Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2022, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 04.03.2022, Qupperneq 1
Mikill skortur á vinnuafli á sama tíma og húsnæðisskort- ur er um allt land er stærsta áskorun íslensks atvinnulífs nú um stundir. ser@frettabladid.is ATVINNUMÁL Tólf þúsund manns þurfa að f lytja til Íslands á næstu fjórum árum, að því er fram kemur í nýrri rannsókn Samtaka atvinnu- lífsins á vinnumarkaðnum. Störf- um fjölgar um fimmtán þúsund á þessum tíma, en náttúrleg fjölgun vinnuafls á sama tíma nemur aðeins þrjú þúsund manns. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri samtakanna, segir skort á vinnuafli geta hamlað hagvexti hér á landi á næstu árum og viðspyrnan úr faraldrinum, sem bitnað hefur harkalega á atvinnu- lífinu, geti því orðið veikari en ella. „Rætur hagvaxtar liggja í því að við getum mannað störf framtíðar- innar,“ segir Halldór og metur það svo að vinnuaflsskorturinn nú um stundir sé „með því brattara sem við höfum tekist á við.“ Hann segir vand- ann einkum vera í ferðaþjónustu, veitingageira og byggingariðnaði. Sá veruleiki sem blasir við að íslenskar fjölskyldur eignast æ færri börn á tímum aukinna umsvifa í atvinnulífinu kallar á stóraukið innf lutt vinnuaf l. Ef það nær að fylla í skarð Íslendinga má ætla að árið 2025 verði fjórði hver maður á vinnumarkaði af erlendu bergi brotinn. En vandinn er margþættari og veldur húsnæðisskortur þar miklu. Kristófer Oliversson, formaður Félags fyrirtækja í hótelrekstri og gisti þjón ustu, segir þann skort þegar vera farinn að hamla komu erlends vinnuafls til landsins. Undir það tekur Jóhannes Þór Skúlason, for- maður Samtaka ferðaþjónustunnar. „Þetta verður ein af erfiðustu áskorununum sem við stöndum frammi fyrir á næstu árum. Okkur vantar f leiri starfsmenn núna en fyrir faraldurinn. En, hvar á að koma þeim fyrir?“ spyr Jóhannes. „Það er þegar orðið vandamál – og sumarið enn langt undan. Það er bara ekkert húsnæði til fyrir fólkið sem okkur vantar.“ n Okkur vantar fleiri starfsmenn núna en fyrir faraldurinn. En, hvar á að koma þeim fyrir? Jóhannes Þór Skúlason, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar 4 4 . T ö L U b L A ð 2 2 . Á r g A N g U r f rettab lad id . i s F ö S T U D A g U r 4 . M A r S 2 0 2 2 Glæpareisubók Þóru Karítasar Börnin og stóru spurningarnar Lífið ➤ 20 Lífið ➤ 22 Þjónustutorgið snýst um þig Þjónustutorg Heklu www.hekla.is Óttast viðvarandi skort á vinnuafli næstu ár Míkhaíl Noskov, sendiherra Rússlands, hætti sér ekki út fyrir dyr, en fylgdist þó með störfum lögreglu í kjölfar þess að rauðri málningu var skvett á sendiráðsbygginguna. Starfsfólk þar ætlar sér ekki að þrífa málninguna af húsinu sjálft. „Sá sem gerði þetta á að þrífa þetta,“ sagði starfsmaður sendiráðsins, en vildi ekki tjá sig frekar um málið. Fréttablaðið/Ernir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.