Fréttablaðið - 04.03.2022, Blaðsíða 18
Tinnu
Hrafns-
dóttur ferst
leikstjóra-
hlutverkið
vel úr
hendi og
sömuleiðis
bregður
hún sér í
hlutverk
Jóhönnu,
systur
Sögu, og
gerir það af
stakri
prýði.
Kvikmyndin Skjálfti er
byggð á metsölubók Auðar
Jónsdóttur, Stóra Skjálfta,
sem var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna
2015 og hlaut verðlaun
íslenskra bóksala sama ár.
Þegar Saga vaknar upp eftir
heiftarlegt flogakast á Klambra
túni man hún lítið sem ekkert
hvað gerðist í aðdraganda þess.
Í leit hennar að upplýsingum
um sjálfa sig og sína nánustu
koma minningar sem Saga bældi
niður sem barn upp á yfirborðið.
Þessar minningar neyða hana til
að horfast í augu við sjálfa sig og
fjölskyldu sína sem tekist hafði að
þegja ógnvænlegt leyndarmál í hel.
Byggð á bók Auðar
Kvikmyndin Skjálfti er byggð á
metsölubókinni Stóra Skjálfta
eftir Auði Jónsdóttur. Bókin var
tilnefnd til Íslensku bókmennta
verðlaunanna, hlaut Íslensku bók
salaverðlaunin og var einnig ein
söluhæsta bók ársins 2015 og hlaut
mikið lof lesenda.
Skjálfti er fyrsta leikna mynd
Tinnu Hrafnsdóttur í fullri lengd.
Myndin hefur þegar verið sýnd á
kvikmyndahátíðum víða um lönd
og fengið frábærar móttökur og
virðist því óhætt að segja að þessi
frumraun Tinnu sé mesta lista
smíð.
Áhorfandinn fær að fylgjast með
Sögu og leit hennar að sannleik
anum. Hann stendur í raun og veru
í sömu sporum og Saga og smám
saman flettist ofan af sannleik
anum.
Tinnu Hrafnsdóttur ferst leik
stjórahlutverkið vel úr hendi og
sömuleiðis bregður hún sér í hlut
verk Jóhönnu, systur Sögu, og gerir
það af stakri prýði.
Eflaust hefur ekki verið auðvelt
að færa verðlaunaða metsölubók
Auðar Jónsdóttur, Stóra Skjálfta,
á hvíta tjaldið. Í bókinni fer sagan
að verulegu leyti fram í kollinum
á Sögu en slík nálgun myndi duga
skammt í kvikmynd.
Áhorfandinn finnur áþreifan
lega fyrir angist Sögu þegar hún
leitar minninga sinna, reynir að
skilja sambönd sín við annað fólk
og hvernig á því stendur að sam
band sem hún í sínu minnisleysi
kannast ekki við að hafi verið neitt
nema gott og dásamlegt skuli hafa
endað illa og leiðir skilið.
Myndin gerist í Reykjavík og
umgjörðin er kuldaleg, vetur og
snjór, ekki ólík því sem mörland
inn hefur fengið að kynnast vel
undanfarinn mánuð. Umgjörðin
passar einstaklega vel við söguna
og auðveldar áhorfandanum að
setja sig í spor Sögu og skilja.
Einróma lof gagnrýnenda
Skjálfti hefur fengið einróma hrós
þar sem hún hefur verið sýnd á
erlendum kvikmyndahátíðum og
hafa gagnrýnendur sérstaklega
tekið til þess hve leikstjóranum
tekst vel að drífa framvinduna með
því að fletta smám saman af hverju
laginu á fætur öðru þannig að
sannleikurinn verður sjáanlegur.
Þrátt fyrir að sannarlega sé
um dramatíska mynd að ræða
er áhorfandinn spenntur og vill
komast til botns í leyndardóm
unum með Sögu.
Engum ætti að leiðast á Skjálfta
og víst er að lesendur bókarinnar
munu njóta þess að sjá söguna
færða á svo glæsilegan hátt á hvíta
tjaldið.
Einvalalið leikara er í myndinni
og leikstjóranum tekst vel að spila
með styrkleika þeirra en ekki
síður að draga fram nýjar hliðar
á leikurum sem við þekkjum vel.
Með hlutverk fara: Aníta Briem,
Edda Björgvinsdóttir, Jóhann
Sigurðarson, Tinna Hrafnsdóttir,
Kristín Þóra Haraldsdóttir, Sveinn
Geirsson, Bergur Ebbi Benedikts
son og Benjamín Árni Daðason.
Kvikmyndin er framleidd af
Ursus Parvus, Hlín Jóhannesdóttur
og Tinnu Hrafnsdóttur. n
Smárabíó, Háskólabíó, Laugarás-
bíó og Borgarbíó Akureyri
Glæsileg frumraun Tinnu heldur áhorfandanum
Skjálfti gerist
í Reykjavík og
það lengsta sem
farið er út fyrir
borgarmörkin er
upp í Hvalfjörð
þar sem Botns-
skáli má muna
sinn fífil fegurri.
Aníta Briem sýnir góð tilþrif í hlutverki söguhetjunnar, Sögu.
Jóhann
Sigurðar son,
einn okkar
fremsti leikari,
bregst ekki.
Edda Björgvinsdóttir, ein okkar ástsælasta leikkona, hefur sýnt og sannað
að henni er fleira til lista lagt en að láta þjóðina taka bakföll af hlátri.
Fróðleikur
n Bók Auðar Jónsdóttur, Stóri skjálfti, sem myndin Skjálfti er byggð á,
var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
n Stóri skjálfti er skáldsaga en höfundurinn sækir gjarnan efni í þann
heim sem hún þekkir. Auður Jónsdóttir er flogaveik eins og sögu-
hetjan Saga.
n Hallgrímskirkjuturn er ákveðinn kjarni og miðja í myndinni og er
meðal annars notaður á auglýsingaplakat hennar.
Frumsýnd 31. mars
Aðalhlutverk:
Aníta Briem, Edda Björgvins-
dóttir, Jóhann Sigurðarson,
Tinna Hrafnsdóttir, Kristín
Þóra Haraldsdóttir, Sveinn
Geirsson, Bergur Ebbi Bene-
diktsson og Benjamín Árni
Daðason
Handritshöfundur:
Tinna Hrafnsdóttir – byggt á
bók Auðar Jónsdóttur, Stóra
skjálfta
Leikstjóri:
Tinna Hrafnsdóttir
4 kynningarblað 4. mars 2022 FÖSTUDAGURKviKmyndir mánaðarins