Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
63Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Smalamennska 2021:
Göngum þurr og örugg til fjalla!
Regnsettið er slitsterkt 310 g/m²,
með hettu, vösum og stillanlegri
teygju í mitti. Bjóðum upp á merkingar
á hóflegu verði og sendingarkostnaður
er innifalinn í verði.
Verð:
10.500 kr.
Verð:
1.190 kr.
Regnsett og sýnileikavesti
Við leggjum áherslu á góða
þjónustu við landsbyggðina.
Vefverslun:
Khvinnufot.is
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Kristinn Sigurbjörnsson
Löggiltur fasteignasali og byggingafræðingur.
Sími: 560-5502
Netfang: kristinn@allt.is
Sérsniðin þjónusta
að þínum þörfum
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali og fiskeldisfræðingur.
Sími: 560-5501
Netfang: pall@allt.is
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
LÍF&STARF
600 milljóna króna styrkur í loftslagsverkefni Carbfix og ON:
„Við verðum öll að gera betur í
baráttunni gegn loftslagsvánni“
– segir Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar
Carbfix og Orka náttúrunnar,
dótturfélög Orkuveitu Reykja víkur,
hafa hlotið styrk úr Nýsköpunar
sjóði Evrópu sam bandsins
(Innovation Fund) í verk efnið
Silfurberg.
Styrkurinn er einn sá hæsti sem
veittur hefur verið til loftslagsverkefnis
hér á landi og nemur um 3,9 milljónum
evra. Það svarar til tæplega 600
milljóna króna. Þetta er jafnframt í
fyrsta sinn sem íslenskt verkefni er
styrkt af sjóðnum.
Sporlaus vinnsla á Hellisheiði
Í tilkynningu frá Orkuveitunni
kemur fram að markmið Silfurbergs
verkefnisins er að byggja nýja
hreinsistöð við Hellisheiðarvirkjun
sem mun fanga nær allt koldíoxíð
og brennisteinsvetni úr útblæstri
virkjunarinnar sem síðan verður
dælt niður í nálæg basaltberglög
til varanlegrar steinrenningar með
Carbfix tækninni. Þar með mun
Orka náttúrunnar skipa sér í fremsta
flokk grænnar jarðvarmanýtingar með
sporlausri framleiðslu rafmagns og
varma.
Carbfix-aðferðin virkar
gegn loftslagsvánni
Carbfix hefur þróað tækni fyrir
varanlega bindingu koldíoxíðs við
Hellisheiðarvirkjun frá árinu 2007 í
samstarfi við innlendar og erlendar
rannsóknastofnanir. Tæknin krefst
einungis rafmagns og vatns og hefur
starfsemin óveruleg umhverfisáhrif.
Tæknin felur í sér að leysa
koldíoxíð í vatni og dæla niður í
basaltberggrunninn þar sem náttúruleg
ferli steinrenna það til frambúðar.
Með þessu móti er koldíoxíðið
varanlega bundið í steindum djúpt
í berggrunninum og þannig komið
í veg fyrir áhrif þess á loftslagið.
Einnig er hægt að beita aðferðinni
fyrir aðrar gastegundir á borð við
brennisteinsvetni, en það hefur einnig
verið fangað frá virkjuninni og dælt
niður frá árinu 2014.
Stærri og öflugri hreinsistöð
Núverandi hreinsistöð Hellisheiðar
virkjunar fangar um 30% koldíoxíðs
og um 75% brennisteinsvetnis úr
útblæstri hennar, eða um 12 þúsund
tonn af koldíoxíði og um 7 þúsund
tonn af brennisteinsvetni á ári.
Styrkurinn sem Silfurbergsverkefnið
hlýtur verður notaður fyrir hönnun og
byggingu stærri og öflugri stöðvar við
virkjunina sem stefnt er að gangsetja
árið 2025. Þar með verður nær öll
losun koldíoxíðs og brennisteinsvetnis
frá virkjuninni hreinsuð, eða um 34
þúsund tonn af koldíoxíði og um 12
þúsund tonn af brennisteinsvetni á ári.
Aðgerðir til að ná
loftslagsmarkmiðum
Loftslagsáætlun Íslands gerir ráð fyrir
55% samdrætti í losun á koldíoxíði frá
orkuframleiðslu og iðnaði sem fellur
undir beina ábyrgð Íslands fyrir 2030.
Silfurbergsverkefnið mun draga úr
losun sem nemur um 10% af þessum
samdrætti. Niðurstöður verkefnisins
munu jafnframt gagnast til að minnka
losun frá öðrum jarðhitavirkjunum
bæði hér á landi og erlendis, auk þess
sem mögulegt er að beita tækninni
til að minnka losun frá annarri
iðnaðarstarfsemi á borð við stálver,
sementsframleiðslu og brennslu og
urðun sorps.
Mikil viðurkenning
Edda Sif Pind Aradóttir,
framkvæmdastýra Carbfix, segir
að það sé mikil viðurkenning fyrir
ungt þekkingarfyrirtæki eins og
Carbfix að fá svo veglegan styrk úr
nýsköpunarsjóðnum og til merkis
um að kolefnisförgun með Carbfix
tækninni er í senn hagkvæm og
umhverfisvæn loftslagslausn
sem getur haft áhrif langt út fyrir
landsteinana.
Verðum öll að gera betur
„Nýja loftslagsskýrslan frá
Sameinuðu þjóðunum sýnir að við
verðum öll að gera betur í baráttunni
gegn loftslagsvánni. Orkan frá ON
– hvort tveggja rafmagnið og heita
vatnið – er græn en við viljum,
verðum og ætlum að gera enn
betur. Á grunni styrksins stígum
við stórt skref í átt að sporlausri
starfsemi, metnaðarfullri og um
leið nauðsynlegri vegferð sem
öll fyrirtæki ættu að taka þátt í,“
segir Berglind Rán Ólafsdóttir,
framkvæmdastýra Orku náttúrunnar.
/MHH
Hellisheiðarvirkjun, þar sem ON er m.a. með starfsemi sína, en það er
dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur.