Fréttablaðið - 04.03.2022, Blaðsíða 10
n Halldór
n Frá degi til dags
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
fréttaStjórar: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Börnin
voru látin
afskipta-
laus og
þeim
ekki sinnt
tilfinn-
ingalega
á vöggu-
stofunni
á Íslandi,
eins og í
Rúmeníu.
Innritun
hefst í
þessum
mánuði í
pláss sem
opna í
sumar og
haust.
Aðgengi ungbarnafjölskyldna að leikskólum í Reykja-
vík batnar verulega á þessu ári en átta nýir leikskólar
verða opnaðir í ár og tekin verða í notkun 850 ný leik-
skólarými í borginni.
Fyrsti nýi leikskólinn, Ævintýraborg við Eggerts-
götu, var opnaður í þessari viku og sá næsti, ung-
barnaleikskóli við Bríetartún, verður opnaður í apríl.
Síðar á árinu verða Ævintýraborgir í Vogabyggð og við
Vörðuskóla opnaðar auk nýrra leikskóla við Klepps-
veg og Safamýri og nýs leikskóla í Ármúla sem rekinn
verður undir merkjum Múlaborgar.
Frá og með komandi hausti verður byrjað að taka á
móti 12 mánaða börnum í leikskólana, nánar tiltekið
börnum sem verða orðin 12 mánaða 1. september
næstkomandi. Innritun hefst í þessum mánuði í pláss
sem verða opnuð í sumar og haust. Meðalaldur barna
við inntöku í leikskólana lækkar um heila 4 mánuði í
haust og verður um 15 mánaða.
Mikil aukning hefur orðið í barnsfæðingum á
síðustu misserum í Reykjavík og verður fjölgað veru-
lega nýjum leikskólarýmum til að mæta aukinni þörf.
Alls er stefnt að opnun 1.680 nýrra leikskólarýma í
Reykjavík á næstu 4 árum og munar þar mestu um
nýjan leikskóla Miðborgar við Njálsgötu, nýja leik-
skóla í Vogabyggð, Völvufelli í Breiðholti, við Kirkju-
sand og í Skerjafirði auk viðbygginga við leikskólana
Sæborg, Hof, Kvistaborg, Funaborg og Laugasól.
Samhliða fjölgun leikskólaplássa höfum við lagt
höfuðáherslu á að bæta vinnuumhverfi starfsfólks leik-
skóla og barna með því s.s. að fjölga starfsfólki á elstu
deildum, stækka rými, fjölga undirbúningstímum,
setja aukið fjármagn í faglegt starf og liðsheildarvinnu,
fjölga námsleyfum, auka stuðning við stjórnendur í
ráðningarmálum o.s.frv. Alls hefur verið varið rúmlega
4 milljörðum króna í þessar aðgerðir sem hafa gert leik-
skólana í borginni að eftirsóknarverðari vinnustöðum.
Starfsánægja hefur aukist í kjölfarið og ánægja foreldra
með leikskólana í borginni mælist yfir 90% sem er
niðurstaða á heimsmælikvarða. n
Átta nýir leikskólar
í Reykjavíkurborg
Skúli Helgason
borgarfulltrúi
Samfylkingar-
innar
Það hefur farið hrollur um fólk hér
á landi við að heyra lýsingar þeirra
sem voru vistaðir á vöggustofunni
Hlíðarenda sem síðar fékk nafnið
vöggustofa Thorvaldsensfélagsins og
var rekin á vegum Reykjavíkurborgar. Lýsingar
fólks á því hvaða áhrif dvölin á vöggustofunni
hefur haft á líf þess og upplýsingar um það
hvernig börnin voru vanrækt hvað andlegan
þroska og tilfinningalíf varðar hefur komið
fólki í uppnám. Hvernig gat þetta gerst á
Íslandi, og hvernig gat þetta staðið fram á átt-
unda áratug þessarar aldar?
Þegar járntjaldið féll og það opnaðist inn í lönd
Austur-Evrópu fengum við að sjá inn á munað-
arleysingjahæli í Rúmeníu. Sjónvarpsmaðurinn
Árni Snævarr fór þangað og umfjöllun hans um
þessa hroðalegu staði og meðferðina á vannærð-
um börnunum er ógleymanleg öllum sem hana
sáu. Ekki er hægt að segja að ástandið hér hafi
verið eins og í Rúmeníu. Hér fengu börnin góðan
og hollan mat, allt var þrifalegt og fínt og leit vel
út á yfirborðinu. En þó var ákveðin samsvörun
þarna á milli. Börnin voru látin afskiptalaus og
þeim ekki sinnt tilfinningalega á vöggustofunni
á Íslandi, eins og í Rúmeníu.
Reynt var að benda á að þarna væri ekki
allt með felldu árið 1964 þegar fóstrunemar
létu vita eftir að hafa dvalið á vöggustofunni
sem lærlingar í nokkra daga. Doktor Sigurjón
Björnsson sálfræðingur tók málið upp í borgar-
stjórn árið 1967, en enginn hlustaði. Forstöðu-
konur sem komu að heimilinu síðustu árin sem
það var rekið reyndu af veikum mætti að bæta
umhverfi barnanna með því að mála í björtum
litum og kaupa leikföng, en mættu að eigin sögn
andstöðu, því það var trú manna að best væri
að gera börnin ekki tilfinningalega háð hvorki
starfsmönnum né aðstandendum, sem ekki
fengu að koma í heimsókn. Slíkt þýddi bara grát
og tilfinningalegt uppnám lengi á eftir.
Starfsfólk stoppaði stutt við á vöggustofunni
enda gríðarlegt álag fyrir flesta að starfa
undir þessum kringumstæðum. Áreiðanlegar
heimildir eru um að starfsmenn, aðallega
konur, hafi stundum „stolist“ til að fara með
börnin heim um helgar og jafnvel í heimsókn
til vina og kunningja svo þau fengju einhverja
tilbreytingu. Fleira hefur komið í ljós varðandi
vöggustofuna. Gögn henni tengd fundust
nýverið í þeim húsakynnum sem hún var rekin
í, mörgum áratugum eftir að starfsemi hennar
var hætt. Gögnunum var komið til borgar-
skjalasafns. Spurningin er hvort fleiri gögn sé
enn að finna í rykföllnum geymslum, eða með
öðrum orðum á glámbekk við Sunnutorg. n
Vöggustofumál
Elín
Hirst
elinhirst
@frettabladid.is
Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgara-
rétt vorið 2022. Næstu íslenskupróf fyrir umsækjendur um
íslenskan ríkisborgararétt verða haldin sem hér segir:
• Akureyri: Mánudaginn 23. maí kl. 13:00 hjá Símey
• Egilsstaðir: Miðvikudaginn 25. maí kl. 13:00 hjá Austurbrú
• Ísafjörður: Föstudaginn 27. maí kl. 13:00 hjá Fræðslumiðstöðinni
Í Reykjavík verða prófin haldin eftirfarandi daga hjá Mími:
• Mánudaginn 30. maí kl. 09:00 og 13:00
• Þriðjudaginn 31. maí kl. 09:00 og 13:00
• Fimmtudaginn 2. júní kl. 09:00 og 13:00
• Föstudaginn 3. júní kl. 09:00 og 13:00
Skráning er hafin á www.mimir.is.
Síðasti skráningardagur er 10. maí 2022.
Ekki er hægt að skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.
Prófgjaldið er 35.000 kr.
Íslenskupróf fyrir umsækjendur
um íslenskan ríkisborgararétt
vorið 2022
ser@frettabladid.is
Samsærin
Á meðan hver óveðurslægðin
eftir aðra gengur yfir landið,
eyjarskeggjum til ómældrar van-
sælu, gengur líka á með éljum í
pólitíkinni. Sumir eiga sér engan
fegurri draum en að komast að í
sveitarstjórnum á næstu fjórum
árum og deila þar fjármagni
upp úr tómum bæjarsjóðum. Og
þar gengur auðvitað á með alls
konar samsæriskenningum, svo
sem eins og í höfuðborginni þar
sem oddvitaslagur Viðreisnar
gengur út á það hvor kandí-
datinn ætli að svíkja núverandi
meirihluta og hjá íhaldinu eru
brigslyrðin ekki minni, en þar
er spurt hvort oddvitaefnið sé
líklegra til að halda harðlínunni,
ellegar bara sænga með Samfó.
Herdeildir
Og sitjandi fulltrúar, sem margir
hverjir óttast um sína stóla, eru
eðlilega komnir í sínar skot-
grafir þaðan sem skæðadrífu af
frábærlega heppnuðum keilum
er látið rigna yfir fjölmiðla í von
um að þeir gefi þessum pólitík-
usum gaum. Þetta er náttúrlega
alvanalegt – og ekki fundið upp í
gær að alþýðan þurfi að vita allt
um ágæti stjórnmálamanna á
síðasta kortérinu fyrir kosn-
ingar. Fyrir vikið hafa nú heilar
herdeildir upplýsingafulltrúa
vígbúist og eru í þann mund að
umkringja hvern fjölmiðilinn af
öðrum, gráar fyrir járnum. n
Skoðun FRéttablaðið 4. mars 2022 FÖSTuDAGuR