Bændablaðið - 26.08.2021, Side 36

Bændablaðið - 26.08.2021, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 36 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 UTAN ÚR HEIMI Rannsókn á vegum Harvard háskóla: Loftmengun skógarelda hefur áhrif á Covid-19 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) skilgreinir loftmengun sem eitt helsta umhverfisvanda- mál nútímans. Samkvæmt mati stofnunarinnar er hægt að rekja allt að sjö milljón dauðsföll á ári til loftmengunar og talið er að flest þeirra orsakist af fínu svifryki eða PM2.5. Nýlega var gerð rannsókn á vegum Harvard háskólans í Bandaríkjunum sem leiddi í ljós að svifryksmengun vegna skógar- elda sem geisað hafa á vesturströnd Bandaríkjanna til langs tíma, hafi aukið fjölda þeirra sem látið hafa í lægra haldi fyrir Covid-19. Meðlimir rannsóknarinnar gerðu könnun á tímabilinu mars - desem- ber árið 2020 en talið er að þúsund- ir tilfella Covid-19, og að stórum hluta dauðsfalla vegna veirunnar í ríkjum Kaliforníu, Oregon og Washington, geti stafað af auk- inni svifryksmengun sem stafar af skógareldum. Skógareldar geisa árlega um vesturströnd Bandaríkjanna en hafa undanfarin ár færst í auk- ana. Vegna aukins umfangs þeirra og útbreiðslu ná skógsvæði ekki að jafna sig nægilega ár hvert og samkvæmt tölfræðilegum upplýs- ingum Wildfire Association er nú loftmengun í San Francisco og Portland meðal þeirra mestu í heim- inum. Slík mengun sem er langt yfir heilsuverndarmörkum gerir loftvegina næmari, veldur lungna- sýkingum og hefur þannig veruleg áhrif á smitleiðir veirusýkingar. Svifryk hefur áhrif á heildarfjölda smita Vegna mikilla skógarelda í sumum sýslum Kaliforníu og Washington ríkja leiddi rannsóknin, sem birt var í tímaritinu Science Advances, í ljós, að næstum 20 prósent tilfella Covid-19 tengdust auknu magni svifryks. „Við komumst að því að í sumum sýslunum var hlutfall af heildar- fjölda Covid-19 tilfella og dauðs- falla vegna mikils PM2,5 mjög hátt og að í heildina er þetta mjög hættu- leg samsetning,“ sagði Francesca Dominici, líffræði- og lýðheilsupró- fessor við Harvard og einn höfunda rannsóknarinnar, um tengsl milli aukningar á svifryki og áhættu af Covid-19 tilfellum og dauðsföllum. „Það er virkilega skelfilegt þegar við höldum áfram að horfast í augu við þessa skógarelda um allan heim. Vísindamennirnir sem unnu að rann- sókninni notuðu meðal annars gervi- tungl til að fylgjast með því þegar skógareldar loguðu auk skynjara á jörðu niðri til að fylgjast með magni af fínu svifryki, eða PM2.5. „Einnig var tekið tillit til annarra breytna eins og veðurs, fólksfjölda og almennrar þróunar í faraldrinum til að hafa yfirlit yfir þá þætti sem gætu skekkt niðurstöðurnar,“ sagði Dominici. Þar sem skógareldar hafa brennt gríðarstór svæði vesturstrandarinn- ar undanfarin ár, hafa lýðheilsu- yfirvöld í auknum mæli staðið frammi fyrir þrálátum erfiðleikum í tengslum við svifryksmengun. Öndunarfærasjúkdómar líkt og astmi eða langvinn lungnateppa hafa undið upp á sig auk andlegra heilsufarslega afleiðinga, til að mynda kvíða og þunglyndis, í kjölfar þess að búa við slíkar aðstæður. Gárungar geta þó ekki stillt sig og koma með aðra kenningu í kjöl- far svifryksmengunar og aukinna smita Covid-19. Þar sem svo margir hafa tilhneigingu til að halda sig innandyra við þess háttar aðstæð- ur getur slíkt að sjálfsögðu leitt til meiri samskipta við sýkt fólk. Sem er innandyra. /SP Þann 19. ágúst síðastliðinn höfðu yfir milljón hektarar lággróðurs og skóglendis brunnið vegna þurrkatíðar í tólf ríkjum Bandaríkjanna á þessu ári samkvæmt tölum National Interagency Fire. Olíuvinnsla í Alaska veldur deilum: Dómstóll kemur í veg fyrir umfangsmikið borverkefni – Hafði áður verið samþykkt af stjórn Trumps og notið velvilja Bidens Samkvæmt vefsíðu Seattle Times rifti alríkisdómari við héraðsdóm Bandaríkjanna í Alaska, Sharon L. Gleason, fyrir skömmu fram- kvæmdaleyfi fyrir víðtæku olíu- borunarverkefni, þekktu sem „Willow verkefnið“ sem áætlað var að framleiddi um 150.000 tunnur af olíu á dag næstu 30 árin. Margra milljarða dollara áætl- un olíurisans ConocoPhillips hafði verið samþykkt af stjórn Trumps og löglega studd af Biden-stjórninni. Umhverfisverndarsamtök tóku hins vegar í taumana og héldu því fram að ekki væri tekið tillit til þeirra áhrifa sem boranir hefðu á dýralíf, auk þess sem bruni olíunnar hefði áhrif á hlýnun jarðar. Uppbygging auðlinda í húfi Gleason lét hafa eftir sér að þegar stjórn Trumps heimilaði verkefnið hefði álit og útilokun skrifstofu inn- anríkisráðuneytisins á losun gróð- urhúsalofttegunda við greiningu á umhverfisáhrifum verkefnisins verið best lýst sem „handahófskenndri og bráðfyndinni“. Ekki voru allir á sama máli og Gleason og töldu repúblikanar í emb- ættissætum Alaska úrskurð hennar „skelfilega ákvörðun“ og vildu meina að hún líkti olíuframleiðslu við „tilræði einræðis og hryðju- verkasamtaka“. Úrskurðurinn hefði að auki ótæpileg áhrif á líf og störf margra Alaskabúa sem ynnu við olíuframleiðslu, auk þess sem Josh Revak, formaður öldungadeildar- nefndar ríkisins, benti á að „upp- bygging auðlinda í Alaska borgar reikningana vegna almannaöryggis, menntunar og heilsu og velferðar allra í Alaska“. Willow verkefnið er nú orðið pólitísk og umhverfisleg vogar- stöng, ekki aðeins vegna umfangs síns og hugsanlegra vistfræðilegra skemmda, heldur einnig vegna þess að stjórn Joe Biden forseta hefði kosið að styðja það löglega. En í kosningabaráttu hans hét hann hins vegar metnaðarfullri viðleitni í bar- áttunni gegn umhverfis- og loftslags- breytingum. Neyðarástand í loftslagsmálum Í maí síðastliðnum vakti því stjórn Bidens reiði talsmanna umhverfis mála þegar Alaska var kynnt niðurstaða héraðsdóms Bandaríkjanna þar sem ákveðið hafði verið í stjórnartíð Trumps um að gefa grænt ljós á Willow- verkefnið. Innanríkisráðuneyti Bidens vildi meina að ákvörðun Trump-stjórnarinnar hefði verið í samræmi við þáverandi umhverfis- reglur. Reiðin vegna ákvörðunar Biden varði Willow-verkefnið, þrátt fyrir loforð sitt um að berjast gegn loftslagsbreytingum. Var almennt litið svo á að þar væri einungis um pólitískt átak að ræða – til þess að vinna velvilja Lisa Murkowski, öldunga deildarþingmanns repúbli- kana. „Þetta er gríðarlegur sigur fyrir viðskiptavini okkar og loftslagið,“ sagði Jeremy Lieb, lögfræðingur Earthjustice, sem var fulltrúi margra stefnenda í málinu gegn samþykkt Trump-stjórnarinnar á verkefninu. „Ákvörðun dómstólsins gerir að engu ákvörðun Trump-stjórnarinnar um að samþykkja Willow-verkefnið og við vonum að stjórn Bidens noti þetta tækifæri til að endurskoða ver- kefnið í ljósi skuldbindingar sinnar til að takast á við neyðarástand í loftslagsmálum. Ekkert hefur þó heyrst enn, hvorki úr herbúðum Hvíta hússins né frá talsmönnum ConocoPhillips fyrirtækisins hvort áætlað sé að áfrýja úrskurði dómstólsins. /SP Margra milljarða dollara áætlun olíurisans ConocoPhillips hafði verið samþykkt af stjórn Trumps og löglega studd af Biden-stjórninni. Umhverfisverndarsamtök tóku hins vegar í taumana og héldu því fram að ekki væri tekið tillit til þeirra áhrifa sem boranir hefðu á dýralíf, auk þess sem bruni olíunnar hefði áhrif á hlýnun jarðar. Olíuvinnsla í Prudhoe flóa við Sagavanirktok ána í Alaska. Mynd / Global Warming.org Allt frá upptökum sínum í Klettafjöllunum rennur Colorado- fljótið að Kaliforníuflóa í Mexíkó, en tæpar 40 milljónir manna reiða sig á vatn þess hvort sem varðar áveitu, rafmagn sem framleitt er með vatnsafli eða sem almenna lífæð hinna þurrviðrasömu vest- urríkja Bandaríkjanna. Nú, í fyrsta skipti, hafa banda- rísk stjórnvöld lýst yfir neyðarástandi vegna vatnsþurrðar, en eitt stærsta vatnslón Bandaríkjamanna, Lake Mead, sem liggur við Hoover stíflu í Colorado-fljóti sýnir samkvæmt spám fram á einungis 35% afkasta- getu í árslok 2021. Áætlað er að um helming sam- dráttar á meðalrennsli árinnar – sem hefur lækkað um 20 prósent miðað við síðustu öld – megi rekja til hækkandi hitastigs og að stórum hluta til minnkandi úrkomu. Þetta, auk langvarandi þurrka og skógar- elda, eru merkjanleg áhrif loftslags- breytinga samkvæmt yfirlýsingu bandarískra yfirvalda, og ógna sér- staklega framtíð ríkjanna Arizona, Nevada og Mexíkó sem þurfa í kjölfarið að draga úr vatnsneyslu árið 2022 undir samningsbundnum lögum. Ríki Kaliforníu, sem gegna öðrum og mun eldri lögum en ríkin þrjú, mun ekki verða fyrir barðinu á vatns- skorti í bili en talið er að bújarðir Arizonaríkis verði hvað verst úti þar sem áætlaður niðurskurður veldur næstum fimmtungi vatnsmissis. Hlutur Nevada af vatninu í Colorado- fljótinu mun lækka um 7 prósent og Mexíkó um 5 prósent, að sögn emb- ættismanna. Fyrirbyggjandi aðgerðir afar nauðsynlegar Embættismenn telja að vatnsskortur- inn sé á fyrsta stigi, en þó, samkvæmt útreikningum, sé möguleiki á að staða Lake Mead gæti náð annars stigs og þá alvarlegri skorti, innan tveggja ára og stigi þrjú ekki löngu eftir það. Á stigi þrjú mun vatnsyfir- borð lónsins vera orðið það lágt að vatn streymir ekki lengur úr lóninu, hvorki með aðstoð vatnshverfla eða af sjálfsdáðum. Yfirvöld vinna nú í aðgerðum í þágu þurrðarinnar en óskandi er að vakning til meðvit- undar rísi hvað varðar almennan skort í kjölfar hlýnunar jarðar. Eitt er víst að róttæk aðlögun er í vændum á næstu áratugum. /SP Vatnsskortur í Colorado-fljóti: Róttæk aðlögun í vændum Hoover stífla í Colorado-fljóti er nefnd í höfuðið á Herbert Clark Hoover, 31. forseta Bandaríkjanna, 1929–1933 fyrir repúblikana.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.