Fréttablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 25
Kynlíf eykur magn
hamingjuhormóna
í líkamanum. Sleipiefni
geta gert gæfumuninn en
mikilvægt er að velja rétt
sleipiefni með hágæða
innihaldsefnum.
Sleipiefni geta gert kynlíf
ánægjulegra fyrir alla, óháð
kyni, kynhneigð og aldri.
Astroglide kynnir fjórar
nýjungar á markað sem allar
eiga sameiginlegt að veita
enn meiri unað í kynlífi.
Kynlíf eykur magn hamingju-
hormóna í líkamanum en við
fullnægingu losna meðal annars
gleði- og vellíðunarhormónin
oxytocin og endorfín úr læðingi.
Aukin framleiðsla líkamans á
tilteknum hormónum hefur góð
áhrif á ýmsa þætti, svo sem svefn
og vellíðan. Sleipiefni geta gert
gæfumuninn en afar mikilvægt er
að velja rétt sleipiefni með hágæða
innihaldsefnum.
Þurrkur í leggöngum oft
vandamál hjá konum
Kynheilsa kvenna getur haft mikil
áhrif á líðan og ef viðvarandi
óþægindi eru til staðar á kyn-
færasvæði getur það jafnvel haft
áhrif á ánægju í kynlífi. Legganga-
þurrkur getur haft ýmis óþægindi
í för með sér og meðal annars haft
áhrif á lífsgæði kvenna og að auki
myndað togstreitu í samböndum.
Flestallar konur upplifa þurrk
í leggöngum einhvern tíma á
lífsleiðinni. Með hækkandi aldri
þynnist slímhúð í leggöngum og
framleiðir hún jafnframt minni
raka. Miklar hormónabreytingar
eiga sér stað í líkama kvenna þegar
þær ganga í gegnum breytinga-
skeiðið en við það minnkar
framleiðslan á kvenhormóninu
estrógen. Estrógen stjórnar fram-
leiðslu á náttúrulegu sleipiefni
líkamans sem venjulega heldur
leggöngunum rökum og við það
þornar slímhúðin.
Þó svo að þurrkur í kynfærum
sé algengur um og eftir tíðahvörf
geta konur á öllum aldri upplifað
þurrk í slímhúð. Ástæða þess er að
estrógen-gildi lækka ekki einungis
við tíðahvörf heldur getur það
einnig gerst á meðgöngu, eftir
fæðingu og við brjóstagjöf. Að
auki getur þurrkur í leggöngum
orsakast af fleiri ástæðum, meðal
annars notkunar lyfja sem geta
haft áhrif á hormónabúskapinn,
vegna mikillar notkunar sápu, eða
vegna innleggja eða tíðatappa.
Gerir gott kynlíf enn betra
Vönduð sleipiefni mýkja slímhúð
í leggöngum og minnka núning
sem leiðir þar af leiðandi til minni
óþæginda við samfarir og getur
því reynst konum með þurrk í
leggöngum afar vel. Sleipiefni eru
ekki eingöngu hugsuð sem lausn
við þurrki í leggöngum heldur geta
þau jafnframt gert gott kynlíf enn
betra.
Þegar velja á sleipiefni er mikil-
vægt að velja vatnsblönduð eða
vatnsuppleysanleg sleipiefni,
aðeins súr (pH-jafnvægi) í sam-
ræmi við aðra líkamsvessa. Sýru-
stigið gerir það að verkum að það
hindrar vöxt óæskilegra baktería
og getur komið í veg fyrir ýmsa
kvilla í leggöngum. Grundvallar-
atriði er að notast aldrei við olíu-
blandaðar vörur eða matarolíur
sem sleipiefni þar sem slík efni
geta auðveldlega sært viðkvæma
slímhúð legganga og truflað eðli-
lega bakteríuflóru. Að auki geta
slíkar blöndur skaðað smokka og
hettur.
Einstakar nýjungar á markað
Astroglide-sleipiefnin eru vatns-
blönduð og vatnsuppleysanleg
sem henta afar vel með smokka-
notkun og gera jafnframt kynlífið
öruggt og ánægjulegt. Astroglide
hefur komið með fjórar unaðslegar
nýjungar á markað sem allar eiga
það sameiginlegt að hafa notið
mikilla vinsælda.
Astroglide-sleipiefni geta aukið unað í kynlífi
Astroglide-sleipiefnin njóta mikilla vinsælda, enda hágæða vörur sem veita mikinn unað.
Astroglide-
sleipiefnin eru
vatnsblönduð
og vatnsupp-
leysanleg,
afar þægileg
í notkun og
klístrast ekki.
MYNDIR/AÐSENDAR
Astroglide Sensual Massage Oil er 99 prósent lífrænt sleipiefni og nuddolía með angan af kókos. Toy’N’Joy er sérstaklega hannað fyrir kynlífsleikföng.
Astroglide Stawberry ilmar og bragðast eins og jarðarber
og Astroglide Organix er laust við öll ilm- og bragðefni.
Astroglide Organix Liquid er
náttúrulegt vatnsbaserað sleipiefni
sem er laust við öll aukaefni eins
og paraben-, ilm- og bragðefni.
Organix hentar meðal annars vel
gegn þurrki og ertingu í leg-
göngum.
Astroglide Sensual Massage Oil
er bæði sleipiefni og nuddolía í
einni vöru en olían er 99 prósent
lífræn formúla með einstökum
kókoshnetuilm.
Þriðja varan er Astroglide Straw-
berry sem er einnig vatnsbaserað
sleipiefni sem lyktar og bragðast
eins og jarðarber en sleipiefnið er
leikfangavænt og öruggt í notkun
með smokkum.
Að lokum er það hið sívinsæla
Astroglide Toy‘N‘Joy sleipiefni sem
hannað er sérstaklega fyrir kyn-
lífsleikföng og er að auki frábær
kostur fyrir viðkvæma húð.
Astroglide sleipiefnin eru afar
þægilegt í notkun og klístrast
ekki. ■
kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 10. febrúar 2022