Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur tekið á leigu
1. hæðina í Ármúla 6 fyrir leikskóla.
Í húsinu hefur verið rekið
skrifstofusetur.
Borgarráð samþykkti á síðasta
fundi sínum leigusamning við Regin
atvinnuhúsnæði ehf. Samkvæmt
honum skal leigusali afhenda
Reykjavíkurborg fullbúið leikskóla-
húsnæði án lauss búnaðar vorið
2022. Um er að ræða leigu á 766,7
fermetra húsnæði á 1. hæð í Ármúla
6. Leigutími er til 15 ára frá afhend-
ingu húsnæðisins. Leigugjaldið er
3.058.734 kr. á mánuði.
Skortur á leikskólaplássum
Fram kemur í greinargerð að
skortur sé á leikskólaplássum í
hverfinu og með þessu úrræði verði
hægt að bregðast við og fjölga leik-
skólaplássum um 60 með þremur
deildum. Gert er ráð fyrir að leik-
skólarýmið verði rekið með leikskól-
anum Múlaborg, sem er í húsnæði
aftan við Ármúla 4-6. Reykjavíkur-
borg sér um að tengja lóðir saman
og ganga frá leiktækjum og lóð.
Í september sl. samþykkti
Reykjavíkurborg samning við Regin
um leigu á 1.600 fermetra húsnæði í
Ármúla 4 fyrir Barnavernd Reykja-
víkur. Barnaverndin hefur sprengt
utan af sér húsnæðið í Borgartúni
12-14. Því til viðbótar hefur að-
staðan þar verið óboðleg samkvæmt
lýsingum. Leigusamningurinn er til
15 ára og er leigugjaldið 4.623.133
krónur á mánuði.
Í frétt frá Reykjavíkurborg kem-
ur fram að í janúar verði opnaðar
nýjar deildir við leikskólana Gull-
borg í Vesturbæ og Funaborg í
Grafarvogi. Við þessa stækkun
fjölgar um 27 pláss í Gullborg og 24
í nýju húsi við Funaborg.
Þá kemur fram að fyrstu tveir
leikskólar Ævintýraborga eru
komnir til landsins og unnið er að
uppsetningu þeirra, jarðvegsvinnu
og framkvæmdum á lóðum. Innritun
barna hófst fyrir nokkru og liggja
nýjar áætlanir um tímasetningar
opnunar nú fyrir.
Ævintýraborgir eru leikskólar í
færanlegu húsnæði sem hæfa vel
nútímaleikskólastarfi og mæta kröf-
um um góðan aðbúnað barna og
starfsfólks, segir í fréttinni. Til
stendur að setja upp fjóra slíka
skóla í borginni. Munu þeir alls hýsa
340 börn og mæta brýnni þörf fyrir
ný leikskólapláss í Reykjavík. Þrír
þeirra munu taka á móti börnum frá
12 mánaða aldri til sex ára en einn
þeirra, við Vörðuskóla, mun taka við
börnum frá 12 mánaða aldri til
þriggja ára.
Á Ævintýraborg við Eggertsgötu
er nú unnið að frágangi utan- og
innanhúss. Þar er stefnt að því að
leikskólinn verði opnaður í byrjun
febrúar. Á Ævintýraborg við Naut-
hólsveg er búið að samþykkja bygg-
ingarleyfisumsókn og áætlað að
hefja vinnu á svæðinu á þessu ári.
Þar er nú stefnt að því að opna skól-
ann í lok mars eða nokkrum vikum
síðar en áætlað var.
Ævintýraborgir í Vogabyggð og
við Vörðuskóla eru í undirbúningi
og er stefnt að opnun þeirra á vor-
mánuðum komandi árs.
Áætlunin Brúum bilið
Leikskólastjórar Ævintýraborg-
anna eru í góðum samskiptum við
foreldra og forráðamenn barna sem
hafa fengið úthlutuð pláss og halda
þeim vel upplýstum, segir í frétt
borgarinnar.
Öll þessi verkefni tengjast að-
gerðaáætluninni Brúum bilið sem
borgarstjórn samþykkti í nóvember
2018 en hún miðar að því að fjölga
leikskólaplássum svo bjóða megi
börnum leikskólapláss allt frá 12
mánaða aldri fyrir lok árs 2023.
Nýr leikskóli verður í skrifstofusetri
- Reykjavíkurborg hefur tekið á leigu 1. hæðina í Ármúla 6 - Þar verður leikskóli með 60 börnum í
þremur deildum sem Múlaborg rekur - Fyrstu tveir leikskólar Ævintýraborga komnir til landsins
Morgunblaðið/sisi
Ármúli 6 Á 1. hæð hússins verður innréttaður leikskóli í þremur deildum. Hægt verður að taka á móti 60 börnum.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin stefnir að því að bjóða út
með vorinu tvöföldun Reykjanes-
brautar við álverið í Straumsvík.
Fjármagn til verksins hefur verið
tryggt. Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir taki allt að tvö ár. Þetta er
síðasti kafli Reykjanesbrautar, sem
enn er einbreiður.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum 8. desember
2021 að auglýsa nýtt deiliskipulag
fyrir Reykjanesbraut.
Deiliskipulagið afmarkast frá af-
leggjara til Krýsuvíkur að sveitarfé-
lagsmörkum Hafnarfjarðar og Voga
ásamt tengibraut sem mun þjónusta
iðnaðarsvæðin í Kapelluhrauni og
Hellnahrauni. Vegarkaflinn sem
verður breikkaður er alls 5,6 kíló-
metrar að lengd.
Fjórar akreinar
Gert er ráð fyrir að breikkun á nú-
verandi vegstæði rúmi alls fjórar
akstursgreinar, tvær í hvora átt,
ásamt tilheyrandi umferðarmann-
virkjum, öryggissvæðum og tækni-
búnaði sem fylgir slíkum mannvirkj-
um.
Tillagan gerir ráð fyrir mislægum
gatnamótum við Rauðamel og við að-
komuveg að Straumsvík auk veg-
tengingar frá tengibraut að Álhellu.
Að Straumi verða áfram T-gatnamót
með hægri beygju. Sömuleiðis við
dælu- og hreinsistöð austan
Straumsvíkur.
Einnig er gert ráð fyrir göngu- og
hjólastíg meðfram hluta brautarinn-
ar ásamt tvennum undirgöngum
undir Reykjanesbraut fyrir gang-
andi og hjólandi umferð. Einnig eru
göngu- og hjólatengingar við miðlæg
gatnamót við Straumsvík og Rauða-
mel.
Hægt er að skoða deiliskipulags-
tillöguna á vef Hafnarfjarðarbæjar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta er gefinn kostur á að gera at-
hugasemdir við skipulagið og skal
þeim skilað eigi síðar en 24.1. 2022 á
netfangið skipulag@hafnarfjordur.-
is eða skriflega til þjónustuvers.
Umferð um Reykjanesbraut við
Straumsvík hefur aukist undanfarin
ár samhliða fjölgun ferðamanna til
landsins. Fjöldi slysa á umræddum
vegkafla hefur verið að meðaltali um
20 á ári samkvæmt skráningu Sam-
göngustofu. Tilgangur framkvæmd-
arinnar er að auka umferðaröryggi
og greiðfærni m.a. með því að að-
greina akstursstefnur og fjölga ak-
reinum úr tveimur í fjórar.
Lokið var við að leggja brundið
slitlag á Reykjanesbraut árið 1965.
Framkvæmdir við tvöföldun veg-
arins hófust árið 2003 og hefur verk-
ið síðan verið unnið í áföngum.
Síðast var vegurinn tvöfaldaður á
3,2 kílómetra kafla í Hafnarfirði,
milli Kaldárselsvegar og Krýsu-
víkurvegar.
Sá vegarkafli var tekinn í notkun í
nóvember 2020. Ístak var verktaki
en Mannvit sá um eftirlit. Verkáætl-
anir stóðust í stórum dráttum þrátt
fyrir Covid-19-faraldurinn.
Tvöföldun Reykjanes-
brautar brátt boðin út
- Hafnarfjarðarbær hefur auglýst nýtt deiliskipulag
Breikkun Reykjanesbrautar
Frá Krýsuvíkurvegi að Hvassahrauni
Fyrirhuguð tvöföldun
Reykjanesbrautar í núverandi
vegstæði á um 5,6 km kafla
Reykjanesbraut
er tvöföld frá
Hvassahrauni
til Njarðvíkur
Re
ykja
nesbrau
t
K
rýsu
víku
rvegu
r
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Straumsvík Vegarkaflinn umræddi
liggur framhjá álveri Rio Tinto.
Bakaríið Vest
Höf. Solja Krapu-Kallio
Les. Þórunn Erna Clausen
Frostrós
Höf. Lotte & Søren Hammer
Les. Hilmir Snær Guðnason
Dansarinn
Höf. Óskar Guðmundsson
Les. Daníel Ágúst Haraldsson
Þögli sjúklingurinn
Höf. Alex Michaelide
Les. Björn Stefánsson
Dagbókin
Höf. Anna Stína Gunnarsdóttir
Les. María Dögg Nelson
HJÁLP!
Höf. Fritz Már Jörgensson
Les. Fritz Már Jörgensson
Jólasveinasaga
Höf. Bergljót Arnalds
Les. Bergljót Arnalds
Vetrarfrí í Hálöndunum
Höf. Sarah Morgan
Les. Álfrún Helga Örnólfsdóttir
vi
ka
50
Fyrsta málið
Höf. Angela Marsons
Les. Íris Tanja Flygenring
Ævintýrið um jólakortin sjö
Höf. Anthony Horowitz
Les. Felix Bergsson
TOPP 10 vinsælustu hljóðbækur á Íslandi.