Fréttablaðið - 10.02.2022, Síða 24
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
„Snípurinn eldist aldrei.
Hann virkar og veitir okkur
unað á meðan við lifum og
dr. Betty var enn að fá full-
nægingar eftir nírætt,“ segir
Rósa María Óskarsdóttir,
Bodysex leiðbeinandi.
Rósa María er að tala um kennara
sinn, bandaríska kynfræðinginn
dr. Betty Dodson, sem lést árið
2020, þá 91 árs að aldri. Betty
helgaði líf sitt því að styðja konur
í að tengjast líkama sínum og full-
nægingum, til að heila skömm,
auka unað og sjálfsást, og það gerir
Rósa María líka.
„Dr. Betty starfaði lengi með Car-
lin Ross og saman fóru þær í þátt-
inn The Goop Lap með Gwyneth
Paltrow á Netflix. Í þættinum voru
sýndar ljósmyndir af píkum og
Carlin stundaði sjálfsfróun og fékk
fullnægingu. Þetta var mikilvægt
skref í baráttunni um kynfrelsi
kvenna þar sem þetta var sýnt í
meginstraums sjónvarpsefni.“
Rósa María situr ásamt Carlin í
stjórn samtakanna Betty Dodson
Foundation.
„Markmið okkar er að koma
visku Betty sem víðast um heiminn
og það gerum við með rann-
sóknum og fríu kynfræðsluefni
fyrir konur. Við höfum möntru
Betty að leiðarljósi, sem er „Libe-
rating women, one orgasm at a
time“. Þetta snýst þó ekki bara um
fullnægingu kvenna og er í raun
mun stærra og pólitískara, en við
trúum því að þegar konur eru
komnar með fullt launajafnrétti og
stjórn á eigin líkama sé loks komið
kynfrelsi,“ segir Rósa María.
Píkur jafn ólíkar og andlit
Sem Bodysex leiðbeinandi
styður Rósa María konur í að heila
skömm, auka unað og sjálfsást.
Hún segir allar konur geta fengið
fullnægingar með réttri fræðslu,
örvun og stuðningi.
„Sumar konur hafa aldrei fengið
fullnægingu vegna skorts á kyn-
fræðslu í gegnum tíðina. Þess vegna
er femínísk baráttumál að konur fái
að endurheimta líkama sinn. Við
burðumst enn með skömm frá því
á miðöldum þegar píka var upp á
latínu kölluð „pudere“ sem þýðir að
skammast sín. Þarna kemur meðal
annars skömmin, sagan og menn-
ingin sem er rótgróin í líkömum
okkar. Mikill hluti fólks með vulvu
hefur áhyggjur af því af því hvernig
hún lítur út. Enn fá stúlkur engar
upplýsingar um hvernig píkan
þeirra lítur út, að þær séu með sníp,
sumar fá aldrei að vita það og sums
staðar er snípurinn fjarlægður.
Mér finnst hrikalegt að stúlkur
séu rændar upplýsingum um það
sem veitir þeim mikinn unað í
líkamanum. Það er ómögulegt að
upplifa unað ef þú heldur að eitt-
hvað sé slæmt eða athugavert við
píkuna þína, og þess vegna vinn ég
með sjálfsást og líkamsvirðingu.
Það byrjar með fræðslu, svo konur
haldi ekki að það sé eitthvað að
þeim, því þessu er öfugt farið; það
er eitthvað að í menningunni sem
hefur innprentað það í þær.“
Rósa segir allar konur vera með
píkur sem séu jafn ólíkar og andlit
þeirra.
„Ég hef séð fullt af píkum og
hver einasta þeirra er mögnuð og
undurfögur. Það er auðvitað mikil
berskjöldun að sýna á sér píkuna
og var það líka fyrir mig þegar ég
sýndi hana fyrir framan konur, en
við skoðum píkurnar saman og
hvar allt er á þeim, og það er heilög
stund þar sem eitthvað einstakt
gerist. Það er helst að kona fari til
læknis þegar einhver annar skoðar
píkuna en þarna skoðum við hana
til að þekkja hana, sjá fegurðina og
endurheimta hana úr skömminni,
sjá fjölbreytileikann og unaðslegu
hliðina líka,“ greinir Rósa María
frá.
Áferð sleipiefna æðisleg
Rósa María segir unaðstæki frábær.
Lykillinn að unaði sé þó alltaf
líkamsvirðing.
„Því meiri sem líkamsvirðingin
er, því meiri unað muntu upp-
lifa. Mikilvægt er að fullnæging sé
ekki markmiðið heldur að vera í
tengingu við líkama sinn og snerta
okkur eins lengi og við viljum og að
við finnum hvað okkur finnst gott
því þar með viljum við meira.“
Númer eitt á unaðsvörulista
Rósu Maríu er sleipiefni. Hún mæli
með hreinni jurtaolíu eða góðum
sleipiefnum úr kynlífsbúðum.
„Sleipiefni eru góð unaðsvara
því konur eru misjafnar. Stundum
örvumst við en blotnum ekki, og
stundum blotnum við ekki en
örvumst samt. Það getur farið eftir
tíðahringnum, breytingaskeiðinu
og álagi. En svo er áferðin á sleipi-
efnum bara æðisleg,“ útskýrir Rósa
María.
Hún mælir með sjálfsfróun sem
byrjar á vulvunuddi með sleipiefni
í nokkrar mínútur, en vulvan er
ytri kynfæri kvenna.
„Fyrst er að koma sér fyrir í þægi-
lega stellingu, dýpka öndun, losa
um streitu og nota hendurnar. Gott
er að nota spegil til að sjá hvernig
vulvan breytist við nudd og örvun.
Þegar við nuddum vulvuna eykst
blóðflæði til kynfærasvæðisins og
við tengjumst því betur,“ upplýsir
Rósa María.
Rollsinn í víbratorum
Eftir vulvunudd mælir Rósa María
með noktun víbrators.
„Ég mæli með nuddvendi með
stórum kúluhaus að framan,
þeir eru ætlaðir til að nudda alla
vulvuna. Ef örvun verður of mikil
er gott að setja bómullarefni eða
annað mjúkt á milli til að titringur-
inn verði mýkri. Hægt er að nota
hvaða víbrator sem er og enginn
sem getur sagt konu hvað sé best
fyrir hana, hún þarf sjálf að finna
hvað henni finnst gott.“
Rósa segir gjarnan talað um
suðandi (e. buzzy) eða drynjandi
(e. rumbly) titrara.
„Suðandi víbratorar örva
meira útvortis hluta snípsins og
víbringurinn er oddhvassari.
Hljóðið er eins og suð með hærri
tíðni. Sumir upplifa suðandi víbra-
tora of örvandi og er ástæðan sú að
snípurinn dofnar út af of mikilli
örvun, enda er verið að örva 8.000
taugaenda. Drynjandi víbratorar
örva meira útvortis og innvortis
hluta snípsins, og víbringurinn er
dillandi. Hljóðið er dýpra eins og
drunur með lægri tíðni. Drynjandi
víbratorar eru vinsælli, eflaust því
þeir auka meira blóðflæði í öllu
kynfærinu,“ útskýrir Rósa María.
Hennar uppáhald er drynjandi
víbrator; The Magic Wand Rechar-
geable.
„Hann er seldur sem alhliða
nuddtæki og varð víðfrægur þegar
dr. Betty Dodson fór að sveifla
honum og sýna á kvennahitt-
ingum í kringum 1970. Víbratorar
voru lengi vel ólöglegir og það er
ástæðan fyrir að svo margir eru í
formi höfrunga eða kanína en ekki
getnaðarlims,“ útskýrir Rósa María
sem notar The Magic Wand á nám-
skeiðum sínum.
„Hann er mjög kröftugur og því
byrjar maður á lægstu stillingu.
Stúturinn er úr mjúku silíkoni og
hægt að nudda alla vulvuna, sníp-
Hver einasta píka er
mögnuð og undurfögur
inn, ytri og innri barma, legganga-
opið, spöngina, en líka kjálkana,
axlirnar eða hvað eina því hann
er nuddtæki fyrir líkamann. Þeir
kallast nuddvendir í kynlífsbúðum
og Betty kallaði þennan tiltekna
nuddvönd „Cadillac of vibrators“
eða Rollsinn í víbratorum, eins og
það kallast upp á íslensku.
Allar fullnægingar heilsubætandi
Rósa María segir brýnt að konur
viti hvar snípurinn sé.
„Sumar konur vita ekki hvar
snípurinn er því samfélagið, popp-
kúltúr, Hollywoodmyndir og
meginstraums klámmyndir eru
með leggöng á heilanum og ein-
blína á að konur fái fullnægingar í
gegnum leggöngin, en fæstar konur
fá fullnægingu einungis með inn-
setningu í leggöng. Því er mikil-
vægt að fræða fólk. Snípurinn er
aðal skynfæri fólks með píku þegar
kemur að því að fá fullnægingu.“
Rósa segir allar fullnægingar
góðar og heilsubætandi, sama
hvernig þær eru og engin er eins.
Uppáhalds dildó Rósu Maríu
er Betty’s Barbell, hannaður af dr.
Betty Dodson.
„Hann er úr ryðfríu stáli og
þungur; um hálft kíló. Vegna
þyngdar sinnar er hann góður til
að æfa grindarbotnsvöðvana því
hann helst inni þegar vöðvarnir
kreista og slaka á víxl. Á honum eru
líka tveir misstórir endar, og hægt
að byrja á innsetningu þess minni
og fara svo í þann stærri,“ segir
Rósa María.
Hún segir hægt að nota dildó til
innsetningar í leggöng eða enda-
þarm.
„En ekki allar konur vilja
innsetningu í leggöng og það er
fullkomlega eðlilegt. Ástæðurnar
geta verið margar, að þeim þyki
það ekki gott eða vilja það hrein-
lega ekki, það getur verið sárt og á
breytingaskeiðinu getur legganga-
veggurinn farið að þynnast og
getur valdið sárauka við samfarir,“
upplýsir Rósa María.
Allar fantasíur leyfilegar
Rósa María mælir með fantasíum
við sjálfsfróun.
„Með því að fantasera slökum
við á hugsunum okkar, matarinn-
kaupum og þvottakörfunni, og
getum verið meira í líkama okkar.
Það má fantasera um allt sem
maður vill og leyfa ímyndunarafl-
inu að blómstra. Í daglegu lífi erum
við mikið á þönum og það gerist
líka í sjálfsfróuninni, eins og við
séum að drífa okkur, en það er gott
að gefa sér tíma í sjálfsumhyggju.
Því er mikilvægt að halda áfram ef
þú hefur ekki fengið fullnægingu,
því fullnæging er losun á kynferðis-
legri spennu og gerist í heilanum.
Þetta er líkamlegt og andlegt
ástand og maður þarf að treysta
líkamanum.“
Rósu Maríu er annt um unað
kvenna.
„Konur hafa rétt á því að vita
hvernig líkami þeirra virkar og að
allar konur geti fengið fullnægingu
með réttri fræðslu og örvun. Full-
næging og sjálfsunaður betrum-
bætir líkamlegt og andlegt ástand.
Um þær streymir gleðihormón,
þeim líður vel með líkama sinn og
elska hann, eru hamingjusamari og
slakari, og þetta er líka ein leið til
að upplifa alsælu. Það er ekkert að
konum eða píkum þeirra. Þær eru
magnaðar.“
Þegar öll höft losna vegna Covid-
19 hefjast Bodysex-námskeið á ný
hjá Rósu Maríu, fyrir konur sem
vilja tengjast líkama sínum og
fullnægingum, til að heila skömm,
auka unað og sjálfsást. n
Fylgist með Rósu Maríu á Insta
gram @orgasmicselflove og á
Facebook @bodysexiceland.
Rósa María er Bodysex leiðbeinandi og segir unaðstæki frábær. MYND/GUNNLÖÐ JÓNA RÚNARSDÓTTIR
Þetta eru uppá
halds unaðstæki
Rósu Maríu;
nuddvöndurinn
The Magic Wand
Rechargeable,
Betty’s Barbell
grindarbotns
þjálfi og dildó,
og sleipiefni.
MYND/AÐSEND
4 kynningarblað 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURUNAÐSVÖRUR