Strandapósturinn - 01.06.2020, Qupperneq 78
77
bera vott um félagslegan þroska, góða samvinnu, búhyggindi og framsýni
þeirra, er þar áttu í hlut.
Í þúsund ár var hungurvofan tíður gestur á íslenskum heimilum. Oftast
staldraði hún stutt við, eitt eða tvö ár, en dveldist hún þar lengur, var
mikil vá fyrir dyrum. Síðasti áratugur 17. aldar var einn harðasti kulda-
og hafískafli í sögu landsins og náði hann fram á fyrstu ár 18. aldar. Í
þessum harðindakafla er talið að um 9.000 manns hafi dáið úr hungri og
kulda. Íslenskir gósseigendur höfðu hvorki getu né vilja til að forða land-
setum sínum frá hungurdauða en þegar innstæðukúgildi þeirra drápust
og landskuld fékkst ekki greidd, vöknuðu þeir. Þess vegna var Lárus
Gottrup lögmaður sendur á fund Friðriks IV Danakonungs árið 1701 og
átti lögmaður að leggja úrbótatillögur fyrir kóng. Árangur þeirrar ferðar
var skipan Árna Magnússonar og Páls Vídalíns til að gera jarðabók yfir
allt Ísland, afla upplýsinga um ástand jarða og réttarfarsmála og gera svo
tillögur til úrbóta. Jarðabók þeirra félaga er einstök heimild um hagi lands
og þjóðar á þessu tímabili. Þar segir þetta um Broddanes:
Jarðardýrleiki: LX hundruð. Jarðeigendur: að XX hundruð Jón
Jónsson þar bóndi, að X hundruð Ragnhildur Jónsdóttir á Hesteyri
í Aðalvík, að X hundruð börn Árna sál. Vigfússonar á Heydalsá, að
XIII hundruð Arnfinnur og Gunnfríður Sigurðar börn að Kollsá, að
I hundrað sr. Páll Ketilsson að Slítandastöðum. Sömu eigendur voru
anno 1702 og 1703 nema að XX hundruð þeim sem Jón Jónsson á
voru þá synir hans Jón og Steindór, að V hundruð er Gunnlaugur
Ólafsson í Svefneyjum og var þá eigandi. Ábúandi að parti sínum og
parti Árna Vigfússonar er Jón Jónsson, part Ragnheiðar (sic) hefur
Pétur Jónsson á Broddadalsá, item hefur hann part Gunnlaugs en
XV hundruð eru í eyði. Landskuld fyrrum það menn til vita hefur
verið II hundruð og XXX álnir en síðan allt til þessa er um landskuld
óvíst því sumpart hafa eigendur á búið, sumpart nokkuð í eyði legið,
stundum lítið verið goldið eftir það sem byggst hefur. En eftir báða
partana sem Pétur hefur, geldur hann nú XX álnir. Leigukúgildi hafa
fyrrum verið XIII, þar eftir smám saman færri. Nú hefur Pétur I
kúgildi með þeim pörtum sem hann hefur. Fleiri eru þau ekki. Kvik-
fénaður hjá Jóni er III kýr, XVIII ær, IIII lömb, II hestar. Þar kann