Bændablaðið - 26.08.2021, Side 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
49Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Eitt af umfangsmestu verkefn
um RML eru sauðfjárdómarnir
enda er þetta sú þjónusta sem
mikill meirihluti sauðfjárbænda
nýtir sér. Þar sem þetta verkefni
krefst talsverðrar skipulagningar
er mikilvægt að pantanir berist
tímanlega. Það auðveldar skipu
lagningu, eykur hagkvæmni í
verkefninu og líkurnar á því að
hægt sé að mæta óskum flestra
varðandi tíma.
Líkt og verið hefur er best að fá
pantanir inn í gegnum heimasíðu
RML (www.rml.is) en einnig er
hægt að hafa samband símleiðis
(516-5000). Móttaka pantana í
gegnum heimasíðuna verður opin
til 7. október en í vikunni þar á eftir
lýkur formlega lambaskoðunar-
tímabilinu. Vilji bændur láta skoða
fé utan tímabilsins 6. september til
15. október þarf að heyra í skipu-
leggjendum á viðkomandi svæði
sem skoða möguleikana á því að
verða við óskum bænda.
DNA-sýnataka
Talsverð vakning hefur átt sér stað
varðandi arfgerðagreiningar m.t.t.
mótstöðu gegn riðuveiki. Í okkar
sauðfé eru þekktar mismunandi
arfgerðir príongensins sem talið
er að geri kindur misnæmar fyrir
því að taka upp riðusmit. Eitt af því
sem bændur hafa gert í baráttu gegn
riðunni er að efla mótstöðu hjá fé
sínu með því að velja fyrir arfgerð
sem veitir meiri mótstöðu, svo
kallaðri „lítið næmri arfgerð“ (var
áður kölluð verndandi) og reynt
að sneiða hjá svokallaðri „áhættu
arfgerð“.
Óhætt er að hvetja bændur,
sérstaklega á „riðusvæðum“ til
að huga betur að þessu. Eins er
mikilvægt að ræktunarbú sem eru
uppsprettur kynbótafjár fyrir landið
vinni einnig að því að búa til öfluga
kynbótagripi sem bera lítið næmu
arfgerðina. Nú er hægt að panta
DNA sýnatöku með lambaskoðun-
inni.
Samhliða lambaskoðuninni í
haust verður boðið upp á að tekin
séu DNA sýni. Upplýsingar um það
hvort sýnataka sé fyrirhuguð þarf
að liggja fyrir áður en sauðfjár-
dómarinn mætir og því er nú hægt
að tilgreina fjölda DNA sýna sem
áætlað er að taka í pöntunarforminu
fyrir lambadómana.
Gert er ráð fyrir að fyrsta
sending sýna frá RML fari í grein-
ingu til Matís í lok september. Til
að komast með í þá sendingu þarf
að vera búið að taka sýnið fyrir
25. september. Niðurstaðna er að
vænta úr þessari sendingu um miðj-
an október. Því ættu menn að geta
nýtt sér niðurstöður þegar gengið er
frá endanlegu ásetningsvali.
Greining á riðuarfgerðinni á
vegum RML kostar 5.500 kr (án
vsk.) pr. sýni. Hins vegar að ef
næst næg þátttaka í þessari „sept-
embersendingu“ (heildarfjöldi sýna
sem send verða á vegum RML) þá
mun verðið vera 4.950 kr (án vsk.).
Innifalin er skráning á niðurstöðum
í Fjárvís.
Kostnaður við sýnatöku myndi
bætast við tímann vegna lambadó-
manna. Þannig gætu menn t.d. tekið
sýni úr ríflega þeim fjölda hrúta
sem koma til greina til ásetnings
að lokinni skoðun og gengið svo
endanlega frá valinu með hliðsjón
af DNA niðurstöðum.
Að velja ásetningslömbin er
örugglega eitt af skemmtilegustu
verkefnunum á hverju sauðfjárbúi.
Þarna uppskera menn yfirleitt eins
og þeir sá. Þeir sem leggja vinnu í
valið og nota þær upplýsingar sem
bjóðast, bæði úr skýrsluhaldinu og
úr dómum á lömbunum í bland við
eigin innsæi og hyggjuvit eru lík-
legir til að ná bestum árangri í því
að kynbæta hjörð sína. Gangi ykkur
vel í haustverkunum.
LÍF&STARF
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Sauðfjárdómar og DNA-sýnataka
Eyþór Einarsson
ráðunautur búfjárræktar-
og þjónustusviðs
ee@rml.is
Bænda
9. september
Samhliða lambaskoðuninni í haust verður boðið upp á að tekin séu DNA sýni. Upplýsingar um það hvort sýnataka
sé fyrirhuguð þarf að liggja fyrir áður en sauðfjárdómarinn mætir.
Nýsköpun stuðlar að framförum
með nýjum hugmyndum, verk
lagi eða uppgötvunum. Nýsköpun
er mikilvægur þáttur í allri
framþróun, í samkeppni og að
fyrirtæki hér á landi myndi sér
sérstöðu gagnvart fyrirtækjum
á alþjóðamörkuðum.
Stjórnvöld hafa gert ágæt lega
hingað til og er nýsköpunarum-
hverfið á Íslandi nokkuð gott. Hægt
er að sækja um í fjölmarga sjóði
sem styðja við nýsköpun, bæði inn-
lenda sem og evrópska sjóði. Til að
mynda heldur Rannsóknamiðstöð
Íslands (Rannís) utan um marga
af þessum sjóðum. Þar má meðal
annars nefna að hægt er að leggja
inn umsókn um skattafrádrátt
vegna rannsóknar- og þróunar-
verkefna en einnig heldur Rannís
utan um tækniþróunarsjóðina sem
margir þekkja.
Árið 2019 var mótuð nýsköp-
unar stefna sem er ætlað að gera
Ísland betur í stakk búið til að
mæta áskorunum framtíðarinnar
og byggja upp traustan grund-
völl fyrir hugvitsdrifna nýsköp-
un á öllum sviðum. Stefnunni er
ætlað að marka sýn fyrir Ísland til
ársins 2030 og í henni er sett fram
það markmið að árið 2030 verði
Ísland fjölbreytt samfélag velferð-
ar, öryggis og jafnra tækifæra auk
þess sem Ísland verði fremst meðal
jafningja þegar borin eru saman
lífsgæði og hamingja. Það er ávallt
af hinu góða þegar slíkar stefnur
eru settar og þeim þarf að fram-
fylgja og það þarf að fjármagna
þær. Því þegar litið er á starfsum-
hverfi íslenskra fyrirtækja og það
borið saman við starfsumhverfi fyr-
irtækja í öðrum löndum þá kemur í
ljós að, framleiðsluþættir íslenskra
fyrirtækja er almennt hærri en
annars staðar. Til þess að innlend
fyrirtæki geti verið samkeppnishæf
á alþjóðamörkuðum þurfum við að
tryggja þeim hlutfallslega yfirburði
á einhverjum sviðum gagnvart
öðrum mörkuðum.
Með öflugri nýsköpunarstefnu
og stöðugri framfylgni hennar er
hægt að tryggja markvissa og skil-
virka framþróun í landinu. Þannig
er hægt að hlúa að samkeppn-
ishæfni fyrirtækja við önnur lönd.
Sem dæmi þá getum við verið
of íhaldssöm þegar kemur að
breytingu á lögum og reglugerðum.
Lög og reglugerðir sem voru sett-
ar og standast ekki þá framþróun
sem á sér stað erlendis. Það er því
mín skoðun, að við sem 375.000
manna þjóð eigum að geta haft
hlutfallslega yfirburði gagnvart
öðrum ríkjum þegar kemur að; a)
lagasetningu og bættu regluverki,
b) með því að gera skattkerfið skil-
virkara og meira hvetjandi í þágu
framþróunar og c) með skilvirkari
stjórnsýslu sem stuðlar að og liðkar
fyrir nýsköpun.
Klárum dæmið og blásum til
sóknar!
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
lögfræðingur og frambjóðandi
í 3. sæti á lista Framsóknar í
Suðurkjördæmi.
LESENDAGSRÝNI
Samkeppnishæf á
alþjóðamarkaði
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir.