Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
11Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur, Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN &
HAIR og nýjasta varan er Happier GUTS, allt vörur
sem hafa reynst fólki vel.
Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum,
engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er
á Grenivík. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi
vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom
til vegna þess að hana langaði að setja saman
þau frábæru hráefni sem eru framleidd á Íslandi
á sjálfbæran hátt frá náttúrulegum auðlindum á
Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum
gæðahráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík
og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga
frá Matís.
„Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur
fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir
sýna fram á staðfesta virkni þeirra“ segir Ólöf
Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar
auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska
náttúruafurð, hrein hráefni sem eru framleidd af
viðurkenndum íslenskum framleiðendum. Öll fram-
leiðsla Eylífar fer fram á Grenivík.
„Við vitum öll að heilsan er dýrmætust því er svo
mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis
heilsuvandamál. Heilbrigð melting er grunnurinn
að góðri heilsu, þess vegna vildum við hjá Eylíf
bjóða upp á hágæðavöru fyrir meltinguna, Happier
GUTS“ segir Ólöf Rún.
Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru:
• Kalkþörungar frá Bíldudal
• Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ
• GeoSilica frá Hellisheiði
• Kollagen frá Sauðárkróki
• Kítósan frá Siglufirði
• Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki
í Hafnarfirði
Hreint óerfðabreytt hráefni
Íslensk framleiðsla
Heilsan er dýrmætust
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað
börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en
ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Nýjasta varan frá Eylíf er Happier GUTS
sem inniheldur fjögur íslensk hráefni:
• Kítósan er unnið úr rækjuskel, sem eru náttúrulegar
trefjar og hefur staðfesta virkni
• Kalkþörungar sem eru mjög kalkríkir og innihalda 74
stein- og snefilefni frá náttúrunni, margar rannsóknir
staðfesta virkni þess.
• GeoSilica kísillinn sem hefur reynst vel og rannsóknir
staðfesta virkni þess.
• Fjallagrös sem eru vel þekkt fyrir sína góðu áhrif
í gegnum tíðina
• Við styrkjum blönduna með öflugri blöndu af
meltingarensýmum, C vítamíni, krómi, joði og sink.
Athugið að ekki má taka D vítamín eða önnur fituleysanleg vítamín
á sama tíma. Látið líða ca 2 klst á milli.
Hrein íslensk fæðubót
frá Eylíf
Hartmann Guðmundsson Þórdís S. Hannesdóttir
Hartmann Kristinn Guðmundsson er rúmlega sextugur
hjólreiðakappi sem hefur verið að glíma við óþægindi
í liðum undanfarin ár. Hann segist finna góðan mun
á sér eftir að hann fór að taka inn Active JOINTS frá
Eylíf, bætiefni úr náttúrulegum innihaldsefnum úr
íslenskri náttúru.
Hartmann hefur stundað hjólreiðar markvisst í nokkur
ár en hnévandamál hafa sett strik í reikninginn. „Ég er
með léleg hné og er búinn að fara í nokkrar aðgerðir,“
segir Hartmann. „En ég hef verið að nota Active
JOINTS núna í dálítinn tíma og það hefur gert mér
kleift að hjóla án óþæginda. Ég var alltaf að drepast úr
verkjum áður, bæði meðan ég hjólaði og eftir álag, en
núna finn ég varla fyrir því.“
Hartmann segist einnig hafa fundið fyrir óvæntum
jákvæðum áhrifum eftir hann fór að taka inn Active
JOINTS. „Ég var lengi búinn að vera frekar slæmur af
brjóstsviða en hann hefur minnkað eftir að ég fór að
taka inn þessi bætiefni, það var alveg óvænt. Þetta
hefur líka haft jákvæð áhrif á gigt í höndunum. Ég var
oft að fá verki í hendurnar undir álagi, en það er lítið
um það núna. Þetta virkar náttúrulega á alla liðina. Ég
upplifi þetta eins og verið sé að smyrja liðina“ segir
Hartmann, sem er alls ekki á því að hætta að nota
Active JOINTS. „Það er alls ekki á dagskrá, maður
er orðinn alveg húkkt á þessu,“ segir hann og hlær.
Hartmann tekur þrjú hylki á dag, yfirleitt á morgnana
og segir að ef hann verði uppiskroppa með bætiefnið
þá líði kannski vika þar til hann byrjar að finna fyrir
verkjum aftur.
Hartmann hefur keppt í hjólreiðum í aldurshópnum 60
plús en í júlí keppti hann í KIA gullhringnum og vann
fyrstu verðlaun. „Það voru 15 sem tóku þátt í 60 plús
flokknum, sumir mjög öflugir svo ég var mjög ánægður
með sigurinn. Um helgina hjólaði ég svo 205 kílómetra
og fann ekki fyrir neinu eftir það. Þetta hefði ekki verið
séns áður en ég fór að taka inn Active JOINTS,“ segir
Hartmann ánægður.
Ég mæli eindregið með Happier GUTS frá Eylíf það
hefur reynst mér mjög vel.
Ég hef alltaf verið með lata þarmastarfsemi og hef
verið að prófa ýmislegt í gegnum tíðina til að laga
meltinguna en var bara hætt að hugsa um þetta því
ekkert virtist koma að gagni og ég hugsaði bara „ég
er bara svona og lítið við því að gera“.
Ég var svo heppin að kynnast Happier GUTS nýlega
eftir ábendingu um að þetta virkaði vel, en ég var
búin að vera í langri hvíld frá öðrum bætiefnum.
Ég ákvað ég að prófa Happier GUTS sem ég sé ekki
eftir, því eftir ca 2ja mánaða notkun fann ég gríðalegan
mun á mér, allt annað líf en áður.
Óþægindin sem ég áður hafði voru ekki lengur svo
fann ég að öll almenn líðan var mjög góð bæði andleg
sem líkamleg, mér líður betur.
Ég mun svo sannarlega halda áfram að taka inn þetta
frábæra efni sem er unnið úr íslenskum gæðahráefnum
og framleitt hér á landi.
Ég mæli eindregið með Happier GUTS því það hefur
hjálpað mér mjög mikið.
Vörulínan frá Eylíf
Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup,
Heilsuhúsinu Fjarðarkaupum, Krónunni og Nettó
Ókeypis heimsending af www.eylif.is