Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma 23. desember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.97 Sterlingspund 172.14 Kanadadalur 100.55 Dönsk króna 19.741 Norsk króna 14.465 Sænsk króna 14.209 Svissn. franki 140.92 Japanskt jen 1.1429 SDR 181.63 Evra 146.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.5006 DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það voru tilviljanir sem réðu því að Jón Sigurðsson tók að sér að leiða stoðtækjafyrirtækið Össur árið 1996. Hann hafði þá gegnt starfi viðskipta- fulltrúa í New York í fjögur ár en það er hluti af utanríkisþjónustu Ís- lands. „Eðli þeirra starfa er að það eru póstar og ég vissi að ég yrði þar ekki endalaust [...] ég vissi að ég yrði að færa mig um set. Ég var ekki reiðubúinn að fara inn í utanrík- isþjónustuna því ég var meira á bus- iness-hliðinni, þótt þetta hafi verið gefandi. Þá vantaði framkvæmda- stjóra fyrir Össur. Ég hafði unnið með Össuri hf. áður þegar var verið að breyta um umboðsmenn í Banda- ríkjunum og ég kom aðeins að því til aðstoðar.“ Var það Össur Kristinsson sem valdi þig? „Já Össur og Pétur Guðmund- arson sem var stjórnarformaður. Ég starfaði með þeim í nokkur ár.“ 100 földun starfsmanna Þessa örlagaríku ákvörðun rifjar Jón upp í ítarlegu viðtali í Dag- málum. Hann hefur nú tekið ákvörð- un um að hætta sem forstjóri Öss- urar eftir að hafa leitt fyrirtækið í aldarfjórðung og ári betur. Þegar hann tók við starfinu 1996 var hann starfsmaður númer 42 en í dag starfa ríflega 4.000 manns hjá Öss- uri. Segir hann að margar áskoranir hafi beðið fyrirtækisins sem var lítið í sniðum og aðeins með eina vöru á boðstólum. Raunin sé sú að á öllum stundum hafi hann þurft að halda vöku sinni og að uppbygging fyrir- tækisins hafi verið barátta frá degi til dags. „Það vantaði rekstrarfé og ég man að ég ræddi við Sigurð B. [Stef- ánsson] hjá Íslandsbanka því banka- lán voru ekki í boði þá. En þá var far- ið að gefa út skuldabréf og fyrsta útboðið okkar minnir mig að hafi verið 50 milljónir íslenskar. Það var nóg sem rekstrarfé fyrir okkur í tals- verðan tíma. Það gaf okkur andrými til að vinna að þeim fyrirætlunum sem við vorum með þá,“ segir Jón. Kaupþing gerði þetta kleift Fljótlega eftir að Jón tók við starf- inu hjá Össuri hófst undirbúningur að því að skrá fyrirtækið á markað. Það raungerðist árið 1999 og ári síð- ar var ráðist í harða sókn á markaði með kaupum á öðrum fyrirtækjum. það var ekki síst gert til þess að breikka vöruúrvalið. „Þá var þannig ástand á Íslandi það var var nóg af fjármagni og komnir bankamenn sem víluðu ekki allt fyrir sér. Þá var það Kaupþing sem gerði það kleift að við gátum keytp þessi fyrirtæki. Þeir voru lyk- illinn að því.“ Rifjar Jón sérstaklega upp kaupin á Flex-Foot í Bandaríkjunum en það fyrirtæki var helmingi stærra en Össur á þeim tíma. yfir kaupunum er goðsagnakenndur blær. Morgun einn ákvað Jón að hringja í forstjóra fyrirtækisins og kanna hvort mögu- leiki væri á viðræðum um sölu. Þá kom upp úr dúrnum að verið var að ganga frá sölu á fyrirtækinu. Jóni tókst, með stuðningi Kaupþings að ganga inn í kaupin og fullyrðir Jón að þetta hafi verið ein af örlaga- stundunum í sögu Össurar. Hafa keypt 60 fyrirtæki Bendir Jón á að það hafi orðið hluti af DNA fyrirtækisins að kaupa önnur fyrirtæki og stækka þannig samhliða innri vexti. „Við erum búin að kaupa yfir 60 fyrirtæki á þessu tímabili. Þannig að hluti af þessari stefnu hafa verið fyr- irtækjakaup. Við notum ekki ráð- gjafa lengur við það. við erum alveg sjálfbær hvað það varðar,“ segir Jón. Hefur aldrei stappað nærri að þið yrðuð gleypt en ekki öfugt? „Jú sjálfsagt hefur það nú verið [...] Þessi markaður er reyndar dálít- ið einangraður, dreifileiðin er dálítið sér, þótt hún sé inni á sjúkrahúsum þá eru vandfundin samlegðaráhrif, alveg klár og það hefur komið í veg fyrir að menn hafi viljað, en svo er private equity sem hefur verið með okkur í sigtinu allan tímann. En verðlagningin hefur verið rétt nema í hruninu,“ útskýrir Jón. Þegar bankarnir hrundu var danskur kjölfesturfjárfestir kominn að félaginu, William Demant Invest. Í gjörningaveðrinu hefði honum ver- ið, að sögn Jóns, í lófa lagið að kippa eignarhaldinu alfarið til sín. Það gerðist þó ekki. „Það skildi það enginn á Íslandi því þeir hefðu getað fengið það fyrir mjög lítið og allir vissu það. En þeir sögðu: Ef við freistumst til þess að græða ofsalega mikið á þessu núna og skilja alla fjárfestana sem komu með okkur inn í þetta eftir í rykinu þá verður okkur ekki treyst aftur. Við gerum ekki svoleiðis. Þetta lýsir viðhorfi sem er mjög öðruvísi en á Íslandi og í Bandaríkjunum,“ segir Jón. Ný verkefni bíða Jón kveður fyrirtækið sáttur eftir langa samfylgd. Vöxtur þess hefur verið að meðaltali 18% frá því að hann tók við stjórnartaumunum árið 1996. Hann hyggst ekki setjast í stjórn Össurar þótt sá möguleiki hafi verið ræddur. Í viðtalinu upplýsir hann hins vegar hvað hann hyggist taka sér fyrir hendur. Áskrifendur geta horft á viðtalið eða hlustað á það á mbl.is. Barátta upp á hvern einasta dag Tímamót Jón Sigurðsson kveður Össur eftir viðburðarík ár. Fyrirtækið óx að jafnaði um 18% allan þann tíma sem hann stýrði því. Hann mun ekki setjast í stjórn Össurar við brotthvarf sitt úr forstjórastólnum eftir aldarfjórðung. - Þegar Jón Sigurðsson tók við sem forstjóri Össurar í apríl 1996 var hann starfsmaður númer 42 - Nú þegar hann lætur af störfum kveðja hann ríflega 4.000 starfsmenn, dreifðir um heim allan Ein elsta myndin sem til er í gagnasafni Morgunblaðsins af Jóni Sigurðs- syni í tengslum við starfsemi Össurar er frá aðalfundi 9. mars árið 2001 þar sem farið var yfir árangur nýliðins árs. Myndin er táknræn en félagið stóð í stórræðum á þessum tíma, yfir- tökur á öðrum félögum voru í algleymingi, m.a. mögnuð kaup á Flex-Foot í Bandaríkjunum. Tölurnar sem birtast í bakgrunni og eru helsta við- fangsefni fundarins fyrir tveimur áratugum vitna um hversu gríðarlega félagið hefur vaxið á þeim tíma. Rekstrartekjur félagsins námu 3,6 millj- örðum árið 2000 og höfðu þó vaxið um 178% milli ára. Tap var af rekstr- inum upp á 6,7 milljarða, ekki síst vegna gjaldfærðrar viðskiptavildar. Á síðastliðnu ári námu heildartekjur Össurar 630 milljónum dollara, jafnvirði 82,3 milljarða króna. Hagnaðurinn nam 8 milljónum dollara það ár, jafnvirði rúmlega milljarðs króna. Árið þar á undan nam hagnaðurinn hins vegar 69 milljónum dollara, eða 9 milljörðum króna. Össur í flugtaki um aldamót LITIÐ AFTUR TIL FORTÍÐAR Morgunblaðið/Þorkell Aðalfundur Á myndinni ásamt Jóni eru Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmaður, sem var fundarstjóri, og Pétur Guðmundarson, sem var stjórnarformaður félagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.