Fréttablaðið - 04.03.2022, Blaðsíða 12
Ef það er þangað sem við
stefnum sem mannfólk,
að við munum tengjast
internetinu með taugavið-
móti, þá geta dýrin það
líka.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Merkisatburðir
1861 Abraham Lincoln verður sextándi forseti Banda-
ríkjanna.
1877 Emile Berliner finnur upp hljóðnemann.
1936 Zeppelin loftfarið Hindenburg flýgur sitt fyrsta
reynsluflug.
1955 Armed Forces Radio and Television Service Keflavik
fær heimild íslenskra stjórnvalda til sjónvarpsút-
sendinga.
1964 Hljómar frá Keflavík slá í gegn á fyrstu bítlatónleik-
unum á Íslandi. Tónleikarnir eru haldnir í Háskóla-
bíói. Fjórar aðrar hljómsveitir koma þar fram.
1968 Fyrsta leikritið sem sett er upp sérstaklega fyrir
sjónvarp á Íslandi er sent út. Það er verkið Romm
handa Rósalind eftir Jökul Jakobsson.
1971 Íslendingar kaupa uppstoppaðan geirfugl á upp-
boði í London. Áður var safnað fyrir fuglinum um
allt land.
1983 Menningarmiðstöðin Gerðuberg er opnuð í Breið-
holtshverfi í Reykjavík.
2000 PlayStation 2 kemur fyrst á markað í Japan.
2005 Háskólinn í Reykjavík
og Tækniháskóli
Íslands sameinast
undir merkjum
þess fyrrnefnda.
Í framtíðarkenndri sýn mynd-
listarmannsins Kolbeins Huga
eru dýrin tengd internetinu í
gegnum taugaviðmót.
arnartomas@frettabladid.is
Internetheimur dýranna er heiti fjöl-
skyldusmiðju sem fer fram í Norræna
húsinu á laugardag þar sem skoðað
verður hvernig heimurinn væri ef dýrin
réðu öllu og fengju að nota internetið.
Smiðjan er í umsjá myndlistarmannsins
Kolbeins Huga og byggir á verki hans á
yfirstandandi sýningunni Jafnvel ormar
snúast.
„Ég veit ekki hvort tíminn er kominn
ennþá, en að mínu mati höfum við og
munum á næstu 10-15 árum fá tæknilega
getu til þess að dýr geti tengst internet-
inu,“ segir Kolbeinn Hugi sem býst við
að dýrin myndu nota internetið í sam-
bærilegum tilgangi og mannfólkið. „Við
erum dýr og sækjum í skemmtiefni, póli-
tík og tökum ákvarðanir á internetinu.
Ef dýrin hefðu aðild að internetinu gætu
þau verið þátttakendur í ákvarðanatöku
um umhverfið sitt.“
Hugmyndina að verkinu fékk Kol-
beinn Hugi þegar hann vann að þátt-
unum Cryptopia sem fjölluðu um
rafmyntanámur á Íslandi og umhverfis-
áhrif tengd þeim.
„Það er undarlegt að hugsa til þess að
fólk mæti í Bláa lónið og baði sig upp
úr úrgangi orkuvers sem er að miklum
hluta til notað til þess að knýja raf-
mynta námur,“ útskýrir hann. „Ég skrif-
aði smá vísindaskáldskap upp úr þessu
sem var þó byggður á íslenskum raun-
veruleika. Það var lítið fræ sem spratt
upp úr því sem hét Animal Internet. Sú
hugmynd hefur haldið áfram að vaxa
og er í kjarnann að dýrin tengist inter-
netinu í gegnum taugaviðmót.“
Spendýrin yrðu fyrst
En hvernig myndu dýrin tengjast inter-
netinu?
„Dýr eru þegar farin að nota taugavið-
mót í gegnum tækni en dýr eru notuð í
tilraunum fyrir stóran hluta þeirrar
tækni sem endar í höndum mannfólks,“
segir Kolbeinn Hugi. „Ef það er þangað
sem við stefnum sem mannfólk, að við
munum tengjast internetinu með tauga-
viðmóti, þá geta dýrin það líka.“
Í framtíðarkenndri sýn Kolbeins Huga,
sem teygir sig mörg hundruð ár fram í
framtíðina, er mikill fjöldi dýrategunda
tengdur internetinu. Hann segi að ef við
ímyndum okkur aðeins jarðtengdari sýn
til styttri tíma yrðu spendýrin líklega
fyrstu dýranotendur internetsins.
„Tæknin í kringum taugaviðmót er
miðuð að mannfólki sem eru spendýr
og þau yrðu líklega fyrstu notendurnir
á dýra-internetinu. Mér finnst líklegt að
fyrsti hópurinn yrðu gæludýr þar sem
fólk gæti tengt sig gæludýrum sínum til
að fylgjast með þeim og síðan til að skilja
þau betur.
Á undanförnum árum hefur umræðan
um skuggahliðar internetsins á sam-
félagið farið vaxandi. Er þá rétt af okkur
að draga dýrin inn í þennan heim?
„Ég lít ekki á að það sé siðferðislega
rétt af okkur að draga þau inn á inter-
netið en á meðan við höldum þeim vís-
vitandi utan þess þá erum við að taka
ákvörðunarréttinn af þeim,“ segir Kol-
beinn Hugi. „Dýr eru einstaklingar og
enginn einstaklingur ætti að þurfa að
vera á internetinu frekar en hann vill.“ n
Fánan tengist alnetinu
Ástkær móðir okkar,
Ingveldur Guðmundsdóttir
hárgreiðslumeistari,
frá Sæbóli í Aðalvík,
lést á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum þann 28. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju fimmtudaginn 10. mars kl. 13. Athöfninni verður
streymt á streyma.is.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Átthagafélags Sléttuhrepps.
Hafsteinn Hafsteinsson
Guðmundur Lúther Hafsteinsson
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
Margrét Rögn Hafsteinsdóttir
Hjartkær eiginmaður minn og besti
vinur, faðir, tengdafaðir og afi,
Ragnar Ragnarsson
verkfræðingur,
Sundlaugavegi 33, Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann
25. febrúar sl. Útför hans fer fram frá
Langholtskirkju þriðjudaginn 8. mars nk. kl. 13.
Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir
Ástvaldur Traustason Gyða Dröfn Tryggvadóttir
Ásgeir Árni Ragnarsson Vala Garðarsdóttir
Kolbrún Rut Ragnarsdóttir Alexandre Ruiz Pallach
Kristín Björg Ragnarsdóttir Vigfús Karlsson
og barnabörn.
Kolbeinn Hugi telur að dýrin myndu nota internetið í svipuðum tilgangi og mannfólkið. Mynd/AðSend
Hugmyndin að verkinu spratt upp þegar Kolbeinn Hugi vann að þáttum sem fjölluðu
meðal annars um rafmyntanámur á Íslandi og áhrif þeirra á umhverfið. Mynd/AðSend
Playstation
TímamóT FréTTablaðið 4. mars 2022 FÖSTUDaGUR