Sjálfsbjörg - 01.07.1966, Page 5
ATTUNDA ÞINGIÐ
Áttunda þing Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, var haldið í Skíðahótelinu,
Hlíðarfjalli við Akureyri dagana 4.—6.
júní 1966.
Formaður Akureyrarfélagsins, frú Heið-
rún Steingrímsdóttir, bauð fulltrúa vel-
komna og formaður landsambandsins,
Theodór Á. Jónsson, setti þingið með
stuttri ræðu.
Þingforsetar voru kosnir Sigursveinn
D. Kristinsson og Heiðrún Steingríms-
dóttir, og þingritarar Árni Sveinsson,
Reykjavík, Sveinn Þorsteinsson, Akur-
eyri, Þórður Ögm. Jóhannsson, Hvera-
gerði, og Þorgerður Þórðardóttir, Húsa-
vík.
Fulltrúar mættu frá öllum 10 félögun-
um, alls 41. Mun það vera í fyrsta sinn
sem öll félögin hafa getað sent fulltrúa á
sama þing.
Fluttar voru skýrslur um störf stjórnar
og framkvæmdastjóra, og ennfremur
skýrslur allra félaganna, en þau eru 10,
með um 790 aðalfélaga og full 600 styrkt-
arfélaga.
Skrifstofa Sjálfsbjargar á Bræðraborg-
arstíg 9 var rekin með sama sniði og áður.
Þar vinna, eins og áður, Trausti Sigur-
laugsson, framkvæmdastjóri og Elsa Stef-
ánsdóttir ritari. Til skrifstofunnar leituðu
á starfsárinu 1189 einstaklingar (846 árið
áður) og fengu margs konar fyrirgreiðslu.
Einnig var félögunum veitt mikilsverð og
margs háttar aðstoð.
Unnið var að framgangi þeirra tillagna,
sem samþykktar voru á síðasta landssam-
bandsþingi. Má þar meðal annars nefna,
að unnið var að því að fá Húsnæðismála-
stofnun ríkisins til að viðurkenna sérstöðu
öryrkja í húsnæðismálum, og að þeir nyti
betri lánakjara en almennt gerist, til að
eignast íbúðir. Að ósk Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, skrifaði félags-
málaráðherra form. húsnæðismálastjórnar
og mælti með því að þetta atriði yrði tekið
Starfsmenn þingsins.
SIÁLFSBJÖRG 5