Fréttablaðið - 04.03.2022, Page 6

Fréttablaðið - 04.03.2022, Page 6
Það er ekkert í lögum sem segir að ríki eða kirkja skuli reka bál- stofu. Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, stofnandi Trés lífsins Andres Escobar, sem lék með Leiknismönnum í efstu deild karla síðasta sumar, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot. Hann hefur áfrýjað dómnum en sætir nú farbanni. hoddi@frettabladid.is fótbolti Knattspyrnumaðurinn Andrés „Manga“ Escobar, sem lék með Leikni Reykjavík síðasta sumar, hefur verið dæmdur fyrir kynferðis- brot í Héraðsdómi Reykjavíkur. Kól- umbíumaðurinn áfrýjaði dómnum en er í farbanni á meðan málið velkist um í dómskerfinu. Escobar var dæmdur fyrir að hafa þann 19. september brotið kynferðislega á konu á heimili sínu. Þennan sama dag hafði Escobar tekið þátt í leik Leiknis og Kefla- víkur og spilaði þar allan leikinn. Escobar er þrítugur knattspyrnu- maður sem leikið hafði í Úkraínu, Argentínu, Brasilíu og fleiri löndum áður en hann kom til Íslands. Hann hafnar því að hafa brotið kynferðis- lega á konunni en segist hafa átt samræði við hana. „Héraðssaksóknari höfðaði þann 22. desember sl. sakamál á hendur dómfellda fyrir nauðgun með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 19. september 2021, á heimili sínu í Reykjavík, haft samræði og önnur kynferðismök við A, án hennar samþykkis, með því að sleikja kyn- færi hennar og hafa við hana sam- ræði, þar sem hún lá illa áttuð í sófa ákærða, og notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar,“ segir í dómi Lands- réttar þar sem Escobar er úrskurð- aður í farbann til 1. september á þessu ári. Escobar og lögmaður hans hafa áfrýjað dómi héraðsdóms en málið verður tekið fyrir í Landsrétti á næstu vikum. Þremur dögum eftir að héraðs- saksóknari höfðaði málið gegn Escobar lék hann sinn síðasta leik fyrir Leikni, um var að ræða leik gegn Víkingi í síðustu umferð efstu deildar karla árið 2021. Samningur Escobar við Leikni rann út á mið- nætti þann 16. október á síðasta ári en í dómnum segir: „Dómfelldi er erlendur ríkis- borgari og var við störf hér á landi þar til samningur hans við atvinnu- rekanda rann út þann 17. október sl. Hann hefur engin önnur sérstök tengsl við landið og hefur greint frá því að hann hafi í hyggju að fara af landi brott. Til að tryggja nærveru hans á meðan mál hans er til með- ferðar fyrir dómstólum hér á landi, og eftir atvikum þar til afplánun hans hefst, þykir nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt. Er það mat héraðssaksóknara að ætla megi að dómfelldi muni reyna að komast úr landi ellegar reyna að koma sér með öðrum hætti undan yfirvöldum sé hann frjáls ferða sinna. Því telur ákæruvaldið laga- skilyrði uppfyllt til að hann sæti farbanni þar til endanlegur dómur gengur í máli hans.“ Escobar er dæmdur í tveggja og hálfs ár fangelsi fyrir kynferðis- brotið en hann hefur neitað sök og hefur áfrýjað dómi héraðsdóms til Landsréttar. n Escobar í farbanni á Íslandi Escobar lék 18 leiki fyrir Leikni og skoraði tvö mörk. Samningur hans rann út áður en dómur féll mynd/leiknir birnadrofn@frettabladid.is SAMfÉlAG Bæði K irkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) og Tré lífsins vilja opna nýja bál- stofu á Íslandi. Einungis er rekin hér á landi ein bálstofa sem hefur verið í rekstri frá árinu 1948 eða í 74 ár. Hún er í Fossvogi. Í nýrri skýrslu Kirkjugarðaráðs sem gerð var að beiðni dóms- málaráðuneytisins kemur fram að kostnaður við hönnun, byggingu og rekstur nýrrar bálstofu á Hallsholti við Gufuneskirkjugarð í Reykjavík sé áætlaður 1.244 milljónir króna. Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, stofnandi Trés lífsins, segir að þrátt fyrir útgáfu skýrslunnar hafi enn ekki verið ákveðið hvort KPRG eða Tré lífsins muni opna bálstofu hér á landi. Óháður sérfræðingur á vegum dómsmálaráðuneytisins sé að meta stöðuna og muni skila úttekt til ráðherra í apríl. Ráðherra muni í kjölfarið taka ákvörðun. Sigríður Bylgja segir eina ástæðu þess að þörf sé á nýrri bálstofu þá að sú sem nú sé í notkun sé rekin af einu trúfélagi. Tré lífsins sé sjálfs- eignarstofnun sem ekki er rekin í hagnaðarskyni og er óháð öllum trú- og lífsskoðunarfélögum. „Ef KGRP verður fyrir valinu þýðir það að kirkjugarðarnir, sem eru undir stjórn eins trúfélags, Þjóðkirkj- unnar, fá risa summu úr ríkissjóði til að byggja og svo reka bálstofuna, til viðbótar við kirkjugarðsgjaldið sem þeir fá árlega, 1,3 milljarða,“ segir hún. „Það er ekkert í lögum sem segir að ríki eða kirkja skuli reka bálstofu og því væri skynsamlegast fyrir fjöl- breytt samfélag að bálfarir fari fram hjá óháðri stofnun sem er ekki tengd neinum trúarbrögðum, en opin öllum,“ bætir Sigríður við. n Tveir vilja opna nýja bálstofu hér á landi Escobar er dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðis- brotið en hann hefur neitað sök. bjork@frettabladid.is SAMfÉlAG „Við vorum síðasta haust að fara í skóla eftir skóla þar sem var sjálfskaði, sjálfsvíg og morðhótanir barna á milli,“ segir Daníel Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78, í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins: „Það er óþolandi algengt að börn sem hingað koma í ráðgjöf segi að þeim hafi verið hótað. Það er ógeðfellt.“ „Hvenær verður það tekið alvar- lega að börn séu að fá morðhótanir í skólanum? Eða hvatningu um að drepa sig? Hvenær tökum við sem samfélag slíku nægilega alvarlega?“ spyr Þorbjörg Þorvaldsdóttir, for- maður samtakanna, og segir þau meðvituð um afturför í baráttu hin- segin fólks víða um heim og sjá merki um þá þróun hér. „Við sjáum hana til dæmis í aðstæðum grunnskólabarna sem mörg hver verða fyrir aðkasti vegna hinseginleika. Við heyrum mjög ljótar sögur úr skólunum og höfum þurft að koma þangað inn í hálfgerða rústabjörgun.“ Helgarblað Fréttablaðsins kemur út á morgun. n Hinsegin börnum hótaðKRISTÍN THORODDSEN 2. SÆTI PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Í HAFNARFIRÐI 3.-5. MARS 2022 Fyrir Hafnarfjörð FACEBOOK.COM/KRISTINMARIATHORODDSEN Þorbjörg Þor- valdsdóttir, formaður sam- takanna ‘78 og Daníel Arnars- son, fram- kvæmdastjóri. Fréttablaðið/ Valli jonthor@frettabladid.is ReykjAvík Borgarráð samþykkti í gær áætlun um uppbyggingu í leikskólamálum. Samkvæmt nýju áætluninni verða sjö nýir leikskólar opnaðir í Reykjavík á þessu ári. Þá mun leikskólaplássum fjölga um 1.680 á næstu þremur árum. Áætlað er að þessi nýja áætlun muni kosta 12 og hálfan milljarð, frá og með þessu ári til 2025, en það á bæði við um fjárfestingar- og rekstrarkostnað. Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir í samtali við Fréttablaðið að þessi ákvörðun sé tekin vegna mikillar „barna- sprengju“ í borginni. Þá er gert ráð fyrir því að einhver tólf mánaða gömul börn muni geta komist á leik- skóla í haust. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for- maður borgarráðs og borgarfulltrúi Viðreisnar, leggur áherslu á að verið sé að „hugsa leikskólana í nýjum lausnum.“ n Sjö nýir leikskólar í Reykjavík á þessu ári Leikskólabörn renna sér á rassa- þotum. Fréttablaðið/GVa 6 Fréttir 4. mars 2022 FÖSTUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.