Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 4 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 FRÉTTIR Reiknað afurðaverð í krónum fyrir hvert kíló Dilkar Fullorðið Sláturleyfishafi 2019 2020 Breyting milli ára 2021 2019 2020 Breyting milli ára 2021 Fjallalamb 456 483 +6,9% 520 121 119 0% 119 Kaupfélag Skagfirðinga 480 507 +6,5% 540 138 140 0% 140 Norðlenska 461 504 +5,1% 530 111 113 +2,3% 115 SAH afurðir 462 502 +5,5% 530 114 115 0% 115 Sláturfélag Suðurlands 465 504 +3,9% 523 123 122 +3,2% 126 Sláturfélag Vopnfirðinga 467 506 +6,1% 537 117 118 0% 118 Sláturhús KVH 480 507 +6,5% 540 138 140 0% 140 Landsmeðaltal 469 504 +5,2% 530 125 124 +1,4% 125 Heimild: Bændasamtök Íslands Útreikningar birtir með fyrirvara um villur. Komi í ljós innsláttarvillur, misfellur eða önnur augljós mistök áskilja Bændasamtök Íslands sér rétt til að leiðrétta og uppfæra útreikninga til samræmis við þær leiðréttingar hverju sinni. Afurðaverð til sauðfjárbænda: Hækkunin 5,2 prósent að landsmeðaltali – Enn langt frá viðmiðunarverði Landssamtaka sauðfjárbænda Nú hafa allir sláturleyfis hafar birt verðskrár sínar fyrir sauðfjárafurðir haustið 2021. Landsmeðaltal fyrir dilka hækkar um 5,2 prósent á reikn­ að afurðaverð frá síðustu slátur­ tíð og er komið í 530 krónur á hvert kíló. Síðasti sláturleyfishafinn til að birta verðskrá var Fjallalamb, en þar er hækkunin líka mest á reikn­ að afurðaverð frá síðustu verðskrá, eða 6,9 prósent að meðaltali fyrir hvert kíló dilka samkvæmt gögnum frá Unnsteini Snorra Snorrasyni, ábyrgðarmanni sauðfjárræktar hjá Bændasamtökum Íslands. Kaupfélag Skagfirðinga og Sláturhús KVH gefa út sameigin­ lega verðskrá. Hækkunin þar er 6,5 prósent. Sláturfélag Vopn firðinga hækk­ ar um 6,1 prósent. Í sameiginlegri verðskrá frá Norðlenska og SAH afurðum er hækkunin 5,1 prósent miðað við reiknað afurðaverð Norðlenska í síðustu sláturtíð, en 5,5 prósent miðað við SAH afurðir. Sláturfélag Suðurlands var fyrst til að birta afurðaverð og þar er hækkunin á reiknuðu afurðaverði 3,9 prósent. Nær launalausir sauðfjár­ bændur enn eitt árið Unnsteinn skrifaði í síðasta tölu­ blað Bænda blaðsins um stöðu og horfur fyrir afurðaverð til sauðfjár­ bænda árið 2021. Þar segir hann ljóst að sú leiðrétting sem sauð­ fjárbændur hafi kallað eftir muni ekki nást fram. „Sauðfjárbændur munu að óbreyttu standa eftir nær launalausir enn eitt árið. Landssamtök sauðfjárbænda settu fram viðmiðunarverð til tveggja ára síðastliðið haust. Þar var gert ráð fyrir því að afurðaverð haustið 2020 yrði 600 kr./kg og haustið 2021 færi verðið upp í 700 kr./ kg. Þetta verð var sett fram sem hófleg krafa og horft til þess að nú í haust væri búið að vinna að fullu til baka 40% verðfall sem varð 2016–2017,“ skrifar hann. Hann bendir á nauðsyn þess að vinnu verði haldið áfram í sam­ starfi stjórnvalda við sláturleyfis­ hafa við mótun tillagna að aðgerð­ um sem geta skapað forsendur fyrir aukinni hagræðingu við slátrun og vinnslu. Mikilvægt sé að ljúka þeirri vinnu sem fyrst, því samanburður við sláturkostnað erlendis sýni að með aukinni hag­ ræðingu megi ná fram verulegum ávinningi. /smh Pinnabyssur og púðurskot Boltabyssur Skot í rotara Egilsholti 1, 310 Borgarnesi Sími 430 5500, www.kb.is Kíktu inn á www.kb.is Landbúnaðarsýningunni frestað um eitt ár Landbúnaðarsýningunni Íslensk­ ur landbúnaður 2021, sem átti að halda í Laugardalshöllinni 8. til 10. október næstkomandi, hefur verið frestað um eitt ár og verður því haldin 14. til 16. október 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi M. Jóhannessyni, framkvæmdastjóra sýningarinnar. Þar kemur fram að talin er of mikil áhætta að halda sýninguna í ár, þar sem sýningin sé mjög stór og búist hafi verið við miklum fjölda gesta víðs vegar að af landinu. „Okkur hjá Ritsýn þykir þetta ákaflega leitt en við höfum ákveðið í ljósi aðstæðna að færa sýninguna til 14.–16. október 2022. Þeir sýnendur er hafa þegar greitt hálft básagjald munu halda sínum básum óbreyttum. Jákvæð viðbrögð Við höfum kannað óformlega viðhorf bænda til næstu sýningar og fengið einstaklega jákvæð viðbrögð og vitum að sýningin hefur almennt fengið mjög góðan hljómgrunn hjá þjóðinni. Hlökkum til að sjá ykkur á Íslenskur landbúnaður 2022 í Laugardalshöllinni“, segir í tilkynningunni. /smh Frá landbúnaðarsýningunni Íslenskur landbúnaður 2018 í Laugardalshöll. Mynd / HKr. Garðyrkjuskólinn Reykjum: Heildarumgjörð garðyrkju- námsins er brothætt Nemendur í starfsmenntanámi við Garðyrkjuskólann á Reykjum settust á skólabekk í upphafi vikunnar. Þetta er síðasti garðyrkjuhópurinn sem útskrifast frá skólanum undir merki Landbúnaðarháskóla Íslands því á næsta ári flyst námið til Fjölbrautaskóla Suðurlands. Guðríður Helgadóttir hjá Garð­ yrkjuskólanum á Reykjum segir að starfsfólki skólans þyki alltaf gaman þegar nemendur mæta aftur í skólann á haustin, hvort sem það eru nýnemar eða nemendur á seinna ári námsins eins og núna. „Undirbúningur fyrir kennsluna hefur gengið vel en heildarumgjörð námsins er brothætt. Starfsmönnum hefur fækkað, annars vegar með uppsögn og hins vegar hafa starfs­ menn hætt og engir ráðnir í þeirra stað. Einnig hefur fé til daglegs reksturs námsins verið skert veru­ lega af hálfu LbhÍ. Við starfsmenn munum að sjálfsögðu gera okkar besta til að þetta komi ekki niður á gæðum námsins, eftir því sem kostur er, og að nemendur fái það sem þeim var lofað. Að sjálfsögðu hlökkum við til að hitta okkar frábæra og öfluga nemendahóp aftur og vonum svo sannarlega að okkur takist að halda okkar striki í skólastarfinu.“ /VH Guðríður Helgadóttir. Breytingar á verðskrá SS: Betri flokkar hækka í verði en lakari flokkar lækka Sláturfélag Suðurlands hefur birt breytingar á verðskrá sinni á ungnautakjöti og tekur breytingin gildi 30. ágúst næstkomandi. Verð á ungnautakjöti hækkar við breytingarnar en aðrir flokkar eru óbreyttir. Breytingin felst í lækkun á lakari flokkum og hækkun á betri flokkum. Allir gripir sem flokkast undir 200 kíló lækka í verði, P gripir frá 9,4% í rúmlega 17,5%. O­ gripir undir 200 kíló lækka um 5,4% og aðrir flokkar undir 200 kíló lækka um 4,2 til 4,3%. Sláturfélagið breytti verðskrá sinni síðast í nóvember 2020 og er þannig 12 mánaða breyting á undir 200 kílóa gripum frá 24% í 2,7%, mest í lökustu flokkuninni. Í þyngdarflokknum 200 til 260 kílóa gripir eru það einungis O og lakari flokkar sem lækka um 1,2% niður í 4,4% fyrir P­. O flokkar og betri standa í stað. Í yfir 260 kílóa þyngdarflokki er það einungis P og P­ sem lækka en allir aðrir flokkar hækka. Frá O nemur hækkunin í kringum 2%. Ef horft er til 12 mánaða sést að lækkunin á P­ hefur verið í kringum 10% meðan að U hefur hækkað um 3,6% en annað hefur breyst minna. Á heimasíðu Landssambands kúabænda, naut.is, segir að það veki athygli að um sé um að ræða fyrstu verðbreytingu ársins 2021. Árin á undan hefur verið algengt að sláturleyfishafar breyti verðskrám sínum tvisvar til þrisvar á ári. „Það væri því ekki ósennilegt að frekari verðbreytinga væri að vænta. Því er mikilvægt fyrir bændur að fylgjast vel með verðskránum, sem eru reglulega uppfærðar, og má finna nýjustu uppfærsluna undir Markaðsmál og verðlistar á forsíðu naut.is“. /VH Kolefnislosun eykst frá fluginu Losun koltvísýringsígilda frá flugsamgöngum á öðrum ársfjórðungi 2021 var um 90 kílótonn samkvæmt bráðabirgða bútreikningi. Þetta er aukning um 41,7% frá fyrsta fjórðungi ársins og 54,1% hærra gildi en á öðrum ársfjórðungi 2020 en sá árs fjórðungur mark­ ast að mestu samgöngutakmörk­ unum í fyrstu bylgju kórónu­ veirufaraldursins. Losun á öðrum ársfjórðungi 2021 var 84% minni en losun á öðrum ársfjórðungi 2018 þegar losun frá flutningum með flugi var mest, eða 595 kílótonn. Breytt staða í flugrekstri á Íslandi hefur áhrif Samkvæmt vef Hagstofu Íslands hafa orðið miklar breytingar í losun koltvísýrings frá flugi, ekki síst vegna fækkunar íslenskra fyr­ irtækja í flugrekstri og samdráttar vegna yfirstandandi faraldurs. Losun reiknast eingöngu vegna reksturs íslenskra flugfélaga en ekki vegna flugs erlendra fyrir­ tækja. Flugrekstur nær yfir bæði farþega­ og fraktflug en það síð­ arnefnda varð fyrir minni áhrifum vegna faraldursins. Losunartölur fyrir 2021 reiknast út frá innflutn­ ingi á eldsneyti til landsins og eldsneytiskaupum íslenskra fyrir­ tækja erlendis. Eldsneyti sem selt er til erlendra flugrekstraraðila er áætlað út frá komutölum og dregið frá heildarsölu. /VH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.