Fréttablaðið - 04.03.2022, Side 11

Fréttablaðið - 04.03.2022, Side 11
Stríðið í Úkraínu snýst ekki um landrými, auðlindir, tungumál eða árekstra þjóðarbrota, hvað sem líður réttlætingum. Það snýst um sjálft þjóðskipulagið, valdakerfið. Pútín og klíkan kringum hann getur ekki liðið það að í túnfæt- inum nái að blómstra þjóðskipulag sem gæti orðið Rússum fyrirmynd um að eitthvað annað sé mögulegt en sá kapítal-kommúnismi sem ríkir í landinu. Alræði auðmannanna Okkur er kennt að kapítalismi og kommúnismi séu ítrustu hugsan- legu andstæður samfélagsgerðar sem annars vegar byggist á sam- eign og félagshyggju og hins vegar séreign og einstaklingshyggju. Samt hafa gömlu kommúnistaríkin sem ekki gengu í gegnum lýðrétt- indabyltingu þróast á þann veg að verstu einkenni beggja samfélags- gerða ráða för: fáræði kommúnism- ans og misskipting kapítalismans. Í stuttu máli var kenning Leníns sú að alþýðan gerði byltingu, tæki yfir stjórn framleiðslutækjanna og samfélagsins, losaði sig við kapít- alista, setti á fót Alræði öreiganna, sem þróaðist í lýðræðisátt svo að úr yrði sósíalismi sem þróaðist yfir í kommúnisma – lokastigið – hið fullkomna þjóðfélag þar sem við framleiðum eftir getu og tökum eftir þörfum. En til að koma öllu þessu samlæti í kring þyrfti harðsnúna úrvals- sveit, rauða framvörðinn, komm- únistaflokkinn sem stjórnað væri af aga og festu og ríkti í umboði alþýðunnar, sem reyndar væri ekki fengið í lýðræðislegum kosningum heldur fremur samkvæmt sögulegri nauðsyn og díalektískum lögmál- um, eins og útskýrt var í afar löngu og alltyrfnu máli í marxískum fræðum. Í þessari fáræðishugmynd býr fræið að núverandi óligarkakerfi kapítal-kommúnismans. Úr alræði öreiganna varð til alræði auð- mannanna. Byltingin í Rússlandi 1917 var valdarán lítillar klíku menntamanna í nafni alþýðu og sú klíka hefur að breyttu breytanda haldið völdum þar síðan, með tilheyrandi forréttindum sem haldið er í með öllum ráðum, þar á meðal innrásum í nágrannaríki sem gerast líkleg til að feta braut lýðræðis og mannréttinda, og vilja innsigla það með aðild að Evrópu- sambandinu – og auðvitað Nató. Nató og nallinn Það var gaman að sjá þau í sjón- varpinu Katrínu Jakobsdóttur og Stoltenberg, jafnaðarmannaleið- toga í Noregi, meðal annars þegar Breivik vann sitt hryðjuverk en núverandi aðalritara Nató. Ekki fór á milli mála að hér hittust leið- togar systkinaþjóða. Ekki var að sjá eða heyra að forsætisráðherrann íslenski væri ýkja andvíg þessu bandalagi, þótt svo eigi að heita að flokkur hennar vilji að Íslendingar gangi úr því. Um það er víst ekki að fást – krafan um úrsögn úr Nató er á einhvern hátt í DNA Vg og senni- lega er jafn erfitt fyrir flokkinn að láta af henni og það væri honum að framfylgja henni. Í mínu ungdæmi leit maður á Nató sem bandalag kringum heimsvaldastefnu, arðrán og kúgun. Ríki þess stóðu í frá- leitum hernaði á hendur fátækum bændum í Víetnam. Manni fannst Kapítal-kommúnismi sem það magnaði kjarnorkuógnina yfir okkur, og stæði fyrir gleði- snauða og svarthvíta heimsmynd kalda stríðsins. Maður vildi ekki heri þess nærri sér og vildi ekki að íslenska þjóðin væri í félags- skap gömlu nýlenduveldanna sem notuðu hervald til þess að hræða alþýðu arðrændra landa frá því að rísa upp og taka í eigin hendur auð- lindir sínar. Nú er maður aðeins farinn að líta þetta öðrum augum, eins og gengur. Svo sannarlega er saga bandalagsins full af mistökum og röngum ákvörðunum, ekki síst í kjölfar árásarinnar á Tvíburaturn- ana í New York, þegar anað var út í heimskuleg stríð með þá reglu að leiðarljósi að árás á einn meðlim jafngilti árás á alla meðlimi – og var ráðist inn í Írak og Afganistan vegna hryðjuverks sem framið hafði verið undir forystu sádi- arabísks manns með sádi-arabíska uppsuðu af Íslam að leiðarljósi. Alls konar mistök: Samt skynjar maður að þetta er varnarbandalag lýðræðisþjóða, opinna fjölmenn- ingarsamfélaga þar sem virðing er borin fyrir mannréttindum. Nató reynist nú Eystrasaltslöndunum ómetanlegt skjól en að sama skapi mega nú Finnar og Svíar búa við ógnanir Rússa ef þeir dirfist að láta verða af því að ganga í bandalagið. Allt í einu hefur Pútín tekist að gefa Nató visst lögmæti eftir lang- varandi hrakföll og allt í einu hefur honum tekist að þjappa löndum Evrópu saman um nauðsyn þess að standa vörð um grundvallargildi mannréttinda og lýðræðis. Jafnvel innan Enhedslistans danska (yst á vinstri vængnum þar) ríkir nú óeining að sögn um þetta bandalag. Sumir þar virðast átta sig á því að í opnum og frjálsum fjölmenningarsamfélögum þeirra ríkja sem mynda Nató er alveg hægt að syngja Nallann fullum hálsi – og byggja réttlátt þjóðfélag. n n Í dag Guðmundur Andri Thorsson Sölusýning Tilboðsbæklingurinn okkar er kominn út. Hann er fullur af gæðatækjum á sérstöku tilboðsverði sem gildir í mars. Í tilefni þess bjóðum við afslátt af öllum vörum á morgun, laugardaginn 5. mars, sem eru ekki nú þegar á tilboði. Opið frá 11-16. Athugið að þessi kjör gilda aðeins um heimilistækjahlutann í vefversluninni. Skoðaðu nýja tilboðsbæklinginn okkar á sminor.is! Gildir til og með 31. mars 2022 eða á meðan birgðir endast. Traust tæki á tilboðsverðiHjá okkur færðu þýsk gæðatæki frá Siemens, Bosch og Gaggenau. Við bjóðum fjölda glæsilegra tækja á sérstöku tilboðsverði nú í mars. Afsláttarkóði í vefverslun: mars FÖSTUDAGUR 4. mars 2022 Skoðun 11Fréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.