Bændablaðið - 07.10.2021, Síða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. október 202128
LÍF&STARF
Starfsemi Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal hefur skapað 34 störf í plássinu og verður starfsmönnum fjölgað um fimm vegna stækkunar verksmiðjunnar. Mynd / Hörður Kristjánsson
Framkvæmdir hafa staðið yfir
við stækkun verksmiðju Íslenska
kalkþörungafélagsins ehf. á
Bíldudal á annað ár. Þar með
hefur afkastageta verksmiðj-
unnar verið aukin um 40%.
Verksmiðjan var með heimild
upp á 85.000 tonna framleiðslu
á ári, en sótt var um aukna heim-
ild til stækkunar árið 2019 upp í
120.000 tonna framleiðslu.
Halldór Halldórsson forstjóri
segir að með stækkuninni sé verið
að bæta við afkastameiri þurrkara.
„Gamli þurrkarinn keyrir í
gegnum vothreinsikerfi en nýi
þurrkarinn keyrir í gegnum síu
kerfi. Þetta eru kerfin sem sjá til
þess að ekki fari fínt ryk út í and
rúmsloftið en starfsleyfi heimilar
ekki meira en 20 mg/m3 í útblæstri.
Við höfum staðist það undanfarin
ár.
Með nýja þurrkaranum keypt
um við hitaendurnýjunarkerfi og
þannig náum við að endurnýta 300
kw með því að keyra útblásturinn
frá þurrkaranum í gegnum þetta
kerfi. Það virkar í raun eins og
öfugur vatnskassi í bíl og nýtir
heita loftið inn í þurrkarann aftur,“
segir Halldór.
Þá er líka verið að auka full
vinnslu hráefnisins á Bíldudal og
taka í notkun kornunarverksmiðju,
eða það sem kallað er „GPlant“
(granulation plant).
„Við erum að fjárfesta þarna
fyrir um 700 milljónir króna í
nýjum þurrkara og nýrri korn
unarverksmiðju til að auka afköst
og fullvinnslu. Við erum búin að
taka stækkunina í notkun en ætlum
okkur að nýta tímann út þetta ár
við að fínstilla vinnsluferlið í
þurrkun og kornun.“
Halldór segir að Íslenska kalk
þörungafélagið hafi áður verið að
fullvinna fóður.
„Við vorum með kornunarverk
smiðju sem gat framleitt 6.000 tonn
ári, en þessi nýja verksmiðja á að
geta afkastað 20 þúsund tonnum. Þá
sjáum við fyrir okkur að í nýrri verk
smiðju í Súðavík við Ísafjarðardjúp
verði hægt að framleiða 60 þúsund
tonn af tilbúnu kornuðu kalþörunga
fóðri á ári.“
Fullvinna kalkfóður á Bíldudal
Sagði Halldór að fullvinnslan
byggðist á því að flutt er inn matar
lím sem blandað er saman við full
unnið, þurrkað og malað kalkþör
ungaduft ásamt vatni. Í þennan lög
er bætt örlitlu magnesíum þar sem
innihald þess í náttúrulegum kalk
þörungunum er 2,5% en kaupendur
vilja hafa 5% magnesíuminnihald.
„Við blöndum þessu saman í
vélum og þurrkum og kornum síðan
í örsmáar kúlur sem eru minni en
áburðarkúlurnar sem bændur þekkja
vel. Þessi framleiðsla er mjög vinsæl
meðal bænda úti um allan heim, því
í svona kornaformi myndast ekki
eins mikið ryk og þegar skepnum eru
gefnir hefðbundnir kalkþörungarnir
í duftformi. Þetta er auðvitað dýrara
fóður, en að sama skapi þægilegra
við að eiga. Við köllum þetta fóður
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. Mynd / ÍK Kalkþörungar sem dælt hefur verið upp af botni Arnarfjarðar. Mynd / HH
Afkastageta aukin um 40%
Grænu byggingarnar á hafnarsvæðinu eru verksmiðjuhús Íslenska kalkþörungafélagsins. Mynd / HKr.