Morgunblaðið - 20.12.2021, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021
R
agnheiður Eyjólfsdóttir
hefur vakið nokkra at-
hygli og hlotið verðlaun
fyrir bækur sínar en hún
var m.a. tilnefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna fyrir síðustu
bók sína Rotturnar. Nýjasta bók
hennar, miSter einSam, fjallar um
Samma og vini hans sem lenda í
nokkrum svaðilförum í sumar-
bústað efnaðs föður hans sem lýst
er sem einum umdeildasta manni
Íslands. Sammi hefur náð nokkrum
árangri á samfélagsmiðlum þar sem
hann birtir myndbönd undir leyni-
nafninu miSter einSam og nýtur
sem slíkur nokkurra vinsælda.
Sammi er skilnaðarbarn foreldra
sem eru vel búin efnislegum gæð-
um og hann hefur aðgang að öllu
því sem því fylgir, m.a. glæsibústað
í eigu föður hans og stjúpu. Þegar
einn vinanna hverfur fyrirvaralaust
úr bústaðnum fer í gang atburðarás
þar sem spennan magnast stig af
stigi.
Sagan fer fremur hægt af stað
þar sem lýst er nokkuð innihalds-
litlum samskiptum ungmenna sem
eru að reyna að ganga í augu hvert
annars en það hefur þó tilgang fyr-
ir lesandann sem
áttar sig vel á
bakgrunni þeirra
og samskipta-
mynstri. Miðað
við upplifun mína
af samskiptum
fólks á þessum
aldri virðist höf-
undur ná þessu
ágætlega og ekki ólíklegt að ung-
menni á þessum aldri tengi vel við
persónusköpun sögunnar.
Þrátt fyrir að sagan fari rólega af
stað nær höfundur þó að byggja
upp áhugaverða og heilsteypta at-
burðarás sem er ekki fyrirsjáanleg
og á köflum spennandi. Söguþráð-
urinn er nokkuð trúverðugur og
endaspilið áhugavert.
Þar sem um er að ræða spennu-
sögu með óvæntum endi er ekki
rétt að fara mikið frekar yfir inni-
hald bókarinnar en auk þess að
byggja upp ágæta spennu er fléttuð
inn falleg ástarsaga aðalpersónanna
og því ágætlega lýst hve ástin er
blind og lævís og erfið viðureignar
fyrir ungar og óharðnaðar sálir.
Það vekur sérstaka eftirtekt að
faðir aðalpersónunnar mun vera ein
umdeildasta manneskja landsins.
Miðað við lýsingar gæti lesandi
haldið að viðkomandi væri ofarlega
í fæðukeðju afbrotamanna og dett-
ur manni þá helst í hug fíkniefna-
innflytjandi. Fær það í raun byr
undir báða vængi með ættarnafni
því sem fjölskyldan ber en með ör-
litlu stafarugli er þar komið fram
ættarnafn eins af annáluðustu fíkni-
efnasölum landsins á síðustu öld.
Það er hugsanlega tímanna tákn að
sú er alls ekki raunin heldur eru
viðskiptamenn og lögfræðingar
meðal umdeildustu manna landsins
í sögunni.
miSter einSam er ágætlega skrif-
uð bók sem ætti að ná vel til þess
lesendahóps sem hún er skrifuð
fyrir og er skemmtileg og spenn-
andi á margan hátt. Margt í sög-
unni er fremur ógnvekjandi en fyrir
kynslóð sem alin er upp á tímum
World of Warcraft og Squid Game
ætti það alls ekki að koma að sök.
Spennan magnast stig af stigi …
Morgunblaðið/Eggert
Ragnheiður „…auk þess að byggja upp ágæta spennu er fléttuð inn falleg
ástarsaga aðalpersónanna,“ segir gagnrýnandinn um miSter einSam.
Ungmennabók
miSter einSam bbbmn
Eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur.
Vaka-Helgafell, 251 bls. innb.
PÁLL EGILL
WINKEL
BÆKUR
N
ú er nóg komið! er sjálf-
stætt framhald af bók-
inni Hingað og ekki
lengra! sem kom út í
fyrra. Þær stöllur Þórdís Gísla-
dóttir og Hildur Knútsdóttir halda
áfram samstarfi sínu en þetta er
fjórða bókin sem þær skrifa sam-
an. Aðalsögupersónur bókarinnar
eru sem fyrr vinkonurnar Vigdís
Fríða, Rebekka og Geirlaug sem
eru hressar og skemmtilegar
stelpur í 8. bekk. Það er aldrei
lognmolla í kringum þríeykið og í
þessari bók glíma þær áfram við
ýmis samfélagsmál ekki síður en
samskipti í fjölskyldunum, þó aðal-
lega við foreldra Vigdísar Fríðu og
bróður hennar Andra Sæs.
Sagan hefst á upprifjun á ævin-
týrum þeirra úr fyrri bókinni sem
kemur sér vel fyrir þá sem ekki
hafa lesið þá bók. Nú er skollinn á
heimsfaraldur en á sama tíma er
Vigdís Fríða að
lesa bókina um
Önnu Frank í
skólanum og fær
það verkefni að
skrifa dagbók
eins og Anna
gerði sem gæti
verið merkileg
heimild í fram-
tíðinni. Vigdís
byrjar að skrifa
söguna 20. febrúar og er síðasta
dagbókarfærslan 21. apríl. Á þess-
um tíma reið fyrsta bylgja Covid-
faraldursins yfir heimsbyggðina og
hefur hún mikil áhrif á söguþráð-
inn. Vigdís Fríða og vinkonur
hennar þurfa að glíma við vanda-
mál sem koma upp eins og lokun
skólans og veikindi vina. Þær tak-
ast á við það eins og þeim einum
er lagið. Vandamálin eru til að
leysa þau en lausn þeirra er oft
einfaldari í orðum en í fram-
kvæmd. Börn og unglingar sjá oft
lífið í svarthvítu og eru þær vin-
konur engin undantekning. Þær
vaða í vandamálin og gera það
sem þeim finnst það eina rétta í
stöðunni þegar vinur þeirra og
sjoppueigandinn Tómas Tristan
veikist. Þær taka yfir rekstur
sjoppunnar og finna sínar eigin
leiðir til að auka viðskiptin, leiðir
sem síðar kemur í ljós að voru
kannski ekki svo góðar.
Bókin er lipurlega skrifuð og
rennur glettinn textinn mjúklega
áfram. Höfundar leitast við að
taka á samfélagsvandamálum eins
og heimsfaraldri og umhverfis-
málum sem og vandamálum ung-
linga á hispurslausan og skemmti-
legan hátt og húmorinn er aldrei
langt undan. Letrið er gott og
kaflarnir stuttir og ætti bókin því
að henta börnum á aldrinum 9 til
13 ára. Bókin er myndlýst með
látlausum en skemmtilegum
myndum Helgu Valdísar Árna-
dóttur.
Vaðið í vandamálin
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Höfundarnir „Bókin er lipurlega skrifuð og rennur glettinn textinn mjúk-
lega áfram,“ segir um bók Hildar Knútsdóttur og Þórdísar Gísladóttur.
Barnabók
Nú er nóg komið! bbbnn
Eftir Hildi Knútsdóttur og
Þórdísi Gísladóttur.
JPV 2021, 128 bls. innbundin.
RÓSA
HARÐARDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon