Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 55Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Um næstu mánaðamót og allan næsta mánuð verða nokkur þúsund manns um land allt að smala sauðfé af fjalli. Í þessum pistlum hef ég árlega farið yfir helstu áhættuþætti sem fylgir fjallaferðum, sama hvort er gangandi, ríðandi eða á vélknúnu ökutæki í smölun. Sama hvernig veður er þá er smalað á hverju hausti og þá eru nokkrir hlutir sem vert er að hyggja að í öryggi og klæðnaði. Lítill sjúkrapakki og næringarríkt nesti Allir geta „flumbrað“ sig við dettu, bæði dýr og menn, og því er gott að vera með lítinn sjúkrapakka með sér með plástri og sárabindi og jafnvel græðandi smyrsli ef einhver fær nuddsár (litlir ágætlega útbúnir sjúkrapakkar sem rýmast vel í vasa fást á mörgum bensínstöðvum og kosta ekki mikið). Nesti þarf að vera orkuríkt og saðsamt, bæði fyrir menn og hunda og talandi um hunda þá má gera ráð fyrir að þeir þurfi tvöfalt meira að éta á löngum smaladögum, orkuríkasta fæði sem völ er á. Útivera allan daginn kallar á mikið vökvatap, alltaf hafa með sér eitthvað að drekka (sjálfur reyni ég að vera alltaf með vatnsflösku og reyni að fá mér a.m.k. einn sopa á um 30 mín. fresti (gott að fylla á flöskuna reglulega þegar farið er framhjá næsta ferska læk þótt flaskan sé ekki tóm). Reið/mótorhjóla/fjórhjóla- hjálmur ætti að vera léttur, passa vel á höfuð notandans Sama hvernig smalað er, hvort sem er gangandi, ríðandi eða á vélknúnu ökutæki, er gott að vera í skæru vesti (gulu eða appelsínugulu) utan yfir allan klæðnað. Það er orðin undantekning ef maður sér orðið hestamann við smölun hjálmlausan og enn sjaldgæfara er að sjá ökumann á fjórhjóli hjálmlausan. Fyrir mér (sem mótorhjólamanni síðustu 45 ár) þá þarf hjálmurinn að vera léttur og passa vel á höfuðið því ef hjálmurinn er of stór þá er hann laus á höfðinu og við hreyfingu á höfðinu til hliða og upp og niður skröltir hjálmurinn og stelur af manni óþarfa orku. Eitthvað er um að menn eru farnir að nota peysubrynju bæði á hestum og fjórhjólum sem ver efri hluta líkamans ef maður dettur af hesti eða veltir fjórhjólinu yfir sig, brynja er hlífðarfatnaður sem kostar ekki mikið miðað við hvað hann veitir mikla vörn við byltum. Réttur klæðnaður í fjallaferðum er lykilatriði á vel heppnaðri ferð Oft hef ég skrifað um klæðnað og byggt á minni reynslu (sem er ekki endilega sú rétta). Í ár leitaði ég til kunningja míns, Helga Jóhannessonar lögmanns, stjórnarmanns í Ferðafélagi Íslands, leiðsögumanns í gönguferðum til fjalla í bæði sumar- og vetrarferðum. Ég spurði hann út í réttan búnað til smalamennsku/fjallaferða og var svar hans eftirfarandi orðrétt: „Þetta er þarft og spennandi mál. Það er númer 1, 2 og 3 í þessu að hafa ull innsta fata. Fín ullarföt fást í öllum útivistarverslunum, s.s. Fjallakofanum, Ellingsen o.fl. Bómull er bannvara, best að vera í ullarnærbuxum (stuttum) og síðum yfir. Svo er það ullarstuttermabolur og síðerma ullarbolur þar yfir. Eftir það er það svo skjólfatnaðurinn. Ef það er heitt í veðri nægir yfirhöfn (vatnsheldur skeljakki) en millilag undir jakkann þarf að vera með í för, t.d. lopapeysa eða flíspeysa. Að neðan eru það svo liprar göngubuxur og með í för vatnsheldar skelbuxur til að fara í ef það syrtir í álinn og fer að rigna. Sokkar úr ull. Best að kaupa göngusokka í útivistarbúð með þykkari botni. Skóbúnaður þarf að vera vandaður. Ekki strigaskór eða því um líkt. Vandaðir skór sem ekki blotna í gegn. Ef menn eiga leðurskó þarf að bera á þá reglulega t.d. minkaolíu eða þess háttar sem fæst hjá skósmiðum til að viðhalda vatnsvörninni. Svo auðvitað húfa og vettlingar. Gott að hafa ullarvettlinga og svo vatnshelda skel yfir sem einnig fæst í útivistarbúðum.“ Sem sagt. Meginstefið er ullin næst skrokknum og lagskipta rest eftir veðri. Að lokum vildi Helgi sérstaklega taka fram að gallabuxur eru EKKI forsvaranlegar á fjöllum. Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og L or em ipsum Stál og stansar stalogstansar.is 2012 2020 Varahlutir í kerrur ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 NAFN- BÆTUR MJÓLKUR- AFURÐ MÁTTUR TUNNU GÁLEYSI NEÐAN VIÐ ÍÞRÓTT SFUGL T O R M M Á V U R MTAPA I S S A EGGJA GÖNGU- LAG M A N A ÆFRÆND- BÁLKUR T T G R U N D L L U N N I GLJÚFUR SKRAUT- STEINN G I L MATREIÐA FJÖLDI TVEIR EINS S K A R I JARÐ- SPRUNGUR FÆDDI G J Á R ÁLAG Í RÖÐMINNKA KKLAUFI BAND FOLD MEN G E L T A LJÓMA JAFNINGUR ÓTTI S Ó S A VIÐAR- TEGUND ÁVÖXTUR OGJAMMA I L L A GLUNDUR UTAN G U T L EINING ÁTT S T A KSLÆMA B D HANGI KYLFA G Á L G I VÍSDÓMUR ÞESSA S P E K IÍ RÖÐ B A K NÆGILEGT STEFNA N Ó G HÖRFA GORTAR H V I K A KVEÐJAHRYGGUR O SAMÞYKKI INNI- LEIKUR J Á SKYNFÆRI KROPP A U G A LISTI ÓSKERT S K R Á N A U T N RÖÐ AUR R U N A BLUND ÁTT SKEL N VYNDI A L L T A F ELDA GYLTU M A L L A KRINGUM AÆTÍÐ P I Ú Ð L A SVAKA DYGGUR R T O R S Ú A R HORN TRAÐK L T Ú R Ð A U M R P ERFIÐI RÖST M Y N D : SU N EK O ( CC B Y -S A 2 .0 ) H Ö FU N D U R B H • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 157 MINNI ALDIN FIMUR ERGJA PLANTA SPERGILL GORT VERKFÆRI LÆNA DRYKKUR VÆGI SEYTLA MISSIR BRESTA NABBI ÓSLÉTTUR HLJÓTA JURT ÓÐ GEISA TVEIR EINSKLUNNI FISKUR YFIRHÖFN KVEÐJA LYKT BERJA PASSI HLUTA HLJÓÐ- FÆRI BUGÐ- ÓTTURMIÐJA NAUMUR VÍSA LEIÐ FLAUMUR DULSTIRNI VÍG KK NAFN FÚS DRÍFA GORM BARDAGI ILLÆRI NEFNT ENDUR- GJALDA MJÖG LÍTIÐHÁTTUR BÓK- STAFUR ÞRÁ GLATA ÞRÓTTUR SÁL ÞÍÐA ANDMÆLI KOMAST MISKUNN STEIN- TEGUND STÓ TVEIR EINS ÁTT STEFNA HUGUR MÆLI- EINING TEYMA HÆLA TRÉ 158 H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET Sama hvernig menn bera sig að við smölun þá þarf klæðnaður að vera góður. Hjálmur, brynja, hálskragi og góðir vettlingar er búnaður sem bjargað hafa nokkrum byltum hjá mér. Þessi þurfti að hætta í miðjum göngum og var saumaður, en hefði hugsanlega dugað gott sárabindi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.