Fréttablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 10
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi.
Á leiðinni inn í Þórsmörk við mynni Markarfljótsdals
er Stóri-Dímon, snotur móbergseyja sem rís upp af
aurum beljandi Markarfljóts. Nafnið Dímon er komið
úr keltneskum málum og talið merkja tvíhæð eða tví-
tindar þar sem „dí“ merkir tvær og „muin“ bak eða
háls. Aðrir halda síðan fram að nafnið þýði heysáta.
Hvað sem því líður þá kemur Dímon fyrir í mörgum
íslenskum örnefnum, bæði í karl- og kvenkyni, en
líka í örnefnum hinna Norðurlandanna. Stóri-Dímon
á Markarfljótsaurum er þó sá þekktasti, enda kemur
hann fyrir í Njálu. Ekki spillir fyrir að hann getur
státað af systur, Litlu-Dímon, sem er mun lágvaxnari.
Stóri-Dímon er 178 metra hár og norðan í honum er
sérlega fallegt stuðlaberg. Hann er líka vel gróinn en
í Njálu segir að Gunnar á Hlíðarenda og Njáll á Berg-
þórshvoli hafi átt skóg í Dímon og nýtt til kolagerðar.
Auk þess var þar 50–60 kinda beit bæði vetur og sumar.
Í hlíðum fjallsins, sem áður kallaðist Rauðuskriður, er
sagt að Njálssynir hafi setið fyrir Þráni Sigfússyni og
vegið. Eftir ódæðið átti Skarphéðinn Njálsson að hafa
hlaupið „tólf álna yfir Markárfljót milli höfuðísa“. Við
Stóra-Dímon hófust einnig húskarlavíg Hallgerðar og
Bergþóru þegar Kolur, verkstjóri Gunnars á Hlíðar-
enda, vó Svart, vinnumann Njáls á Bergþórshvoli,
þegar hann var þar við kolagerð.
Það er gaman að ganga á bæði Stóra- og Litla-Dímon,
enda útsýnið af þeim frábært. Þetta er stutt ganga sem
hentar bæði ungum sem öldnum og má auðveldlega
lengja með því að ganga á milli tindanna og umhverfis
þá. Í norður breiðir Fljótshlíðin úr sér með Þríhyrning
og Tindfjallajökul í baksýn, en í austur glittir í Þórs-
mörk og upp á Eyjafjallajökul, en sunnan hans rísa
tignarlegar Vestmannaeyjar úr sæ. Á milli tindasystk-
inanna flæðir síðan strítt Markarfljót sem á upptök sín
á hálendinu vestan Hrafntinnuskers.
Efst á Stóra-Dímon er tilvalið að kasta mæðinni
og setja sig í spor Gunnars á Hlíðarenda, sem á f löt
skammt frá mælti svo: „Fögur er hlíðin svo að mér
hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin
tún, og mun eg ríða heim aftur og fara hvergi.“ Það er
skiljanlegt að höfundur Brennu-Njáls sögu hafi látið
Gunnar mæla þessi f leygu orð við Stóra-Dímon, enda
fjallið í veigamiklu hlutverki í þessari frægustu Íslend-
ingasögu okkar. ■
Tvítindar Njálu
Stóri-Dímon er gömul móbergseyja sem rís tignarlega upp af aurum Markárfljóts og sést víða að. Í baksýn sést í fjallið Þríhyrning. MYND/ÓMB
Olíumálverk Þórarins B. Þorlákssonar frá 1902 af Stóra-Dímon þykir með fallegri landslagsmálverkum íslensks málara.
MYND/LISTASAFN ÍSLANDS
Stóri-Dímon séður úr austri á leiðinni inn í Þórsmörk. MYND/ÓMB
10 Fréttir 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFÓKUS Á HJARTA LANDSINS 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR