Fréttablaðið - 10.02.2022, Síða 22

Fréttablaðið - 10.02.2022, Síða 22
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Eftir að hafa rekið vefverslunina kinky.is um þriggja ára skeið með góðum árangri fannst eiganda hennar, Fríði Esther Pétursdóttur, tímabært að opna hefðbundna verslun til að bjóða upp á enn betra úrval af vörum og betri þjónustu til ánægðra viðskiptavina. „Eftir þessi þrjú ár var lagerinn okkar algjörlega sprunginn og enn þá nóg af vörum sem okkur langaði að bæta við í vöruflóru okkar. Við byrjuðum því að horfa í kringum okkur eftir lagerhúsnæði en á sama tíma fundum við þörf hjá við­ skiptavinum okkar til að koma við og máta undirfötin okkar, hand­ leika vörurnar og spyrja starfsfólk okkar ráða. Því ákváðum við á endanum að prófa að opna litla verslun á Laugaveginum í Reykja­ vík og sjáum svo sannarlega ekki eftir því. Móttökurnar hafa verið mjög góðar hjá landsmönnum og það sem kom okkur á óvart var að túristar eru líka reglulegir við­ skiptavinir, þótt þeir séu kannski að versla öðruvísi vörur heldur en Íslendingar.“ Áhersla á undirfötin Fríður segir Kinky.is selja nokkuð hefðbundið úrval af unaðsvörum eins og aðrar sambærilegar verslanir hérlendis. „En utan þess höfum við lagt sérstaka áherslu á að taka inn gott úrval af undirfötum á frábæru verði en þar ættu f lestar konur að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, enda bjóðum við upp á stærðir frá Xs upp í 7xl.“ Af hefðbundnum unaðstækjum segir hún ýmsar gerðir sog­ tækja hafa verið mjög vinsælar undanfarin ár. „En í heildina hugsa ég að sleipiefni og ýmis krem séu þeir f lokkar sem við seljum mest af og þar koma túristarnir sterkir inn.“ Veðja á strákana Kinky.is er stöðugt að taka inn nýjar og spenn­ andi vörur, segir Fríður. „Undanfarið höfum við svolítið verið að veðja á strákana og höfum til dæmis aukið mikið úrvalið af múffum. Það virðist vera að almennt sé það viðurkennt að stelpur eigi dót en þetta er enn þá pínu viðkvæmara hjá strákum. Sem dæmi þá koma vinkvennahópar mjög reglulega að kaupa sér dót en við fáum mjög sjaldan hóp af strákum í heimsókn, heldur koma þeir frekar einir. En þetta er allt að breytast. Ein af okkar f lottustu vörum er A.I autoblow, munngælu­ græja, sem er víst algjörlega geggjuð að sögn þeirra sem hafa prófað.“ Vinsælar heimsóknir Heimsóknir lítilla hópa eru sérstaklega vinsælar að hennar sögn, en þá er verslunin opnuð á kvöldin þannig að fólk geti verslað í friði. „Þannig geta til dæmis hópar farið út að borða eða fengið sér drykk og kíkt svo í heimsókn til okkar, enda erum við í göngufæri við marga af bestu stöðum borgarinnar. Við bjóðum upp á freyðivín meðan skoðað er og mátað í afslöppuðu umhverfi og friði og ró. Einnig höfum við tekið á móti saumaklúbbum og litlum vinnustöðum og það hefur alltaf heppnast frábærlega vel.“ n Nánar á kinky.is. Heimsóknir lítilla hópa í verslun Kinky.is eru mjög vinsælar. Þá fá gestir nægan tíma og frið til að kynna sér þær vörurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kinky.is býður upp á mjög gott úrval unaðsvara við allra hæfi. Sérstök áhersla er lögð á úrval undirfata þar sem sérstaklega konur geta valið úr miklu úrvali æsandi og fallegra undirfata í ólíkum litum og gerðum. 2 kynningarblað 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURUNAÐSVÖRUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.