Fréttablaðið - 10.02.2022, Page 28
Það er
fáránlegur
misskiln-
ingur að
það að
þykja
enda-
þarms-
örvun góð,
hafi nokk-
ur áhrif á
kynhneigð
þína.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
www.purityherbs.is
Góð náttúruleg leið til að krydda kynlífið.
Komdu maka þínum á óvart í ástarlífinu og bjóddu upp á
unaðslegt dekur með unaðsvörunum frá Purity Herbs
www.purityherbs.is
Það má segja að það ríki
nokkuð almennt samþykki
um notkun kvenna á kyn-
lífstækjum, en það sama
virðist ekki gilda fyrir karla,
samkvæmt vefmiðlinum
Dazed.
Á meðan það er talið kynfrelsi
þegar kona mundar titrarann eða
önnur leiktæki, virðist lítið um
hrós til karlmanna sem vilja kynn-
ast lystisemdum múffa, sogtækja,
anal-tappa eða annarra sjálfsfró-
unartækja. Ástæðurnar eru margar
og tengjast meðal annars skorti
á sýnileika, skömm, markaðs-
fræðum og skorti á samtali.
Það ríkir skömm
Skoðanakönnun sem breski mið-
illinn The Guardian gerði árið
2014 um kynlíf sýndi fram á að
konur eru mun líklegri en karl-
menn til þess að nýta sér leiktæki
ástarlífsins, eða um 52% kvenna
og 39% karla. Að sama skapi voru
samkynhneigðir karlmenn mun
líklegri en gagnkynhneigðir til
að nota kynlífstæki, eða um 66%
samkynhneigðra og 44% gagn-
kynhneigðra. Þetta sýnir að stór
hluti gagnkynhneigðra karlmanna
getur ekki hugsað sér að nýta sér
kynlífstæki eða þorir einfaldlega
ekki að viðurkenna það.
Einn þátttakandi í könnuninni,
25 ára gagnkynhneigður karlmað-
ur, sagðist þekkja vel leynimakkið
í kringum leiktækjanotkun karl-
manna á eigin skinni. Þrátt fyrir að
Karlana kitlar líka
Um leið og það opnast fyrir samtalið mun skömmin yfir kynlífstækjum karla fjúka út í veður og vind
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
hafa verið forvitinn um kynlífs-
tæki frá unglingsaldri, var hann
kominn yfir tvítugt þegar hann
keypti sitt fyrsta leikfang, sem
var blöðruhálsnuddtæki. Þó svo
vinkonur hans ættu auðvelt með
að ræða um kynlífstækjanotkun
sína fannst honum hann ekki
hafa sama frelsi til þess sem karl.
„Kynlífstæki fyrir karla eru oftast
markaðssett til samkynhneigðra
karlmanna. Þessi markaðssetning
höfðar ekki til gagnkynhneigðra
karla sem túlka það sem svo að
þeir hneigist til sama kyns vilji
þeir prófa tækin.“
Þá óttast sumir að ef þeir
viðurkenna fyrir öðrum að þeir
noti blöðruhálsnuddtæki muni
þeir vera stimplaðir sem sam-
kynhneigðir. „Ég var einu sinni
nógu drukkinn til að segja vinum
mínum að ég væri að gera tilraunir
með kynlífstæki. Þeir gerðu sam-
stundis grín að mér og sögðu að
ég hlyti að vera samkynhneigður.
Það er fáránlegur misskilningur
að það að þykja endaþarmsörvun
góð, hafi nokkur áhrif á kynhneigð
þína,“ segir hann.
Ástæðan fyrir því að kynlífstæki
fyrir karlmenn eru tengd menn-
ingu samkynhneigðra er líka á
ábyrgð kynlífstækjafyrirtækjanna.
Samkvæmt Nichi Hodgson, sem
er kynlífsfræðingur með meiru,
hafa samkynhneigðir karlmenn,
sem jaðarsettur hópur, haft frelsi
í gegnum söguna til þess að gera
tilraunir með leiktæki ástarlífs-
ins. „Það var skömm í kringum
kynhneigð þeirra, svo þeir hafa
þurft að berjast fyrir kynfrelsi sínu
og fengið að gera tilraunir með
það. Þess vegna er kynlífstækjum
frekar beint að samkynhneigðum
körlum.“ Hún bætir við: „Það gildir
líka sú trú í samfélaginu að „raun-
verulegur“ karlmaður þurfi enga
hjálp. Ef þú getur ekki fengið það
einn og óstuddur, þá hljóti eitt-
hvað að vera að þér kynferðislega.“
Tímarnir breytast
Sem betur fer breytast tímarnir og
markaðurinn og mennirnir með
og kynlífstæki fyrir karla verða
sívinsælli. Internetið hefur einnig
veitt öruggt rými fyrir fólk til þess
að skoða og kaupa. „Markaðurinn
víkkar og ný vöruþróun er að
eiga sér stað. Æ fleiri leiktæki
eru hönnuð til að höfða til allra
kynja, sem gerir það að verkum að
körlum þykir auðveldara að skoða
kynlífstæki upp á eigin spýtur,“
segir hún. „Sala á netinu er svo
stóri þátturinn. Gagnkynhneigðir
karlar þurfa ekki lengur að hætta
sér inn í misviðkunnanlegar kyn-
lífstækjabúðir sem fókusera á sam-
kynhneigða viðskiptavini.“
Mælir með paratækjum
Fyrir gagnkynhneigða karla sem
langar að prófa sig áfram en eru
feimnir mælir Hodgson sérstak-
lega með paratækjum. „Af reynslu
minni sem dominatrix veit ég að
flestir karlar hafa áhuga á enda-
þarmsörvun. En margir frjósa
þegar þeir eru snertir á þessu
svæði. Ég myndi mæla með að þeir
fá sér fjölnota titrara og prófi sig
áfram með konu fyrst. Þeim þarf
að líða vel í eigin skinni og leikföng
geta hjálpað til við það,“ segir hún.
Skortur á sýnileika
„Sjónvarpsefni á borð við Sex
and the City hafa hjálpað til við
að brjóta niður bannhelgina í
kringum konur og kynlífsleik-
föng. En við eigum enn eftir að sjá
þetta gerast fyrir karla í dægur-
menningunni,“ segir Hodgson. Til
þess að breytingarnar sem eru að
gerast endist, þá þarf samtalið um
notkun karla á kynlífstækjum að
víkka.
Skortur á sýnileika í dægur-
menningunni er helsta ástæðan
fyrir því að karlar skammast sín
fyrir að nota kynlífstæki. Amm-
anda Major, sérfræðingur á
þessu sviði, segir að það sé mun
algengara að kona sjáist nota
kynlífstæki í kvikmyndum og
sjónvarpi en karlar. „Ég er ekki að
tala um klám heldur dægurmenn-
ingu. Ég get svo sem ekki alhæft
um kvikmyndaiðnaðinn í heild
sinni, en mér dettur engin vinsæl
kvikmynd í hug sem myndi fúslega
sýna karlmenn nota kynlífstæki.“
Major segir vandann einnig liggja
í kynjamuninum. „Ólíkt konum
þykir körlum alla jafna erfitt að
eiga þessi samtöl við vini sína.
Þetta mun verða samþykkt um leið
og karlar byrja að tala um mál-
efnið,“ segir hún.
Þó svo það geti tekið tíma fyrir
þessi samtöl að eiga sér stað, þá
telur Major að breytingar séu nú
þegar að eiga sér stað. Það sem
þurfi núna er að málefnið fái sinn
tíma í sviðsljósinu. „Skömmin fer
minnkandi. En það mun þurfa
meira til þess að afmá hana alger-
lega og þar koma fjölmiðlar, kvik-
myndir og sjónvarp til sögunnar.
Með auknum sýnileika munu
karlmenn verða tilbúnari til þess
að ræða þessi mál við vini sína.“ n
8 kynningarblað 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURUNAÐSVÖRUR