Fréttablaðið - 10.02.2022, Page 44
Það er rosa jákvæðni í
kringum þetta þarna
úti.
Streymi
Reacher
Amazon Prime hefur farið heldur
halloka í samkeppninni við aðrar
streymisveitur sem eru miklum
mun duglegri við að spila út
stórum trompum. Streymisveitan
veðjaði þó heldur betur á réttan
gæðing með uppgjafarherlög-
reglumanninnum Jack Reacher.
Þættirnir þykja brakandi ferskir
á RottenTomatoes þar sem þeir
standa í 88% og loksins hafa
aðdáendur bóka Lee Child fengið
Reacher sem stendur undir nafni
og útlitslýsingum höfundarins þar
sem leikarinn Alan Ritchson státar
bæði af tilskildum sentimetra-
fjölda og upphandleggsvöðvum.
Þættirnir eru með því allra besta í
spennuhasarhillum efnisveitanna
þessi dægrin. Slagsmálin eru
skemmtilega ruddaleg og þar sem
vondu kallarnir eru alveg ofboðs-
lega vondir er alveg dásamlega
fullnægjandi að fylgjast með
tröllinu Reacher brjóta í þeim hvert
bein áður en hann sendir þá bráð-
feiga inn í eilífiðina. ■
Myndlist
Listasafn Árnesinga
í Hveragerði
Við mælum með að bregða sér í
Listasafn Árnesinga í Hveragerði
en fjórar sýningar eru í sölum
safnsins. Listamennirnir sem sýna
eru: Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir,
Lóa H. Hjálmtýsdóttir, Þórdís
Erla Zoëga og Magnús Helgason.
Verkin eru afar fjölbreytt enda
ólíkir listamenn þarna á ferð. Við
mælum með því að taka börnin
með en verk Ingunnar Fjólu má
snerta og endurskapa. Verk
hinna þriggja listamannanna eru
einnig líkleg til að vekja lukku hjá
unga fólkinu, eins og þeim eldri.
Sýningarnar standa til 22. maí. ■
Dans
Hvíla sprungur eftir
Ingu Maren Rúnarsdóttur
Dansverkið Hvíla sprungur í
Borgarleikhúsinu er að sögn gagn-
rýnanda Fréttablaðsins dulúðugt
og grípandi verk þar sem samspil
dansara er sterkt og fallegt. Ljós-
myndir hins frábæra ljósmyndara
RAX eru notaðar í sviðsmynd og
búninga. Gagnrýnandinn segir
ljósmyndirnar skapa „einstaka
umgjörð fyrir dansinn, vel studdar
af tónlistinni sem undirstrikaði
kalda og drungalega vetrarfeg-
urðina. Lýsingin fullkomnaði svo
stemninguna og gaf þessu annars
svart hvíta verki lit.“
Næsta sýning er í kvöld, 10.
febrúar, og síðan eru sýningar 18.
og 23. febrúar. Látið ykkur ekki
vanta! ■
■ Allra best
odduraevar@frettabladid.is
Björgunarsveitin Strákar frá Siglu-
firði býður til tónlistarveislu í
Siglufjarðarkirkju næstkomandi
föstudagskvöld. Um er að ræða
styrktartónleika fyrir sveitina sem
haldnir eru árlega en tilefnið mögu-
lega aldrei verið mikilvægara.
Tónleikunum verður streymt að
þessu sinni í samstarfi við streymis-
þjónustu Straumanda og verður
hægt að fylgjast með tónleikunum í
gegnum YouTube. Hlekkinn að tón-
leikunum verður hægt að nálgast á
Facebook-síðu björgunarsveitar-
innar.
Sveitin er meðal öflugustu sveita
landsins og tók meðal annars þátt
á dögunum í leitinni við Þingvalla-
vatn. Að þessu sinni er markmiðið
með tónleikunum að safna fyrir vel
útbúnum og fullkomnum leitar- og
björgunardróna sem bráðnauðsyn-
legur er sveitinni til starfa sinna.
Tónleikarnir munu hefjast á slag-
inu 20.00 á föstudagskvöldið en þá
er einmitt 112 dagurinn. en þeim
verður eingöngu streymt, að því er
segir á Facebook-viðburði tónleik-
anna hjá björgunarsveitinni.
Miðaverð eru léttar 3.000 krónur
og beinir björgunarsveitin þeim
tilmælum til væntanlegra tón-
leikagesta að hægt sé að leggja inn
á sveitina en reikningsupplýsingar
er að finna á Facebook-síðunni hjá
björgunarsveitinni. ■
Strákar safna fyrir dróna og senda frá sér tóna
Tónlistarstjórinn Graham
Ross leiðir metnaðarfullan
könnunarleiðangur um
íslenskan tónheim á plötunni
Ice Land – The Eternal Music
þar sem tónlistarfólk á heims-
mælikvarða flytur ný klassísk
verk eftir Sigurð Sævarsson
og fleiri tónskáld í bland við
eldri og þekktari verk í nýjum
útsetningum.
ninarichter@frettabladid.is
Platan Ice Land – The Eternal Music
kemur út á morgun en á henni leiðir
tónlistarstjórinn Graham Ross
könnunarleiðangur um klassísk,
íslensk tónverk sem voru að hluta
flutt á tónleikum hins heimsþekkta
Clair Collage kórs við Cambridge í
Hallgrímskirkju í fyrra.
Fljótavík, eftir Sigur Rós, í endur-
útsetningu Guy Button, ómar
meðal annars á plötunni í bland
við þekktari og eldri verk á borð
við Heyr himna smiður eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, í f lutningi kórsins
frá Cambridge.
Sálumessa eftir Sigurð Sævarsson,
tónskáld og skólastjóra Nýja tón-
listarskólans, er einnig á plötunni í
sjö hlutum. „Þetta kom þannig til að
ég var í sambandi við stjórnandann
árið 2016,“ segir Sigurður sem hefur
unnið náið með Ross í rúman ára-
tug.
„Ég sá viðtal við hann í Grammo-
phone-tímaritinu og spurði hvort
hann vildi skoða eitthvað af nýjum
kórverkum.“ Graham var endilega
til í það og þar með hófst samstarf
sem hefur getið af sér tónleikahald
heima og erlendis og núna plötuút-
gáfu.
Óþarflega spennandi ferðalag
Platan samanstendur af kórverkum,
sem Claire College kórinn f lytur,
auk tveggja strengjaverka. Sigurður
segir f lest kórverkin á plötunni
frumsamin en þar megi einnig finna
verk gömlu meistaranna í bland.
„Þau tóku plötuna upp í London
í lok júní og byrjun júlí,“ segir hann
en heimsfaraldurinn gerði ferða-
lagið í kringum upptökurnar óþarf-
lega spennandi. Hópurinn, sem
telur tugi manna, slapp þó nokkuð
vel og Sigurður segir lítið hafa verið
um veikindi.
„Ég fór út að hjálpa þeim aðeins
með f ramburðinn á þessum
íslensku verkum. Þetta var mjög
stressandi tími. Daginn áður en
ég kom út sagði stjórnandinn að
það væru „fifty-fifty“ líkur á að við
gætum gert þetta.“
Sigurður hefur haft áhrif á kóra-
tónlist í áratugi. „Þegar ég var í námi
úti í Boston kynntist ég kirkjukór
háskólans. Þá voru beinar útsend-
ingar frá kirkjunni og þar kynntist
maður þessari músík,“ segir hann.
„Ég samdi síðan verk, Hallgríms-
passíu, og fór með það til Harðar
Áskels, sem þá var stjórnandi í Hall-
grímskirkju. Þau plötuðu mig svo í
kórinn ári seinna,“ heldur hann
áfram og það varð úr að Sigurður
söng með Scola Cantorum kórnum
í fimmtán ár. „Ég samdi fyrir þau,
með þau í huga.“
Ópera upp úr Shakespeare
Sigurði er margt til lista lagt og
þessa dagana vinnur hann að óperu
upp úr Ríkharði III eftir William
Shakespeare. „Ég er búinn að semja
við allan textann, það sem ég kippti
úr,“ útskýrir hann og bætir við að
það sé gríðarleg vinna að útsetja
bæði píanópart og hljómsveit.
„Þetta er svo ógnarlangt verk. Ég
er að nota kannski einn tíunda eða
einn áttunda af textanum,“ segir
Sigurður. „Ég var byrjaður fyrir
mörgum árum að klippa þetta til
og svo byrjaði ég árið 2020 að semja.
Þetta er hellings vinna.“
Sigurður segir tímabilið búið að
vera skrítið þegar hann er spurður
hvort heimsfaraldurinn hafi haft
áhrif á að hann ákvað að snúa sér
að óperunni. „Einn organisti ætlaði
að fara að túra um Rússland og spila
verk eftir mig. Þá átti að frumflytja
nýtt orgelverk í dómkirkjunni á
Manhattan. Svo frestaðist það allt.“
En núna er allt hrokkið í gang á
ný og Sigurður segir að um þessar
mundir sé verið að taka upp nýtt
orgelverk eftir hann í Finnlandi og
fljótlega megi vænta útgáfunnar.
Himna smiður slær í gegn
„James Hicks, bandarískur organ-
isti, pantaði það. Ég samdi fyrir
hann verk í kringum Heyr himna
smiður. Það kom út á plötu sem
hann tók upp í Hallgrímskirkju
fyrir tveimur árum og svo er þetta
komið út.“
Lag Þorkels Sigurbjörnssonar
við ljóð Kolbeins Tumasonar, Heyr
himna smiður, hefur einmitt notið
gríðarlegra vinsælda erlendis og
verið notað í sjónvarpsþáttum á
borð við The Handmaids Tale. Getur
verið að þessi íslensku sálmalög séu
að komast í tísku?
Sigurður bendir á upptöku á Heyr
himna smiður, í f lutningi Árstíða,
sem hefur notið vinsælda á YouTube
í áraraðir.
„Það er ótrúlegt hvað það er búið
að opna helling,“ segir hann. Sig-
urður segist vera í miklu sambandi
við Graham Ross og áhuginn á nýju
plötunni sé mikill.
„Þau voru að spila af plötunni á
BBC,“ segir hann.
„Mér heyrist vera mikið „buzz“ í
kringum þetta, mikill spenningur.
Það er rosa jákvæðni í kringum
þetta þarna úti, en svo veit maður
ekkert hvernig fer. En maður leyfir
sér að vera jákvæður.“ ■
Töfrar íslenskra tónverka í útrás
Sálumessa
eftir Sigurð
Sævarsson er
á plötunni í sjö
hlutum, en hann
hefur unnið í
nánu samstarfi
með Graham
Ross í rúman
áratug.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Leit að flugvél í Þingvallavatni við Ölfusárvík FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
28 Lífið 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 10. febrúar 2022 FIMMTUDAGUR