Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 18 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 LANDSJÁ Nú þegar líður að kosningum er rétt að fara skipulega yfir þróun búnaðarmála á kjör­ tímabilinu til að greina hvort það hafi náðst árangur. Líkt og áður hefur verið nefnt í þessum dálki ætlast bændur ekki til þess að stjórnvöld leysi allar áskoranir bænda en mikil­ vægt er að verkfærin séu nothæf. Þau verkfæri og þær áskoranir hef ég skrifað um í fyrri pistlum. Framleiðsluvirði hefur dregist saman vegna verð- hruns í sauðfjárrækt Heildarframleiðsluvirði land­ búnaðar árið 2019 losaði 50 ma. kr. Framleiðsluverð er það verð sem framleiðandi fær í sinn hlut frá kaupanda en innifelur ekki vörutengda styrki, s.s. bein­ greiðslur. Síðustu ár hefur fram­ leiðsluvirði landbúnaðarvara farið lækkandi á föstu verð­ lagi, en það má rekja til hruns í afurðaverði í sauðfjárrækt árið 2016­2017. Hægt virðist ganga að ná afurðaverði í sanngjarnt horf gagnvart bændum – en miklu munar á viðmiðunarverði og útgefnum verðskrám. Þessa mynd af verðmæta­ sköpun má sjá á myndinni, en á henni er framleiðsla og sala fóðurjurta undanskilin. Í heildina litið er því fjórðungur tekna landbúnaðarins í formi stuðn­ ingsgreiðslna frá hinu opinbera meðan þrír fjórðu hluta tekn­ anna er í gegnum sölu á afurð­ um. Þetta er þó mjög breytilegt milli greina. Meðaltöl af þess­ um toga veita ákveðna heildar­ mynd en ekki nákvæma mynd. Þannig hefur framleiðsluvirði garðyrkjuafurða farið vaxandi á þessu tímabili að raungildi. Þó að framleiðsluverð hafi farið lækkandi frá árinu 2015 þá virðist vera sem bændur séu bjartsýnir á framtíðina ef marka má tölur um útlán til landbúnaðar. Lán til landbúnaðar koma fyrst og fremst frá Byggðastofnun og stóru bönkunum þremur. Útlánasafn allra þessara aðila til landbúnaðar hefur farið vax­ andi á síðustu árum, en samtals eru útlán til landbúnaðar um 26 milljarðar hjá þessum aðilum ef marka má tölur Seðlabankans og ársskýrslu Byggðastofnunar. Útlánin munu vaxa á komandi árum vegna þeirra miklu krafna sem gerðar eru um aukin aðbún­ að búfjár. Því er það mikið hags­ munamál landbúnaðarins – rétt eins og annarra atvinnugreina – að vaxtastig haldist á þolanlegu róli og að böndum sé komið á verðbólguvæntingar. Áhrif kófsins hafa verið nokkur Landbúnaðurinn hefur ekki farið varhluta af heimsfaraldri kórónaveiru þó að áhrifin séu annars konar og taki lengri tíma að koma fram heldur en í öðrum greinum. Faraldurinn hafði þau áhrif að eftirspurn eftir bú­ vörum lækkaði vegna þess að komum erlendra ferðamanna fækkaði gríðarlega mikið á ár­ inu 2020. Á móti kom þó að ferðalög Íslendinga erlendis voru lítil og Íslendingar ferð­ uðust innanlands í miklum mæli. Ýmsar hömlur vegna sóttvarnaráðstafana breyttu neyslumynstri og höfðu þau áhrif að veitingastaðir voru lokaðir hluta af síðasta ári. Þar sem hagtölur frá Hagstofu Íslands eru ekki komnar fram um afkomu landbúnaðarins fyrir árið 2020 er erfitt að áætla nákvæmlega hver áhrifin hafa verið á afkomu bænda en miðað við veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum virð­ ist velta hafa dregist saman um 3% að raungildi á árinu 2020. Sé það nærri lagi er það talsvert högg. Skyggst í gegnum kófið Það er ógjörningur að segja til um hversu langan tíma það tekur ferðaþjónustuna að ná fyrri styrk eftir kófið. Það er lykilbreyta fyrir landbúnað­ inn vegna þess að ferðamenn auka eftirspurn eftir matvælum innanlands og þar með stækka markaðinn. Það er sérstak­ lega mikilvægt eftir að við­ skiptasamningar voru gerðir við Evrópusambandið með verulega auknum tollkvótum á öllum helstu gerðum kjöts. Nauðsynlegt er að ljúka endur­ skoðun á þeim samningum í ljósi breyttra aðstæðna. Stærsta hagsmunamál landbúnaðarins til skamms tíma eru þeir að íslenskur efnahagur nái fyrri þrótti sem fyrst og að verð­ bólgudraugurinn láti ekki á sér kræla. Kári Gautason, sérfræðingur hjá BÍ Verðmætasköpun landbúnaðar Kári Gautason. Rannsóknarfólk ásamt stjórnendum Ægis. Myndir / Hafrannsóknarstofnun Hafrannsóknastofnun, Green land Natural Resources og Zoological Society: Rannsökuðu vistkerfi Grænlandssunds NYTJAR HAFSINS Vísindafólk á vegum Haf­ rannsókna stofnunar, Green land Natural Resources og Zoological Society í London var í byrjun ágúst í rannsóknaleiðangri á Grænlandssundi til að rannsaka líf, strauma og botnlag sundsins. Í Grænlandssundi mætir hlýr Norður­Atlantshafssjórinn köld­ um sjó frá Norðurslóðum og innan svæðisins er mikill breytileiki í botnhita, straumhraða og botngerð sem hefur áhrif á samsetningu líf­ ríkis á botninum. Ómannaður kafbátur Í leiðangrinum var notaður ómann­ aður kafbátur sem kallast Ægir 6000 og með honum var hreyfi­ og ljósmyndaefni safnað með HD myndavélum og í flestum tilfellum er þetta fyrsta myndefni sem safnað hefur verið neðansjávar af þessum slóðum. Sérstakur griparmur er á Ægi sem var notaður til að safna völd­ um lífverum til frekari greininga. Kafað var á 28 stöðvum, bæði innan íslenskrar og grænlenskr­ ar lögsögu og sást mikill fjöl­ breytileiki svampa, kórala og annarra botndýra. Fjölþættar mælingar Mælingar á straumum, seltu, hita og kolefni voru teknar og fjöl­ geislamælingar á botninum gerðar á stöðvum þar sem slík gögn voru ekki fyrirliggjandi. Samkvæmt vísindamönnunum í leiðangrinum munu upplýsingarnar sem feng­ ust varpa ljósi og auka skilning á vistkerfi Grænlandssunds og vera góð undirstaða fyrir frekari rannsóknir á svæðinu, mögulegum breytingum á því og til að meta verndargildi þess. Hluti af stærra verkefni Leiðangurinn var hluti af verk­ efninu BENCHMARK en mark­ mið þess er að rannsaka vistkerfi hafsbotnsins í Grænlands sundi. Leiðangurinn var styrktur af Eurofleets+ Evrópusjóðnum ásamt framlagi þeirra stofnana sem tóku þátt. Leiðangursstjóri var Julian Burgos frá Hafrannsóknastofnun á norska rannsóknaskipinu G. O. Sars. /VH Kortið sýnir staðsetningu þeirra 28 rannsóknastöðva sem skoðaðar voru. Ægir á leið í köfun. Griparmur á Ægi 6000 með „sveppakóral“ (Anthomastinae) í klónni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.