Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.2020, Side 108

Strandapósturinn - 01.06.2020, Side 108
107 en festist ekki á, einn og einn marhnútur beit á. Við fórum heim í kjall- arann með færin, heldur vonsviknir. Okkur skildist nú að það að hafa stóra króka var ekki nóg til að fá stóran fisk. Seinna þetta sumar fékk Jakob sonur Axels stórlúðu á færi. Jakob og Axel sögðu okkur Hössa frá hvernig það hafði gengið fyrir sig. Lúðan var þung í drætti og ,,tók rykk við hvört“ sagði Jakob. Jakob hafði þá gefið færið rólega út aftur, svo lúðan sliti sig ekki lausa og halað inn þegar lúðan gaf eftir. Svona hafði þetta gengið um stund, þar til lúðan að endingu sást frá bátnum. Axel sagði að hann hefði haft riffilinn tilbúinn, til að skjóta lúðuna í hausinn þegar færi gafst. Óvænt hafði lúðan tekið á sig rykk og slitið sig lausa. Axel og Jakob sögðu að þeir ætluðu að leggja haukalóð á fjörðinn í von um að fá lúðu. Ég og Hössi vorum spenntir, höfðum aldrei séð stórlúðu. Við vonuðum að lúðan færi að bíta á haukalóðina hjá Axel og Jakob. Um kvöldið kom mamma og spurði okkur Hössa hvort við hefðum skorið krókana af haukalóðinni hjá Axel. Ha, nei, hvaða lóð, hvaða króka, sögðum við í kór, skildum ekki hvað mamma var að tala um. Mamma fór með okkur upp að reykkofanum og benti okkur á staðinn þar sem hauka- lóðin hans Axels hafði legið. Þá skildist okkur hvað mamma var að tala um og að við hefðum gert eitthvað miður gott. Mamma sagði að við yrðum að fara strax yfir til Axels og biðja hann fyrirgefningar á þessu uppátæki. Við mölduðum í móinn og þegar við vorum komnir hálfa leið hlupum við í burtu, fórum uppá loft og settum slagbrand fyrir hurðina á herberginu okkar. Daginn eftir, þegar við sátum í eldhúsinu og borðuðum, stóð mamma upp og tók í axlirnar á okkur og sagði; ,,þið komið með mér og biðjið Axel fyrirgefningar, þið komið núna”. Við fylgdum mömmu, þorðum ekki annað, mamma var ekki vön að vera svona ákveðin. Áður en við vissum af vorum við komin yfir bæjarlækinn og nálguðumst húsið hjá Axel. Við spyrntum við fótum og spurðum hvort við gætum ekki farið seinna að biðja Axel fyrirgefningar. Mamma sagði ekki orð, hélt fast í axlirnar á okkur og gekk hratt yfir túnið. Skömmin og óttinn jukust með hverju skrefi sem við nálguðumst húsið hjá Axel. Hvað mundi Axel gera við okkur? Þegar við vorum komin langleiðina yfir túnið þoldi Hössi ekki meira, tók á sig rykk, sleit sig lausan og hljóp í burtu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.