Bændablaðið - 26.08.2021, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
„Það er ljóst að veruleg
tækifæri eru á ferðinni, bæði
hvað vöruþróun varðar og
eins í að skapa sérstöðu fyrir
veitingahús hér á svæðinu,“
segir Pétur Snæbjörnsson,
sem leiðir tilraunaverkefni í
Matarskemmunni á Laugum í
Reykjadal.
Um er að ræða tilraunaverkefni
sem stendur yfir í fjóra mánuði
og var í liðinni viku efnt til opins
húss í Matarskemmunni í tengslum
við verkefnið. Tveir starfsmenn,
þeir Jónas Þórólfsson kjötiðnað-
armeistari og Ólafur Sólimann
matreiðslumeistari, taka þátt í ver-
kefninu auk Péturs, sem er MBA og
fyrrverandi hótelstjóri í Reynihlíð í
Mývatnssveit.
Nýsköpun í norðri er
ný sköpunar verkefni í tengslum
við sameiningu Skútustaðahrepps
og Þingeyjarsveitar. Pétur segir
verkefnið m.a. lúta að því að
greina helstu atvinnuvegi íbúanna
og möguleika þeirra til vaxtar og
viðhalds búsetugæða í ört breytilegu
samfélagi.
„Leiðarstefin í þessu verkefni
eru kolefnisspor, hringrásarhagkerfi
og eftirsóknarverð búsetuskilyrði.
Í þeim efnum er vissulega í mörg
horn að líta,“ segir hann.
20% af lífmassa hverrar kindar
skapar raunveruleg verðmæti
Einn þáttur verkefnisins er að
skoða sauðfjárrækt í héraði og
verðmætasköpun í henni, það er
hvernig framleiðendur geti bætt
afkomu sína af framleiðslunni
og hvaða þættir kynnu að vera
hamlandi. „Frumskoðun leiðir í
ljós að dilkakjöti er mest haldið
að markaðnum, innmatur er
vandfenginn og svo virðist sem um
20% af lífmassa hverrar kindar skapi
raunveruleg verðmæti. Þarna teljum
við að hljóti að vera sóknarfæri, ekki
síst í breyttri hlutun og hagnýtingu
skrokka, aukinni notkun á innmat
og frumlegri matargerð úr því sem
til fellur. Það verður forvitnilegt
að skoða hvort auknar heimildir
til heimaslátrunar gefi aukin færi í
þessum efnum,“ segir Pétur.
Einsleitt framboð á
kindakjötsmarkaði
„Við erum um þessar mundir að
skoða hvort einsleitt framboð á
kindakjötsmarkaði sé mögulega
hamlandi eftirspurnarþáttur,
sérstaklega á veitingahúsamarkaði.
Einnig erum við að skoða hvort
takmarkað framboð á ferskvöru,
sem til er komið vegna þess að
öllu sauðfé er slátrað á nokkrum
haustvikum og svo fryst, sé líka
takmarkandi þáttur,“ segir Pétur.
Hann bendir á að forvitnilegt sé
að skoða hvaða áhrif aukinn fjöldi
ferðamanna undanfarin 10 ár hafi á
eftirspurn á nærmarkaði, en frá árinu
2010 hafi sá markaður fjórfaldast
að stærð.
„Það er áætlað að allt að milljón
gestir heimsæki Þingeyjarsýslur
árlega og það er markaður sem
munar um frá því sem áður var, en
lengi vel var gestafjöldinn einungis
10 til 20% af núverandi fjölda.
Þegar kemur að kolefnisspori er
LÍF&STARF
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Pétur Snæbjörnsson, MBA og fyrr-
verandi hótelstjóri á Hótel Reynihlíð
í Mývatnssveit, stjórnar tilraunaver-
kefni í Matarskemmunni á Laugum
í Reykjadal.
Jónas og Ólafur voru búnir að hluta nokkra skrokka af veturgömlu fé og
elda tilbúna rétti úr því kjöti og komu að auki fram með ýmsar tillögur um
úrvinnslu á innmat.
Eitt af því sem skoðað er í verkefninu er hvort einsleitt framboð á kindakjöts-
markaði sé mögulega hamlandi eftirspurnarþáttur, sérstaklega á veitinga-
húsamarkaði.
Opið hús hjá Matarskemmunni á Laugum tókst prýðilega og var viðburðurinn vel sóttur. Leiðarstefin í verkefninu
eru kolefnisspor, hringrásarhagkerfi og eftirsóknarverð búsetuskilyrði. Myndir / aðsendar.
Opið hús í Matarskemmunni á Laugum í Reykjadal:
Aukin verðmætasköpun í sauðfjárrækt til skoðunar
– Sóknarfæri í breyttri hlutun og hagnýtingu skrokka, aukinni notkun á innmat og frumlegri matargerð
MF RB 3130F
RÚLLUSAMSTÆÐA
ÚRVAL HEYVINNUTÆKJA FRÁ MASSEY FERGUSON
TIL AFHENDINGAR STRAX Á HAGSTÆÐU VERÐI
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Sími 480 0080
buvelar.is