Bændablaðið - 26.08.2021, Qupperneq 52

Bændablaðið - 26.08.2021, Qupperneq 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 52 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Svo hljóðar gamla þulan, Nauta­ mál á nýársnótt, er Steinmóður heyrði þegar kýrnar hófu mál sitt á nýársnótt en það er gömul þjóðtrú að þá tali kýrnar mannamál. Það er þó ekki hættulaust að liggja á hleri á þeirri stundu því samkvæmt þjóðsögum Jóns Árnasonar reyna kýrnar að æra þá sem það gera. Á nýársnótt verða margir hlut- ir undarlegir. Það er eitt að kýr mæla þá mannamál og tala saman. Einu sinni lá maður úti í fjósi og á nýársnótt til þess að heyra hvað kýrnar töluðu. Hann heyrir þá að ein kýrin segir: „Mál er að mæla (aðrir: mæra).“ Þá segir önnur: „Maður er í fjósi.“ „Hann skul- um vér æra,“ segir þriðja kýrin. „Áður en kemur ljósið,“ segir hin fjórða. Frá þessu gat maðurinn sagt morguninn eftir, en ekki fleiru því kýrnar höfðu ært hann. (Jón Árnason. Íslenskar þjóðsögur og ævintýri I, 609) Hvort þetta er satt skal ósagt látið en hitt er víst að í þulunni koma fram nokkur gömul og góð kúaheiti. Í gagnasafni nautgriparæktar- innar er að finna ýmis gögn og þar á meðal má finna nafngiftir gripa. Upplýsingum um nafngift- ir íslenskra kúa er alla jafnan lít- ill gaumur gefinn en þó tók Jón Viðar Jónmundsson, þáverandi ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands, þessar upplýsingar saman árið 1995 og birti í 8. tölublaði Freys það ár. Þær upplýsingar náðu yfir fimm ára tímabil frá 1990 til 1995. Á þeim tíma var að finna um það bil 4.500 mismun- andi nöfn á kúnum og þá reyndist Branda vera algengasta nafnið. Í bókinni Íslenska mjólkurkýrin eftir Jón Torfason og Jón Viðar Jónmundsson sem gefin var út 2001 er að finna lista með kúanöfn- um og fjölda. Án þess að það komi fram eru nöfnin og fjöldatölurn- ar án efa fengnar úr skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar og líklegt að þar sé um að ræða gögn frá tíunda ártug síðustu aldar. Þar er nafnið Branda algengast. Fyrir stuttu síðan tókum við saman samsvarandi upplýsingar en að þessu sinni til þeirra kúa sem nú eru á lífi. Þær, rétt um 25.400 kýr, bera nálægt 5.600 mismunandi nöfn en enn þann dag í dag gefur mikill meirihluti bænda kúm sínum nafn en lætur ekki númerin duga. Það má kalla góðan og gegnan sið íslenskra bænda að gefa búfé sínu nöfn sem sýnir að í þeirra huga skipar hver einstaklingur sérstakan sess. Nöfn gripanna eru oftar en ekki dregin af einkennum viðkomandi gripa og nafngiftirnar endurspegla því margt og segja ákveðna sögu. Í töflu 1 má sjá algengustu nöfn núlifandi kúa eða þau sem 40 kýr eða fleiri bera. Við skoðun á þess- um lista er áberandi hversu mörg algengustu nafnanna tengjast lit eða öðrum útlitseinkennum kúnna, eins og Rauðka, Skjalda, Stjarna, Gríma, Kola, Branda og svo mætti áfram telja. Það er í takti við það sem var árin 1995 og 2001 en þarna er að finna mörg sömu nöfn og voru algengust þá. Mjög algengt er að nöfn kúnna séu tengd faðerni þeirra, það er að um sé að ræða beinar skírskotanir eða tilvísanir í nafn föður. Dæmi um þetta er að þriðjungur dætra Stráks 10011 bera nafnið Stelpa, um þriðjungur dætra Bolta 09017 bera nöfnin Ró eða Skrúfa og nálægt fjórðungur dætra Gusts 09003 bera nafnið Gola. Aðrar algengar tengingar af þeim toga eru Fossa undan Fossdal, Flauta og Fiðla undan Lúðri, Droplaug eða Dropa undan Dropa, Úlla undan Úlla og Bót undan Bæti svo nokkur dæmi séu tekin. Í dætrahópi til dæmis Úranusar 10081 er að finna annars konar skírskotanir. Í þeim hópi er að finna nöfn eins og Venus og Pláneta og svo bera nokkrar nafn ömmu sinn- ar, það er Urður, auk þess sem nöfn tengd lit og einkennum eru áber- andi. Þar má nefna Húfa, Gríma, Bauga og Gláma enda algengt að dætur Úranusar séu húfóttar, grímóttar, baugóttar eða glámóttar að lit, allt eftir málvenjum á hverju svæði fyrir sig. Þegar skoðað er hvort nöfn kúnna eru landshluta- eða svæða- bundin kemur í ljós að nokkur munur er milli svæða þó ekki sé hann mikill. Algengustu nöfnin eins og til dæmis Rauðka, Lukka, Skjalda og Stjarna finnast um allt land í svipuðum mæli. Nöfn sem segja má að séu svæðabundin eru fyrst og fremst bundin við Norður- eða Suðurland, einfaldlega vegna þess að þar er að finna meginþorra kúnna. Þau nöfn sem telja má „sunnlensk“ eru; Alfa, Arða, Brók, Bylgja, Depla, Dæla, Elja, Fíkja, Fold, Froða, Gata, Gloría, Hildur, Hlíð, Hrísla, Inga, Katla, Kóróna, Krafla, Krúna, Krækja, Leira, List, Lína, Lögg, Löpp, Nös, Ólína, Padda, Rauðbrá, Rauðskinna, Raun, Rist, Róla, Rólind, Súpa, Skerpla, Skrá, Skræpa, Sóldögg, Sókn, Spes, Staka, Stoð, Stroka, Stör, Sveifla, Sæunn, Sýning, Títla, Tunga, Úrsúla, Vinda, Völva, Æska og Ösp. Til „norðlenskra“ nafna má hins vegar telja nöfn eins og Agnes, Apríl, Billa, Bokka, Bredda, Brún, Dásemd, Gerpla, Gilitrutt, Glóð, Glæða, Gæska, Hjörð, Klöpp, Molda, Myrra, Nala, Nía, Perla, Príma, Sápa, Randalín, Ríma, Salka, Sessa, Snoppa, Snör og Tugga. Athyglisvert er að bera þetta saman við lista Jóns Viðars yfir svæðisbundin nöfn frá 1995. Agnes, Brún og Molda eru nöfn sem enn eru fyrst og fremst bundin við Norðurland en notkun nafnsins Sæunn hefur flust frá Norðurlandi yfir á Suðurland samkvæmt þessu. Breytingar á nafngiftum Til þess að sjá hvort einhverjar breytingar hafa orðið á nafngiftum kúnna skoðuðum við nöfn kúa sem fæddar voru 2005, 2010 og 2015. Í töflu 2 er að finna 10 algengustu nöfn kúa fæddra 2005, 2010 og 2015 ár hvert, alls 22 nöfn. Þeim er raðað eftir hversu algeng þau voru í árgangi 2005 og innan sviga sést röð innan hvers árs. „Sól skín á fossa,“ segir hún Krossa. „Hvar á að tjalda,“ segir hún Skjalda. „Suður við ána,“ segir hún Grána. „Rýkur á Eiði,“ segir hún Reyður. „Hulin er þúfa,“ segir hún Húfa. „Ég vil fjósið finna,“ segir hún Kinna. „Ég skal töðuna tyggja,“ segir hún Friggja. „Ég skal fylla mína hít,“ segir hún Hvít. „Ég skal éta sjálfur,“ segir hann litli kálfur. „Ég ét sem ég þoli,“ segir hann stóri boli. „Ég skal aka Steinmóði til Staðar, ef hann getur ekki þagað. Nafngiftir kúnna Tafla 1. Algengustu nöfn núlifandi kúa Nafn Fjöldi Nafn Fjöldi Nafn Fjöldi Rauðka 88 Lína 57 Sóley 43 Lukka 84 Sokka 56 Sunna 43 Skjalda 83 Húfa 56 Flauta 43 Stjarna 74 Freyja 56 Skotta 42 Gríma 72 Skessa 52 Skvetta 41 Kola 71 Rós 50 Nótt 41 Branda 70 Laufa 50 Ljómalin 41 Dimma 69 Búkolla 50 Bauga 41 Huppa 64 Von 49 Píla 40 Skrauta 61 Katla 49 Birta 40 Gola 58 Gæfa 47 Baula 40 Blíða 58 Sól 46 Rósa 57 Hekla 44 Tafla 2. Algengustu nöfn kúa sem fæddar voru 2005, 2010 og 2015 Hlutfall af nefndum kúm og innan sviga röð innan árgangs Nafn Hlutfall og röð 2005 Hlutfall og röð 2010 Hlutfall og röð 2015 Branda 0,70% (1) 0,79% (1) 0,40% (5) Huppa 0,65% (2) 0,38% (12) 0,30% (13) Kola 0,63% (3) 0,49% (4) 0,30% (12) Skjalda 0,58% (4) 0,61% (2) 0,39% (6) Hryggja 0,54% (5) 0,18% (76) 0,13% (132) Stjarna 0,48% (6) 0,44% (6) 0,26% (22) Rauðka 0,47% (7) 0,33% (21) 0,33% (8) Lína 0,45% (8) 0,26% (38) 0,27% (17) Gríma 0,45% (9) 0,32% (26) 0,27% (18) Skessa 0,41% (10) 0,36% (15) 0,29& (14) Dimma 0,38% (14) 0,30% (27) 0,43% (4) Rósa 0,36% (16) 0,43% (7) 0,23% (37) Lukka 0,36% (17) 0,47% (5) 0,51% (1) Skrauta 0,35% (18) 0,33% (20) 0,31% (10) Sokka 0,33% (21) 0,49% (3) 0,24% (28) Nótt 0,33% (23) 0,41% (8) 0,24% (30) Búkolla 0,33% (25) 0,40% (10) 0,27% (20) Perla 0,31% (30) 0,36% (16) 0,36% (7) Laufa 0,31% (31) 0,26% (40) 0,46% (2) Toppa 0,16% (112) 0,26% (36) 0,44% (3) Katla 0,09% (267) 0,18% (77) 0,33% (9) Skrá 0,03% (740) 0,40% (9) 0,03% (752) Flest þeirra nafna sem þarna er að finna hafa verið notuð um langa hríð og eru enn í notkun. Þetta á einkum við um þau nöfn sem vísa til litar eða útlitseinkenna eins og til dæmis Branda, Huppa, Kola og Skjalda. Af þeim nöfnum sem ekki draga taum af lit eða einkennum er greinilegt að nöfnin Lína og Skessa njóta mestrar hylli. Skessa vísar þó eflaust til þess að viðkomandi gripir séu stórir og mætti því allt eins flokka undir útlitseinkenni. Nöfnin Lukka og Perla hafa lengi verið algeng og virðist auka vinsældir sínar. Þá hefur nafnið Katla komið sterkar inn undanfarin ár en það er öðru fremur bundið við Suðurland og vísar án efa til aukinnar umfjöllunar um hina miklu eldstöð, Kötlu. Dæmigerð nöfn sem hafa vísan til föður kúnna eru nöfn eins og Toppa og Skrá sem dætur Topps 07046 og Lykils 02003 bera oft og tíðum. Þetta er mjög áberandi með Skrá sem er níunda algengasta nafnið hjá kúm fæddum 2010 eða á þeim tíma þegar afkvæmi Lykils voru að fæðast. Hin árin sem skoðuð voru (2005 og 2015) er nafnið Skrá tiltölulega lítið notað. Guðmundur Jóhannesson ráðunautur í nautgriparækt mundi@rml.is Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Ríkiskaupa í síma 530 1400 eða í gegnum netfangið fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is SÆLINGSDALUR 2, 371 BÚÐARDALUR. EINBÝLISHÚS Á LEIGULÓÐ Óskað er eftir tilboði í fyrrum íbúðarhús ríkisjarðarinnar, Sælingsdalur í Dalabyggð, sem boðið er til sölu á sér 10.856 m2 leigulóð, og fengið hefur nafnið, Sælingsdalur 2. Nánar tiltekið er um að ræða 192 m2 einbýlishús, með sambyggðum 33 m2 bílskúr, samtals 225,7 m2, byggt árið 2007. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 2. september á milli 13:00-17:00. Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is. Verð: Tilboð. AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU: Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.