Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2022, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.03.2022, Qupperneq 2
Kátt í Hörpu Fyrirtækið Ísstormur ehf. hefur safnað vörum í gám fyrir stríðshrjáð fólk í Úkraínu og hvetur aðra til að vera með. benediktarnar@frettabladid.is samfélag Fiskvinnslufyrirtækið Ísstormur ehf. hefur hafið neyðar- söfnun fyrir fólkið í Úkraínu með því að senda gám fullan af hinum ýmsu vörum til landsins, þar á meðal matvæli og aðrar nauðsynja- vörur. Fyrirtækið setti söfnunina af stað vegna innrásar Rússlands í Úkraínu sem hófst þann 23. febrúar síðastliðinn. „Við erum að vinna mikið með Úkraínumarkað og erum með sölu- skrifstofu þar, því tengjumst við því sem er að gerast þarna úti. Þess vegna ákváðum við að safna í gám og hvetjum alla sem geta hjálpað til að vera með,“ segir Dovydas Raila, sem er meðeigandi hjá Ísstormi ehf. Stanislav Tkachuk hefur verið að aðstoða Dovydas með söfnun- ina en hann kom til landsins frá Úkraínu í síðustu viku. Hann segist hafa ákveðið að koma til landsins þar sem hann taldi það öruggara en að vera staddur á stríðssvæði. „Allir Úkraínumenn vilja hjálpa landinu og fólkinu okkar og gera það sem þeir geta til að aðstoða.“ Fyrsti gámurinn fer til Úkraínu í næstu viku og verður hann fullur af vörum frá Ísstormi og öðrum tengdum fyrirtækjum. „Við erum í niðursuðu og sjóðum niður þorsk- lifur.“ Að sögn Dovydas eru mörg fyrirtæki áhugasöm um að veita aðstoð. „Við erum búin að hringja í alla samkeppnisaðila og allir voru tilbúnir að hjálpa, sem við erum mjög ánægð með.“ Dovydas segir að vörurnar eigi að hjálpa bæði fólkinu í landinu og hernum. „Stjórnvöld taka við send- ingunni og þau deila henni áfram til þeirra sem þurfa á henni að halda.“ Fjöldinn allur af vörum er kom- inn í gáminn, þar á meðal hin ýmsu matvæli en Dovydas hefur haft samband við fjölda fyrirtækja hér á landi, þar á meðal Ölgerðina og Innnes og segist taka við hverjum þeim vörum sem geti hjálpað fólkinu á stríðssvæðinu. „Fólk í nágrannalöndum Úkraínu hefur verið að senda föt og slíkt, það er ekki verra.“ Þeir sem vilja leggja söfnuninni lið geta haft samband við office@ isstormur.is. n Safna nauðsynjavörum í gáma fyrir fólk í Úkraínu Þeir félagar eru sammála um að allir Úkraínumenn vilji hjálpa landinu og fólkinu. Þeir gleðjast yfir samkennd Íslendinga. Mynd/Aðsend Við erum búin að hringja í alla sam- keppisaðila og allir voru tilbúnir að hjálpa, sem við erum mjög ánægð með. Dovydas Raila, hjá Ísstormi ehf. Áslaug Hulda 1. sæti Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ 5. mars aslaughulda.is ser@frettabladid.is mENNINg Frumeintak af bók Guð- mundar Thorsteinsson, Muggs, um Dimmalimm er innlyksa í Moskvu, en bókin, sem er í einkaeign, var hluti af listsýningu sem hjónin Ingi- björg Sigurjónsdóttir og Ragnar Kjartansson settu upp í nýju safni, Ges2, í miðborg Moskvu í desember á síðasta ári. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins óskuðu hjónin eftir því að sýningunni yrði lokað um síðustu helgi vegna innrásar Rússa í Úkraínu og urðu stjórnendur Ges2 við þeirri ósk. Sýningin átti að standa fram í miðjan mars. Nú er þess freistað að fá sýningarmunina heim til Íslands, þar á meðal verðmætt frumeintakið af Dimmalimm, en allsendis óvíst er hvenær af því getur orðið. Sagan af Dimmalimm er ein ást- sælasta og vinsælasta barnabók Íslendinga til margra ára, ekki hvað síst fyrir hrífandi myndskreytingar Muggs, sem fæddist 1891 en lést rétt liðlega þrítugur. Haft hefur verið á orði að allt sem Muggur snerti hafi breyst í listaverk. n Dimmalimm innlyksa í Moskvu Dimmalimm, teikning eftir Mugg. jonthor@frettabladid.is samfélag Velunnari UNICEF á Íslandi hefur tilkynnt samtökunum að hann muni jafna öll fjárframlög sem berast í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi til Úkraínu upp að 15 millj- ónum króna. Umræddur velunnari vill þó ekki koma fram undir nafni. Framlög í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fara til að veita mannúð- araðstoð í Úkraínu og nágranna- löndunum, en þar er UNICEF að setja upp svæði fyrir börn og fjöl- skyldur á flótta. „Það er gríðarlega verðmætt fyrir fjáröflun okkar fyrir börn í Úkra- ínu að vita að hvert framlag sem nú berst telur í raun tvöfalt, þökk sé þessari ótrúlegu gjöf,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „Orð ná vart yfir það hversu þakklát við erum velgjörðarmanni okkar. Við vonum að þetta göfug- lyndi reynist öllum landsmönnum og fyrirtækjum hér á landi hvatning til að styðja við börn og fjölskyldur í Úkraínu,“ segir Birna. n Jafnar framlög upp að fimmtán milljónum Birna Þórarinsdóttir, framkvæmda- stjóri UNICEF á Íslandi Barnaþing fer nú fram í Hörpu en verndari þingsins er Vigdís Finnbogadóttir. Einstaklingar sem eru jákvæðar fyrirmyndir rifjuðu upp æskuminningar og ræddu leiðir til að hafa áhrif á samfélagið. Í dag fara fram umræður með þjóðfundarfyrirkomulagi sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, setur. Um 120 börn á aldrinum 11-15 ára munu hefja umræðuna en eftir hádegi mæta boðsgestir til að taka þátt um þau umfjöllunarefni sem börnin hafa valið. FréttAblAðið/eyþór 2 Fréttir 4. mars 2022 FÖSTUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.