins á 51. mínútu
þegar liðið vann Alanyaspor 3:1 á
útivelli. Ítalinn skrautlegi Mario
Balotelli gerði annað markið á 53.
mínútu.
Adana Demirspor, sem er nýliði í
deildinni, er í 7. sæti deildarinnar
með 26 stig eftir 17 leiki.
Byrjaði út af en var
nálægt þrennunni
Ljósmynd/Alex Nicodim
Öflugur Albert Guðmundsson lét
mjög að sér kveða í Hollandi.