Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna!
Farðu inn á mbl.is/happatala, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
52
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Katla Margrét Þorgeirsdóttir, leik-
kona og söngkona, hefur haft mikið
fyrir stafni upp á síðkastið. Gaf hún
meðal annars út jólaplötu á dög-
unum ásamt hljómsveit sinni Heim-
ilistónum og tók þátt í einhverjum
stærstu tónleikum ársins, Jólagest-
um Björgvins, á laugardag. Er hún
að auki einn af höfundum áramóta-
skaupsins sem margir bíða í ofvæni
eftir en hún lék einnig í Hraðfréttum
á RÚV á dögunum ásamt biskupi Ís-
lands.
Katla mætti í Síðdegisþáttinn á
K100 í vikunni og ræddi þar um allt
og ekkert við þá Loga Bergmann og
Sigga Gunnars.
Hefði ekki verið gerlegt
„Ég er í æfingafríi fram í janúar
frá leikhúsinu. Annars hefði þetta
ekki verið gerlegt,“ sagði Katla í við-
talinu spurð út í það hversu mikið
hefði verið að gera hjá henni upp á
síðkastið. Hún benti þó að Ólafía
Hrönn Jónsdóttir eða Lolla eins og
hún er kölluð hefði verið í tveimur
leiksýningum sama dag og Heim-
ilistónar sungu á Jólagestum Björg-
vins.
„Hún var bara í ofsaakstri til að
komast og breyta um gervi og fara
upp á svið,“ sagði Katla sem segir
það hafa verið kraftaverk að hún
náði þessu en með þeim Lollu eru í
hljómsveitinni leikkonurnar Elva
Ósk Ólafsdóttir og Vigdís Gunn-
arsdóttir. Þær fóru sannarlega á
kostum á tónleikunum þar sem þær
fluttu nýja lagið sitt Anda inn sem
lýsir upplifun margra í jólaamstrinu
í desember á gamansaman hátt.
Lagið er að finna á nýrri plötu Heim-
ilistóna, plötunni „Rugl góð jólalög“,
sem finna má meðal annars á Spotify
en platan var tekin upp í sumar.
„Þá fórum við að heimsækja Vigni
Snæ, sem er alveg úrvalsnáungi, og
tókum upp eitt stykki jólaplötu á
haustdögum, seint um sumar. Vor-
um allar búnar að vera heima hjá
okkur að semja,“ sagði Katla.
Upplifun að stíga á svið
Katla lýsti því hvernig var að stíga
á svið á þeim gríðarstóru tónleikum
sem Jólavinir Björgvins eru.
„Þegar við stóðum í stiganum á
bak við gospelkórinn, kór Kársnes-
skóla, strengjasveitina og karlakór-
inn – ég horfði svona aftan á fólk og
vissi að ég væri að fara að labba fram
á sviðið. Það voru svolítið margir í
salnum – þá leit ég svona á stelp-
urnar: Af hverju erum við að þessu?
Hvaða andskotans rugl er þetta? En
svo kemur maður bara fram og syng-
ur og þá gleymir maður sér,“ lýsti
Katla í þættinum.
Getum ekki sniðgengið Covid
Sagðist hún ekki vera neitt sér-
staklega stressuð fyrir áramóta-
skaupinu sem landsmenn nánast all-
ir sem einn bíða spenntir eftir að sjá
á gamlárskvöld.
„Af því að ég var í svo góðum hópi
og ég ætla bara að treysta því að það
virki.
Reynir Lyngdal er frábær leik-
stjóri þannig að það væri eitthvað
skrítið ef þetta myndi klikka eitt-
hvað mikið,“ sagði Katla. „Þetta var
gott í fyrra en þá var sama fólk nán-
ast í brúnni,“ sagði Katla sem segist
hafa notið sín vel á gamlárskvöldi í
fyrra enda hafi fáir kvartað yfir
skaupinu.
Hún viðurkennir þó að þar sem
ástandið varðandi kórónuveiru-
faraldur hafi lítið breyst síðan síðast
þurfi fólk að búast við fleiri brönd-
urum um veiruástandið.
„Við getum ekki sniðgengið Co-
vid. Það væri skrítið,“ sagði hún.
Biskup Íslands spunakona
Katla sagðist hafa notið þess að
leika í Hraðfréttum á RÚV dög-
unum en þar var hún í grínatriði
ásamt biskupi Íslands, Agnesi M.
Sigurðardóttur, sem sló í gegn.
„Það var ofsalega gaman og gerð-
ist mjög hratt eins og er þeirra sið-
ur.
Þeir höfðu samband svona kortéri
áður,“ sagði Katla glettnislega.
Sagði hún Agnesi hafa verið alveg
frábæra.
„Hún vissi ekkert hvað hún var að
fara að gera. Hún er bara svona
spunakona. Hún var alveg frábær.
Þetta var bara gert á staðnum. Tak-
ið eftir því,“ sagði Katla.
„Væri skrítið ef þetta myndi klikka“
Katla Margrét Þorgeir-
dóttir leikkona lætur sér
ekki leiðast í desember
en hún hefur haft nóg
fyrir stafni og ræddi
málin í Síðdegis-
þættinum í vikunni.
Ljósmynd/OlgaHd
Fjölhæf Katla Margrét hefur staðið í ýmsu upp á
síðkastið en hún er ekki kvíðin yfir væntanlegu ára-
mótaskaupi sem margir bíða í ofvæni eftir.
Ljósmynd/Hanna Andrésdóttir
Anda inn Heimilistónar hvetja fólk til að anda inn í desember
í nýju jólalagi sem finna má á plötunni Rugl góð jólalög.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Aðfangadagur gengur loks í garð á morg-
un en ljóst er að jólin verða með öðru sniði
en venjulega fyrir allmarga sem ann-
aðhvort þurfa að verja hátíðunum í ein-
angrun eða í sóttkví. Sigmar Guðmundsson
fyrrverandi fjölmiðlamaður er einn þeirra
þingmanna Viðreisnar sem smituðust af
Covid-19 á dögunum og er öll hans fjöl-
skylda einnig smituð. Það má segja að það
hafi orðið þeim til happs að þau verji jól-
unum að minnsta kosti saman öll. Utan-
landsferðin sem var í kortunum yfir hátíð-
arnar er því úr sögunni hjá fjölskyldunni.
Sigmar fékk af því tilefni að velja sér óska-
lag í dagskrárliðnum Óskalag Covid-
sjúklinga í Síðdegisþættinum en þar ræddi
hann jafnframt um líðan sína og ástandið
allt.
Þríbólusettur og nánast einkennalaus
„Ég er þríbólusettur þannig að þetta lít-
ur alveg ágætlega út hjá mér. Ég hef ekki
yfir neinu að kvarta, út frá einkennum eða
slíku,“ sagði Sigmar, sem finnur lítil sem
engin einkenni af sjúkdómnum. Hann segir
smitið þó hafa komið upp á versta tíma
augljóslega – rétt fyrir jól og auðvitað rétt
eftir að hann sjálfur byrjaði á þingi, í nýju
starfi sem hann segist kunna mjög vel við.
„Veiran er úti um allt eins og við sjáum á
tölunum,“ sagði Sigmar. „Ég var að vonast
til þess að fólkið mitt kæmist út um jólin,
en svo smitaðist það allt. Við erum fjögur
saman hér í einangrun,“ sagði Sigmar sem
ræddi við þá Loga Bergmann og Sigga
Gunnars símleiðis frá heimili sínu.
„Það er ótrúlegur fjöldi sem verður í ein-
angrun um jólin. Alveg svakalegur fjöldi,“
bætti hann við en hann ákvað að velja lag
sem hann kallar lag fjölskyldunnar sem
óskalag sitt í þættinum.
Dansar inni í stofu við ABBA
„Við erum náttúrlega lokuð inni fjöl-
skyldan svo mér finnst ekki annað við hæfi
en að velja lag sem er eiginlega lagið okkar
fjölskyldunnar. Þetta er lag af nýju plötunni
með ABBA,“ sagði Sigmar og kom þeim
Sigga og Loga á óvart með vali sínu.
„Þetta er lag sem konan mín setur oft á
fóninn og hækkar vel í þegar hún vaknar á
morgnana og dansar svolítið með inni í
stofu,“ lýsti hann glaðlega en lagið sem hann
valdi er að sjálfsögðu Don’t Shut Me Down
með ABBA sem segja má að sé vel viðeig-
andi val miðað við aðstæður.
Einangrunarjólin miklu
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar mun verja jólunum í einangrun að þessu sinni eins og fjölmargir landsmenn
en hann missir meðal annars af utanlandsferð með fjölskyldunni vegna Covid-smits. Hann fékk að velja óskalag í Óskalagi
Covid-sjúklinga í Síðdegisþættinum af því tilefni og valdi vinsælt lag sem hann kallar „lag fjölskyldunnar“.
Morgunablaðið/Hallur
Nýbyrjaður Sigmar er nýbyrjaður í nýju starfi sem þingmaður og vara-
formaður Viðreisnar en hann smitaðist af Covid-19 núna nýverið og ver
jólunum ásamt fjölskyldunni í einangrun eins og fjölmargir landsmenn.
AFP
Fjölskyldulagið Sigmar valdi óskalagið Don’t Shut Me Down af nýrri
plötu ABBA en fjölskyldan getur vonandi dansað saman við það yfir
hátíðirnar þrátt fyrir það að vera í einangrun.