Bændablaðið - 26.08.2021, Side 11

Bændablaðið - 26.08.2021, Side 11
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 11Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur, Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR og nýjasta varan er Happier GUTS, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukaefnum er bætt við og framleiðslan er á Grenivík. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi vörulínunnar Eylíf, en hugmyndin að henni kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á Íslandi á sjálfbæran hátt frá náttúrulegum auðlindum á Íslandi og auka þannig aðgengi fólks að þessum gæðahráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta varan er Active JOINTS sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á staðfesta virkni þeirra“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum framleiðendum. Öll fram- leiðsla Eylífar fer fram á Grenivík. „Við vitum öll að heilsan er dýrmætust því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsuvandamál. Heilbrigð melting er grunnurinn að góðri heilsu, þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á hágæðavöru fyrir meltinguna, Happier GUTS“ segir Ólöf Rún. Íslensku hráefnin sem notuð eru í allar Eylíf vörurnar eru: • Kalkþörungar frá Bíldudal • Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ • GeoSilica frá Hellisheiði • Kollagen frá Sauðárkróki • Kítósan frá Siglufirði • Íslenskar jurtir handtíndar frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði Hreint óerfðabreytt hráefni Íslensk framleiðsla Heilsan er dýrmætust Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. Nýjasta varan frá Eylíf er Happier GUTS sem inniheldur fjögur íslensk hráefni: • Kítósan er unnið úr rækjuskel, sem eru náttúrulegar trefjar og hefur staðfesta virkni • Kalkþörungar sem eru mjög kalkríkir og innihalda 74 stein- og snefilefni frá náttúrunni, margar rannsóknir staðfesta virkni þess. • GeoSilica kísillinn sem hefur reynst vel og rannsóknir staðfesta virkni þess. • Fjallagrös sem eru vel þekkt fyrir sína góðu áhrif í gegnum tíðina • Við styrkjum blönduna með öflugri blöndu af meltingarensýmum, C vítamíni, krómi, joði og sink. Athugið að ekki má taka D vítamín eða önnur fituleysanleg vítamín á sama tíma. Látið líða ca 2 klst á milli. Hrein íslensk fæðubót frá Eylíf Hartmann Guðmundsson Þórdís S. Hannesdóttir Hartmann Kristinn Guðmundsson er rúmlega sextugur hjólreiðakappi sem hefur verið að glíma við óþægindi í liðum undanfarin ár. Hann segist finna góðan mun á sér eftir að hann fór að taka inn Active JOINTS frá Eylíf, bætiefni úr náttúrulegum innihaldsefnum úr íslenskri náttúru. Hartmann hefur stundað hjólreiðar markvisst í nokkur ár en hnévandamál hafa sett strik í reikninginn. „Ég er með léleg hné og er búinn að fara í nokkrar aðgerðir,“ segir Hartmann. „En ég hef verið að nota Active JOINTS núna í dálítinn tíma og það hefur gert mér kleift að hjóla án óþæginda. Ég var alltaf að drepast úr verkjum áður, bæði meðan ég hjólaði og eftir álag, en núna finn ég varla fyrir því.“ Hartmann segist einnig hafa fundið fyrir óvæntum jákvæðum áhrifum eftir hann fór að taka inn Active JOINTS. „Ég var lengi búinn að vera frekar slæmur af brjóstsviða en hann hefur minnkað eftir að ég fór að taka inn þessi bætiefni, það var alveg óvænt. Þetta hefur líka haft jákvæð áhrif á gigt í höndunum. Ég var oft að fá verki í hendurnar undir álagi, en það er lítið um það núna. Þetta virkar náttúrulega á alla liðina. Ég upplifi þetta eins og verið sé að smyrja liðina“ segir Hartmann, sem er alls ekki á því að hætta að nota Active JOINTS. „Það er alls ekki á dagskrá, maður er orðinn alveg húkkt á þessu,“ segir hann og hlær. Hartmann tekur þrjú hylki á dag, yfirleitt á morgnana og segir að ef hann verði uppiskroppa með bætiefnið þá líði kannski vika þar til hann byrjar að finna fyrir verkjum aftur. Hartmann hefur keppt í hjólreiðum í aldurshópnum 60 plús en í júlí keppti hann í KIA gullhringnum og vann fyrstu verðlaun. „Það voru 15 sem tóku þátt í 60 plús flokknum, sumir mjög öflugir svo ég var mjög ánægður með sigurinn. Um helgina hjólaði ég svo 205 kílómetra og fann ekki fyrir neinu eftir það. Þetta hefði ekki verið séns áður en ég fór að taka inn Active JOINTS,“ segir Hartmann ánægður. Ég mæli eindregið með Happier GUTS frá Eylíf það hefur reynst mér mjög vel. Ég hef alltaf verið með lata þarmastarfsemi og hef verið að prófa ýmislegt í gegnum tíðina til að laga meltinguna en var bara hætt að hugsa um þetta því ekkert virtist koma að gagni og ég hugsaði bara „ég er bara svona og lítið við því að gera“. Ég var svo heppin að kynnast Happier GUTS nýlega eftir ábendingu um að þetta virkaði vel, en ég var búin að vera í langri hvíld frá öðrum bætiefnum. Ég ákvað ég að prófa Happier GUTS sem ég sé ekki eftir, því eftir ca 2ja mánaða notkun fann ég gríðalegan mun á mér, allt annað líf en áður. Óþægindin sem ég áður hafði voru ekki lengur svo fann ég að öll almenn líðan var mjög góð bæði andleg sem líkamleg, mér líður betur. Ég mun svo sannarlega halda áfram að taka inn þetta frábæra efni sem er unnið úr íslenskum gæðahráefnum og framleitt hér á landi. Ég mæli eindregið með Happier GUTS því það hefur hjálpað mér mjög mikið. Vörulínan frá Eylíf Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu Fjarðarkaupum, Krónunni og Nettó Ókeypis heimsending af www.eylif.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.