Fréttablaðið - 10.02.2022, Page 8

Fréttablaðið - 10.02.2022, Page 8
Seðlabankinn átti ekki annarra kosta völ en að hækka vexti. Anna Hrefna Ingimundar- dóttir, forstöðu- maður efna- hagssviðs SA Þessi áróður um að launafólk búi til verð- bólgu ef það fer fram á launahækkanir umfram framleiðni- aukningu er bara kjaftæði. Drífa Snædal, forseti ASÍ Fyrirtækjum hvorki vel við verðbólgu né hátt vaxtastig Anna Hrefna segir að fyrirtækj- um sé hvorki vel við verðbólgu né hátt vaxtastig. „Það er því mikilvægt að þeir þættir sem hægt er að hafa einhverja stjórn á hér innan- lands leiði ekki til verðbólgu- þrýstings næstu misserin svo halda megi aftur af verðbólgu og stýrivaxtahækkunum. Til að mynda þurfa stjórnvöld að halda aftur af útgjaldaaukningu á sama tíma og mikilvægar umbætur eru gerðar á umgjörð byggingarmarkaðar svo auka megi framboð húsnæðis á hag- stæðu verði.“ 8 Fréttir 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR Litaráðgjöf í verslun BYKO Breidd á laugardaginn kl 12-15 Jóhanna Nýtt litakort Frekari stýrivaxtahækkanir í kortunum Tilkynnt var í gær að Seðlabankinn myndi hækka stýrivexti um 0,75 prósentustig. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Aðalhagfræðingur Íslands- banka segir að frekari hækkanir stýrivaxta séu í kortunum. Forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins segir að Seðla- bankinn hafi ekki átt annarra kosta völ en að hækka vexti og forseti ASÍ segir að hækk- unin muni koma til með að hafa áhrif á kröfugerðina í komandi kjaraviðræðum. magdalena@frettabladid.is Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í gær að bankinn myndi hækka stýrivexti um 0,75 prósentu- stig og verða stýrivextir bankans því 2,75 prósent. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að ákvörðunin hafi verið í takt við þeirra væntingar og væntingar á markaði almennt. „Þetta kom okkur í sjálfu sér ekki á óvart. Yfirlýsingin var aftur á móti mjög stuttorð og var hún ekki mjög upplýsandi varðandi það á hverju ákvörðunin byggði. Nema auðvitað vissulega því að efnahagsbatinn væri á góðu skriði og verðbólguhorf- ur versnandi,“ segir Jón Bjarki og bætir við að Seðlabankinn hafi sent skýr skilaboð með þessum vaxta- hækkunum. „Það kom fram á fund- inum þar sem vaxtaákvörðunin var útskýrð að hlutverk bankans væri fyrst og fremst það að stilla raun- vaxtastigið og aðhald peningastefn- unnar. Það sé annarra að bregðast við áhrifum vaxtahækkunarinnar á afmarkaða hópa. Hlutverk Seðla- bankans sé einungis að horfa á stóru myndina en ekki taka tillit til þess þótt tilteknir hópar séu skuldsettir.“ Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður ef nahagssv iðs Samtaka atvinnulífsins, segir að Seðlabankinn hafi ekki átt annarra kosta völ en að hækka vexti. „Þessi hækkun var viðbúin enda er verð- bólgan talsvert yfir spám og verð- bólguhorfur hafa farið versnandi. Raunvextir eru enn mjög neikvæðir og flestir hafa metið taumhald pen- ingastefnunnar sem of laust,“ segir Anna Hrefna og bætir við að það sé áhyggjuefni að vaxtahækkanir gætu hamlað nauðsynlegri íbúða- fjárfestingu. „Við teljum því eðlilegt að þjóð- hagsvarúðartækjum á borð við takmarkanir á veðsetningarhlut- föllum og fjárhæðir eða greiðslu- byrði fasteignalána verði áfram beitt samhliða vaxtatækinu til að draga úr eftirspurnarþrýstingi á húsnæðismarkaði. Hins vegar er fyrst og fremst um framboðsvanda að ræða á húsnæðismarkaði þann- ig að stjórnvöld, ríki og sveitarfélög ættu að vera að leita allra leiða til að auka framboð á fasteignamarkaði.“ Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að verkalýðshreyfingin líti á þessa vaxtahækkun Seðlabankans sem kjararýrnun og að hún muni koma til með að hafa áhrif á kröfugerðina fyrir komandi kjarasamninga. „Við lítum á þetta sem kjararýrnun og Seðlabankinn hlýtur að vera sam- mála okkur um það. Ef vaxtalækkun eru kjarabætur þá er vaxtahækkun kjararýrnun,“ segir Drífa og bætir við að verkalýðshreyfingin hafi verið að kalla eftir neyðar aðgerðum frá stjórnvöldum. „Við höfum vitað lengi að ástand- ið er alvarlegt og þessi vaxtahækk- un er ekki til að bæta það. Það má benda á að það eru ekki allir hag- fræðingar sammála um það að vaxtahækkanir slái á verðbólgu eins og hún er samsett. Undir- liggjandi verðbólga núna er náttúr- lega verðhækkanir í Evrópu og mér skilst að Evrópski seðlabankinn sé ekki að hækka vexti til að bregðast við henni. Síðan má ekki gleyma að staðan á húsnæðismarkaði hér á landi er mjög slæm.“ Jón Bjarki segir jafnframt að honum þyki það athyglisvert að sjá hversu þrálát verðbólgan sé í spá Seðlabankans löngu eftir að mesti þrýstingur vegna fasteigna- markaðar og innflutningsverðlags sé farinn. „Ég tel að vaxtahækkunin sé líkleg til að skila sínu. Það virðist líka ljóst að það séu frekari hækk- anir í kortunum. Næsta vaxta- ákvörðun er ekki fyrr en 4. maí og það var klárlega áhrifaþáttur í því að tekin voru stór skref. Sem betur fer er Seðlabankinn að bregðast við vaxandi eftirspurnarþrýstingi og vaxandi verðbólguhorfum af fullum krafti. Vonandi verður þessi myndarlega hækkun til þess að ekki þurfi að hækka vexti eins mikið og ella væri.“ Anna Hrefna bætir við að það sé ekki jákvætt að við séum að glíma við verðbólgu og húsnæðisskort á sama tíma og kjaraviðræður hefj- ast. „Efnahagslegt svigrúm þarf hins vegar að ákvarða niðurstöður kjarasamninga. Það er ljóst að ef samið verður umfram það svigrúm mun það virka sem olía á eld verð- hækkana sem mun einungis leiða til vaxtahækkana eins og seðlabanka- stjóri gaf skýrt til kynna á fundinum í morgun. Það er lykilatriði að kom- andi kjarasamningar einkennist af skynsemi svo við lendum ekki í vítahring aukinnar verðbólgu og hækkandi vaxta. Sækja þarf kjara- bætur á traustum grundvelli.“ Drífa bætir við að stjórnvöld verði að bregðast við stöðunni. „Það er augljóst að stjórnvöld geta ekki skilað auðu. Ef það er eitthvert kjarnahlutverk sem stjórnvöld hafa þá er það að grípa inn í svo lífskjör fólks skerðist ekki. Ef við förum að sigla inn í haustið með stórfellda kjararýrnun þá segir það sig sjálft að það hafi áhrif á kröfur í kjarasamn- ingum. Málið er að vextir lækkuðu mjög mikið og fólk spennir bogann á húsnæðismarkaði og hefur þurft að gera það því húsnæðisverð hefur verið mjög hátt. Ég hef sérstakar áhyggjur af ungu fólki, barnafólki og fólki sem er nýbúið að koma sér inn á húsnæðismarkað.“ Drífa segir það ekki vera rétt að verkalýðsfélögin hafi reynt að sækja launahækkanir umfram framleiðni. „Við höfum aldrei síðustu 20 ár sótt launahækkanir umfram fram- leiðniaukningu, þrátt fyrir allt tal um annað. Þessi áróður um að launa- fólk búi til verðbólgu ef það fer fram á launahækkanir umfram fram- leiðniaukningu er bara kjaftæði.“ Spurður hvaða áhrif hækkun stýrivaxta muni hafa á komandi kjaraviðræður segir Jón Bjarki að verkalýðshreyfingin muni eflaust taka þessari ákvörðun fremur illa. „Hugsanlega mun þetta hafa áhrif á kjaraviðræðurnar en það á mikið vatn eftir að renna til sjávar þangað til í haust. Það sem skiptir mestu máli er að það eigi sér stað samtal, bæði milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, um að reyna að ná stöðugleika fram í tímann. Þá getur Seðlabankinn slegið mildari tón hvað varðar vexti fram í tímann og rofið þennan vítahring sem getur myndast.“ ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.