Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Svo hljóðar gamla þulan, Nauta
mál á nýársnótt, er Steinmóður
heyrði þegar kýrnar hófu mál sitt á
nýársnótt en það er gömul þjóðtrú
að þá tali kýrnar mannamál.
Það er þó ekki hættulaust að
liggja á hleri á þeirri stundu
því samkvæmt þjóðsögum Jóns
Árnasonar reyna kýrnar að æra
þá sem það gera.
Á nýársnótt verða margir hlut-
ir undarlegir. Það er eitt að kýr
mæla þá mannamál og tala saman.
Einu sinni lá maður úti í fjósi og á
nýársnótt til þess að heyra hvað
kýrnar töluðu. Hann heyrir þá að
ein kýrin segir: „Mál er að mæla
(aðrir: mæra).“ Þá segir önnur:
„Maður er í fjósi.“ „Hann skul-
um vér æra,“ segir þriðja kýrin.
„Áður en kemur ljósið,“ segir hin
fjórða. Frá þessu gat maðurinn
sagt morguninn eftir, en ekki fleiru
því kýrnar höfðu ært hann. (Jón
Árnason. Íslenskar þjóðsögur og
ævintýri I, 609)
Hvort þetta er satt skal ósagt
látið en hitt er víst að í þulunni
koma fram nokkur gömul og góð
kúaheiti.
Í gagnasafni nautgriparæktar-
innar er að finna ýmis gögn og
þar á meðal má finna nafngiftir
gripa. Upplýsingum um nafngift-
ir íslenskra kúa er alla jafnan lít-
ill gaumur gefinn en þó tók Jón
Viðar Jónmundsson, þáverandi
ráðunautur hjá Bændasamtökum
Íslands, þessar upplýsingar saman
árið 1995 og birti í 8. tölublaði
Freys það ár. Þær upplýsingar
náðu yfir fimm ára tímabil frá
1990 til 1995. Á þeim tíma var að
finna um það bil 4.500 mismun-
andi nöfn á kúnum og þá reyndist
Branda vera algengasta nafnið.
Í bókinni Íslenska mjólkurkýrin
eftir Jón Torfason og Jón Viðar
Jónmundsson sem gefin var út
2001 er að finna lista með kúanöfn-
um og fjölda. Án þess að það komi
fram eru nöfnin og fjöldatölurn-
ar án efa fengnar úr skýrsluhaldi
nautgriparæktarinnar og líklegt að
þar sé um að ræða gögn frá tíunda
ártug síðustu aldar. Þar er nafnið
Branda algengast.
Fyrir stuttu síðan tókum við
saman samsvarandi upplýsingar en
að þessu sinni til þeirra kúa sem nú
eru á lífi. Þær, rétt um 25.400 kýr,
bera nálægt 5.600 mismunandi nöfn
en enn þann dag í dag gefur mikill
meirihluti bænda kúm sínum nafn
en lætur ekki númerin duga. Það má
kalla góðan og gegnan sið íslenskra
bænda að gefa búfé sínu nöfn sem
sýnir að í þeirra huga skipar hver
einstaklingur sérstakan sess. Nöfn
gripanna eru oftar en ekki dregin
af einkennum viðkomandi gripa og
nafngiftirnar endurspegla því margt
og segja ákveðna sögu.
Í töflu 1 má sjá algengustu nöfn
núlifandi kúa eða þau sem 40 kýr
eða fleiri bera. Við skoðun á þess-
um lista er áberandi hversu mörg
algengustu nafnanna tengjast lit
eða öðrum útlitseinkennum kúnna,
eins og Rauðka, Skjalda, Stjarna,
Gríma, Kola, Branda og svo mætti
áfram telja. Það er í takti við það
sem var árin 1995 og 2001 en þarna
er að finna mörg sömu nöfn og voru
algengust þá.
Mjög algengt er að nöfn kúnna
séu tengd faðerni þeirra, það er að
um sé að ræða beinar skírskotanir
eða tilvísanir í nafn föður. Dæmi
um þetta er að þriðjungur dætra
Stráks 10011 bera nafnið Stelpa,
um þriðjungur dætra Bolta 09017
bera nöfnin Ró eða Skrúfa og
nálægt fjórðungur dætra Gusts
09003 bera nafnið Gola. Aðrar
algengar tengingar af þeim toga
eru Fossa undan Fossdal, Flauta og
Fiðla undan Lúðri, Droplaug eða
Dropa undan Dropa, Úlla undan
Úlla og Bót undan Bæti svo nokkur
dæmi séu tekin.
Í dætrahópi til dæmis Úranusar
10081 er að finna annars konar
skírskotanir. Í þeim hópi er að finna
nöfn eins og Venus og Pláneta og
svo bera nokkrar nafn ömmu sinn-
ar, það er Urður, auk þess sem nöfn
tengd lit og einkennum eru áber-
andi. Þar má nefna Húfa, Gríma,
Bauga og Gláma enda algengt
að dætur Úranusar séu húfóttar,
grímóttar, baugóttar eða glámóttar
að lit, allt eftir málvenjum á hverju
svæði fyrir sig.
Þegar skoðað er hvort nöfn
kúnna eru landshluta- eða svæða-
bundin kemur í ljós að nokkur
munur er milli svæða þó ekki sé
hann mikill. Algengustu nöfnin
eins og til dæmis Rauðka, Lukka,
Skjalda og Stjarna finnast um allt
land í svipuðum mæli. Nöfn sem
segja má að séu svæðabundin eru
fyrst og fremst bundin við Norður-
eða Suðurland, einfaldlega vegna
þess að þar er að finna meginþorra
kúnna. Þau nöfn sem telja má
„sunnlensk“ eru; Alfa, Arða, Brók,
Bylgja, Depla, Dæla, Elja, Fíkja,
Fold, Froða, Gata, Gloría, Hildur,
Hlíð, Hrísla, Inga, Katla, Kóróna,
Krafla, Krúna, Krækja, Leira, List,
Lína, Lögg, Löpp, Nös, Ólína,
Padda, Rauðbrá, Rauðskinna, Raun,
Rist, Róla, Rólind, Súpa, Skerpla,
Skrá, Skræpa, Sóldögg, Sókn, Spes,
Staka, Stoð, Stroka, Stör, Sveifla,
Sæunn, Sýning, Títla, Tunga,
Úrsúla, Vinda, Völva, Æska og
Ösp. Til „norðlenskra“ nafna má
hins vegar telja nöfn eins og Agnes,
Apríl, Billa, Bokka, Bredda, Brún,
Dásemd, Gerpla, Gilitrutt, Glóð,
Glæða, Gæska, Hjörð, Klöpp,
Molda, Myrra, Nala, Nía, Perla,
Príma, Sápa, Randalín, Ríma, Salka,
Sessa, Snoppa, Snör og Tugga.
Athyglisvert er að bera þetta
saman við lista Jóns Viðars yfir
svæðisbundin nöfn frá 1995.
Agnes, Brún og Molda eru nöfn
sem enn eru fyrst og fremst bundin
við Norðurland en notkun nafnsins
Sæunn hefur flust frá Norðurlandi
yfir á Suðurland samkvæmt þessu.
Breytingar á nafngiftum
Til þess að sjá hvort einhverjar
breytingar hafa orðið á nafngiftum
kúnna skoðuðum við nöfn kúa sem
fæddar voru 2005, 2010 og 2015.
Í töflu 2 er að finna 10 algengustu
nöfn kúa fæddra 2005, 2010 og
2015 ár hvert, alls 22 nöfn. Þeim er
raðað eftir hversu algeng þau voru
í árgangi 2005 og innan sviga sést
röð innan hvers árs.
„Sól skín á fossa,“ segir hún Krossa.
„Hvar á að tjalda,“ segir hún Skjalda.
„Suður við ána,“ segir hún Grána.
„Rýkur á Eiði,“ segir hún Reyður.
„Hulin er þúfa,“ segir hún Húfa.
„Ég vil fjósið finna,“ segir hún Kinna.
„Ég skal töðuna tyggja,“ segir hún Friggja.
„Ég skal fylla mína hít,“ segir hún Hvít.
„Ég skal éta sjálfur,“ segir hann litli kálfur.
„Ég ét sem ég þoli,“ segir hann stóri boli.
„Ég skal aka Steinmóði til Staðar, ef hann getur ekki þagað.
Nafngiftir kúnna
Tafla 1. Algengustu nöfn núlifandi kúa
Nafn Fjöldi Nafn Fjöldi Nafn Fjöldi
Rauðka 88 Lína 57 Sóley 43
Lukka 84 Sokka 56 Sunna 43
Skjalda 83 Húfa 56 Flauta 43
Stjarna 74 Freyja 56 Skotta 42
Gríma 72 Skessa 52 Skvetta 41
Kola 71 Rós 50 Nótt 41
Branda 70 Laufa 50 Ljómalin 41
Dimma 69 Búkolla 50 Bauga 41
Huppa 64 Von 49 Píla 40
Skrauta 61 Katla 49 Birta 40
Gola 58 Gæfa 47 Baula 40
Blíða 58 Sól 46
Rósa 57 Hekla 44
Tafla 2. Algengustu nöfn kúa sem fæddar voru 2005, 2010 og 2015
Hlutfall af nefndum kúm og innan sviga röð innan árgangs
Nafn Hlutfall og röð
2005
Hlutfall og röð
2010
Hlutfall og röð
2015
Branda 0,70% (1) 0,79% (1) 0,40% (5)
Huppa 0,65% (2) 0,38% (12) 0,30% (13)
Kola 0,63% (3) 0,49% (4) 0,30% (12)
Skjalda 0,58% (4) 0,61% (2) 0,39% (6)
Hryggja 0,54% (5) 0,18% (76) 0,13% (132)
Stjarna 0,48% (6) 0,44% (6) 0,26% (22)
Rauðka 0,47% (7) 0,33% (21) 0,33% (8)
Lína 0,45% (8) 0,26% (38) 0,27% (17)
Gríma 0,45% (9) 0,32% (26) 0,27% (18)
Skessa 0,41% (10) 0,36% (15) 0,29& (14)
Dimma 0,38% (14) 0,30% (27) 0,43% (4)
Rósa 0,36% (16) 0,43% (7) 0,23% (37)
Lukka 0,36% (17) 0,47% (5) 0,51% (1)
Skrauta 0,35% (18) 0,33% (20) 0,31% (10)
Sokka 0,33% (21) 0,49% (3) 0,24% (28)
Nótt 0,33% (23) 0,41% (8) 0,24% (30)
Búkolla 0,33% (25) 0,40% (10) 0,27% (20)
Perla 0,31% (30) 0,36% (16) 0,36% (7)
Laufa 0,31% (31) 0,26% (40) 0,46% (2)
Toppa 0,16% (112) 0,26% (36) 0,44% (3)
Katla 0,09% (267) 0,18% (77) 0,33% (9)
Skrá 0,03% (740) 0,40% (9) 0,03% (752)
Flest þeirra nafna sem þarna er að finna hafa verið notuð um langa hríð
og eru enn í notkun. Þetta á einkum við um þau nöfn sem vísa til litar eða
útlitseinkenna eins og til dæmis Branda, Huppa, Kola og Skjalda. Af þeim
nöfnum sem ekki draga taum af lit eða einkennum er greinilegt að nöfnin Lína
og Skessa njóta mestrar hylli. Skessa vísar þó eflaust til þess að viðkomandi
gripir séu stórir og mætti því allt eins flokka undir útlitseinkenni. Nöfnin
Lukka og Perla hafa lengi verið algeng og virðist auka vinsældir sínar. Þá
hefur nafnið Katla komið sterkar inn undanfarin ár en það er öðru fremur
bundið við Suðurland og vísar án efa til aukinnar umfjöllunar um hina miklu
eldstöð, Kötlu. Dæmigerð nöfn sem hafa vísan til föður kúnna eru nöfn eins
og Toppa og Skrá sem dætur Topps 07046 og Lykils 02003 bera oft og tíðum.
Þetta er mjög áberandi með Skrá sem er níunda algengasta nafnið hjá kúm
fæddum 2010 eða á þeim tíma þegar afkvæmi Lykils voru að fæðast. Hin
árin sem skoðuð voru (2005 og 2015) er nafnið Skrá tiltölulega lítið notað.
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur
í nautgriparækt
mundi@rml.is
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
SÆLINGSDALUR 2, 371 BÚÐARDALUR.
EINBÝLISHÚS Á LEIGULÓÐ
Óskað er eftir tilboði í fyrrum íbúðarhús ríkisjarðarinnar,
Sælingsdalur í Dalabyggð, sem boðið er til sölu á sér 10.856 m2
leigulóð, og fengið hefur nafnið, Sælingsdalur 2. Nánar tiltekið er
um að ræða 192 m2 einbýlishús, með sambyggðum 33 m2 bílskúr,
samtals 225,7 m2, byggt árið 2007.
Eignin verður sýnd fimmtudaginn 2. september á milli 13:00-17:00.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Verð: Tilboð.
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300