Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
595 1000
Jólagjafabréf Heimsferða komin í sölu!
10.000 og færð 15.000
20.000 og færð 30.000
40.000 og færð 60.000
Gefðu góðar minningar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Auðvitað er maður pirraður yfir
þessu en við erum alla vega með op-
ið og með snjó og þá er maður í
skýjunum að fá að geta fengið fólk
til sín í fjallið í stað þess að hanga
hérna einn og bora í nefið,“ segir
Einar Bjarnason, rekstrarstjóri
Bláfjalla. Hann segist vera dauð-
feginn að fá að hafa skíðasvæðið
opið í ljósi nýrra sóttvarnaaðgerða.
Um sjö þúsund manns voru á skíða-
svæðinu í ár á þeirra stærsta degi
og miðað við það má skíðasvæðið
því taka við helmingi þess fjölda.
Einar segir þó skíðavæðið ekki sjá
ástæðu til að taka á móti þeim
fjölda og að á sama tíma í fyrra hafi
verið um eitt þúsund manns á dag.
„Grímuskylda er í röðum og inn á
klósettin og við sótthreinsum
diskana á lyftunum á kvöldin og
sætin í stólalyftunum.“
rebekka@mbl.is
Skíðað í Bláfjöllum þrátt fyrir takmarkanir
Dauðfeg-
inn að fá að
hafa opið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Síðdegis 21. desember hófst hrina
smáskjálfta norðaustur af Geldinga-
dölum. Ríkislögreglustjóri lýsti yfir
í samráði við lögreglustjórann á
Suðurnesjum óvissustigi almanna-
varna vegna skjálftanna. Í gær-
kvöldi höfðu mælst um 1.250 jarð-
skjálftar á tveimur sólarhringum og
þar af voru 35 stærri en 3. Þá
breytti Veðurstofan fluglitakóða í
appelsínugulan í en við það er eld-
stöð sögð sýna aukna virkni og vax-
andi líkur á eldgosi.
„Þetta heldur spennunni gang-
andi,“ segir Þorvaldur Þórðarson,
eldfjallafræðingur við Háskóla Ís-
lands. Hann segir ekki hægt að
segja til um hvort eldgos muni hefj-
ast á þessu stigi en kvikusöfnin er á
sex til sjö kílómetra dýpi og að hún
orsaki að öllum líkindum skjálfta-
virknina „Ég á von á því að kvikan
hafi verið að safnast þar fyrir und-
anfarna þrjá mánuði í rólegheitun-
um, ef það heldur áfram þá vænt-
anlega endar það í gosi,“ segir
Þorvaldur og bætir við að það geti
tekið einhvern tíma.
Lint og gaddfreðið smjör
Hann segir að dýpið á kvikunni sé
í sjálfu sér ekki mikið og að ástæða
þess að kvikan safnist nú á þessu
dýpi sé að þar séu skil svokallaðrar
deig skorpu og stökkrar skorpu.
„Deig skorpan er svona eins og lint
smjör en stökka skorpan er eins og
gaddfreðið smjör. Mörkin á milli
þessa tveggja getur oft orðið til þess
að það myndist þröskuldur fyrir
kvikuna vegna þess að hún er ekki
nægilega létt.“
En þarf kvikan ekki að leita eitt-
hvert?
„Ef flæðið að neðan heldur áfram
og ef yfirþrýstingurinn er nægilega
mikill til að opna leið fyrir kvikuna
til yfirborðs þá verður gos en ef
hann nær ekki því stigi þá verður
ekki gos heldur innskot á einhverju
dýpi. Við vitum ekki hvort verður
eins og er.“
Nýtt eldgos
Þrír mánuðir eru síðan síðast sást
hraunflæði úr gígnum við Fagra-
dalsfjall og hafði goshrinan þá staðið
yfir í sex mánuði. Þorvaldur segir að
ef gos myndi hefjast að nýju yrði að
öllum líkindum talað um nýjan at-
burð. „Það er þó alveg þekkt í sög-
unni að eldgos hafa stoppað í nokkra
mánuði, til dæmis Kröflueldar, þetta
er bara skilgreiningaratriði. Nátt-
úrunni er í sjálfu sér alveg sama ef
við köllum þetta eitt gos eða tvö
gos,“ segir hann.
Suðurstrandarvegur í hættu
Þorvaldur segist ekki reikna með
að nýtt kvikurennsli yrði meiri en
áður hefur sést. Hann segir því að
Grindvíkingar geti setið nokkuð ró-
legir eins og staðan er í dag vegna
eldgoss. „Það sem veldur manni
mestu hugarangri varðandi þetta er
að skjálftahrinan er að teygja sig að-
eins sunnar en hún hefur gert áður,
ef það er einhver vísbending á hvar
kvikan gæti komið upp þá gæti Suð-
urstrandarvegurinn verið í verulegri
hættu.“
Kvikusöfnun heldur mönnum á tánum
Ný skjálftahrina á Reykjanesskaga
Lo
ft
m
yn
d
ir
eh
f.
Grindavík
Keilir
Krýsuvík
Fagradals-
fjall
4,9
4,0
4,2
4,1
Skjálftar í gær
3,5 og stærri
Kl. Stærð
Kl. 17:14 3,5
Kl. 13:31 3,8
Kl. 09:59 4,0
Kl. 09:23 4,9
Kl. 09:13 4,1
Kl. 07:53 3,5
Kl. 04:55 3,8
Kl. 04:24 4,2
Kl. 02:51 3,8
- 1.250 jarðskjálftar norðaustur af Geldingadölum síðustu tvo sólarhringa - Kvikusöfnun á sex til sjö
kílómetra dýpi - Óvíst hvort og hvenær gjósi - Suðurstrandarvegur gæti verið í verulegri hættu
Hjálpræðisherinn í Reykjavík hefur
aflýst jólaboði sínu á aðfangadag
vegna fjölda Covid-19-smita í sam-
félaginu. Rúmlega 300 gestir og
sjálfboðaliðar höfðu skráð sig í boð-
ið, þar af um 150 börn.
Þeir sem höfðu skráð sig í jólaboð-
ið munu þó geta fengið matarsend-
ingu og jólagjöf frá Hjálpræðis-
hernum. Í kringum 20 sjálfboðaliðar
munu aðstoða við afhendingu pakk-
anna.
„Við sjáum fram á að við getum
afgreitt alla þá sem voru skráðir
með matarpakka og jólagjöfunum
sem voru áætlaðar fyrir hvern og
einn. Við munum reyna að koma
pökkunum til þeirra sem ekki geta
sótt pakkana til okkar,“ segir Hjör-
dís Kristinsdóttir, svæðisforingi og
flokksleiðtogi Hjálpræðishersins í
Reykjavík, í samtali við Morgun-
blaðið. Hjördís segir Hjálpræðisher-
inn hafa fengið mikinn stuðning frá
bæði einstaklingum og fyrirtækjum
vegna þessara breytinga á planinu.
„Við höfum fengið ómetanlegan
stuðning frá bæði einstaklingum og
fyrirtækjum sem hafa brugðist við
þegar þau heyrðu af því að við þyrft-
um að breyta þessu hjá okkur. Við
erum mjög þakklát fyrir það.“
Þrátt fyrir nýjar sóttvarna-
takmarkanir mun Hjálpræðisherinn
enn geta þjónustað þann hóp fólks
sem sækir til þangað hádegismat
daglega. „Við erum alltaf að gefa
rúmlega 100 manns að borða í há-
deginu en það dreifist á tvo tíma og
við náum að dreifa þeim meira um
húsið. Því munum við halda áfram að
þjónusta þennan hóp.“
Fá jólagjafir og matar-
pakka en ekkert jólaboð
- Um 20 sjálfboðaliðar aðstoða - Áfram með hádegismat
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hjálpræðisherinn Hjördís Krist-
insdóttir svæðisforingi.