Fréttablaðið - 10.02.2022, Page 22
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Eftir að hafa rekið vefverslunina
kinky.is um þriggja ára skeið með
góðum árangri fannst eiganda
hennar, Fríði Esther Pétursdóttur,
tímabært að opna hefðbundna
verslun til að bjóða upp á enn betra
úrval af vörum og betri þjónustu
til ánægðra viðskiptavina. „Eftir
þessi þrjú ár var lagerinn okkar
algjörlega sprunginn og enn þá
nóg af vörum sem okkur langaði
að bæta við í vöruflóru okkar. Við
byrjuðum því að horfa í kringum
okkur eftir lagerhúsnæði en á sama
tíma fundum við þörf hjá við
skiptavinum okkar til að koma við
og máta undirfötin okkar, hand
leika vörurnar og spyrja starfsfólk
okkar ráða. Því ákváðum við á
endanum að prófa að opna litla
verslun á Laugaveginum í Reykja
vík og sjáum svo sannarlega ekki
eftir því. Móttökurnar hafa verið
mjög góðar hjá landsmönnum og
það sem kom okkur á óvart var
að túristar eru líka reglulegir við
skiptavinir, þótt þeir séu kannski
að versla öðruvísi vörur heldur en
Íslendingar.“
Áhersla á undirfötin
Fríður segir Kinky.is selja nokkuð
hefðbundið úrval af unaðsvörum
eins og aðrar sambærilegar
verslanir hérlendis. „En utan
þess höfum við lagt sérstaka
áherslu á að taka inn gott úrval
af undirfötum á frábæru
verði en þar ættu f lestar
konur að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi,
enda bjóðum við upp
á stærðir frá Xs upp
í 7xl.“
Af hefðbundnum
unaðstækjum segir
hún ýmsar gerðir sog
tækja hafa verið mjög
vinsælar undanfarin
ár. „En í heildina hugsa
ég að sleipiefni og ýmis
krem séu þeir f lokkar sem
við seljum mest af og þar
koma túristarnir sterkir
inn.“
Veðja á strákana
Kinky.is er stöðugt að
taka inn nýjar og spenn
andi vörur, segir Fríður.
„Undanfarið höfum við
svolítið verið að veðja
á strákana og höfum
til dæmis aukið mikið
úrvalið af múffum. Það
virðist vera að almennt sé
það viðurkennt að stelpur
eigi dót en þetta er enn
þá pínu viðkvæmara hjá
strákum. Sem dæmi þá
koma vinkvennahópar
mjög reglulega að kaupa
sér dót en við fáum
mjög sjaldan hóp af
strákum í heimsókn,
heldur koma þeir
frekar einir. En þetta
er allt að breytast. Ein
af okkar f lottustu vörum
er A.I autoblow, munngælu
græja, sem er víst algjörlega
geggjuð að sögn þeirra sem
hafa prófað.“
Vinsælar heimsóknir
Heimsóknir lítilla hópa
eru sérstaklega vinsælar
að hennar sögn, en þá er
verslunin opnuð á kvöldin
þannig að fólk geti verslað í
friði. „Þannig geta til dæmis
hópar farið út að borða eða
fengið sér drykk og kíkt svo
í heimsókn til okkar, enda
erum við í göngufæri
við marga af bestu stöðum
borgarinnar. Við bjóðum upp á
freyðivín meðan skoðað er og
mátað í afslöppuðu umhverfi og
friði og ró. Einnig höfum við tekið
á móti saumaklúbbum og litlum
vinnustöðum og það hefur alltaf
heppnast frábærlega vel.“ n
Nánar á kinky.is.
Heimsóknir lítilla hópa í verslun Kinky.is eru mjög vinsælar. Þá fá gestir
nægan tíma og frið til að kynna sér þær vörurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kinky.is býður upp á mjög gott úrval
unaðsvara við allra hæfi. Sérstök
áhersla er lögð á úrval undirfata þar
sem sérstaklega konur geta valið
úr miklu úrvali æsandi og fallegra
undirfata í ólíkum litum og gerðum.
2 kynningarblað 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURUNAÐSVÖRUR