Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2022, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 04.03.2022, Qupperneq 22
I’m Your Man er stórkostleg róman- tísk gamanmynd sem gæti svarað leyndar- málum einhleypra kvenna. Eða hvað? 8 kynningarblað 4. mars 2022 FÖSTUDAGURkvikmyndir mánaðarins Eiginkona Yusuke er Oto, hand- ritshöf- undur sem fær hug- myndir að sögum sínum við kynmök. Bella er viljasterk og sjálfs- örugg og í hrekkleysi sínu held- ur hún að hún geti breytt faginu til að þjóna hennar þörfum. Stundum vill það gleymast að vagga kvikmyndagerðar á öðrum og þriðja áratug síð- ustu aldar var ekki í Banda- ríkjunum heldur Þýskalandi. Þetta var áður en talmyndir komu til sögunnar og helstu stórmenni kvikmyndagerð- arlistarinnar var að finna í Berlín fremur en Hollywood. Bíó Paradís, í samstarfi við Goethe- Institut Dänemark og þýska sendiráðið á Íslandi, stendur fyrir Þýskum kvikmyndadögum í þret- tánda sinn dagana 11. til 20. mars 2022. Allar myndir á kvikmynda- dögunum verða sýndar með þýsku tali og enskum texta. Þessi kvikmyndaviðburður er jafngamall bíóinu sjálfu, Bíó Para- dís. Geysivinsæll enda ganga áhorf- endur að því vísu að vera boðið upp á gæðahlaðborð kvikmynda á þessum árstíma! Opnunarmyndin, I’m Your Man, er stórkostleg rómantísk gamanmynd sem gæti svarað vandamálum einhleypra kvenna. Eða hvað? Mannréttindi eru þema kvik- myndadaganna að þessu sinni og af þessu tilefni verður boðið upp á tvær kvikmyndir sem frítt verður inn á og allir velkomnir. Þetta eru kvikmyndirnar Dear Future Children, þar sem leikstjóri myndarinnar situr fyrir svörum (í gegnum vefinn) og The Ants & The Grasshoppers. Í myndinni Fabian finnur stefnulaus maður í Berlín ástina á umbrotatímum áður en Hitler tekur yfir. Með Tom Schilling (Oh boy, Who am I) og Saskia Rosendahl mannréttindi á Þýskum kvikmyndadögum (Lore, Never Look Away) í aðalhlut- verkum. Great Freedom fjallar um ótrú- lega sögu manns sem situr ítrekað í fangelsi fyrir það eitt að vera sam- kynhneigður. Gullfalleg kvikmynd sem fjallar um brot á mannrétt- indum sem snertir hjörtu! Þessi saga gerist í Þýskalandi eftir seinni heimsstyrjöldina, en fram undir 1970 gátu þýsk stjórnvöld beitt 175. grein hegningarlaga landsins til að sækja samkynhneigða til saka. Dæmi voru um samkynhneigða sem bandamenn frelsuðu úr útrýmingarbúðum nasista í lok stríðsins sem voru fluttir rakleiðis í fangelsi til að afplána dóm sinn að fullu. Söguhetjan er Hans sem lendir ítrekað í fangelsi vegna kynhneigð- ar sinnar. Innan veggja fangelsisins finnur hann ástina með Viktori, dæmdum morðingja. Á næstum aldarfjórðungi eftir síðari heimsstyrjöldina voru 100 þúsund manns sóttir til saka fyrir samkynhneigð í Vestur-Þýskalandi þar til hin illræmda 175. grein hegningarlaganna var felld úr gildi. Af nógu er að taka og á Þýskum kvikmyndadögum í Bíó Paradís er eitthvað fyrir alla. Drive My Car er fyrst og fremst byggð á samnefndri smásögu eftir Haruki Murakami. Sagan kom út í smásagnasafninu Men Without Women 2014. Einnig eru aðrar smásögur í safninu hafðar til hlið- sjónar. Eiginkona Yusuke er Oto, hand- ritshöfundur sem fær hugmyndir að sögum sínum er hún stundar kynmök með eiginmanni sínum og lýsir þeim fyrir honum. Hún kynnir Yusuke fyrir samstarfsmanni sínum, ungum leikara, Koji Takatsuki. Einn daginn kemur Yusuke snemma heim og kemur að konu sinni og unga leikaranum í ástaratlotum. Hann læðist út óséður og nefnir þetta aldrei við hana. Skömmu síðar deyr Oto af völdum heilablæðingar og stuttu síðar brotnar Yusuke saman á sýningu á Vanja frænda eftir Tékov og verður að hverfa af sviðinu. Tveimur árum síðar er Yousuke boðið að leikstýra Vanja frænda á leiklistarhátíð í Hiroshima. Hann velur Koji Takasutki í hlutverk Vanja þrátt fyrir ungan aldur, en ungi leikarinn hafði orðið fyrir álitshnekki vegna óviðeigandi framkomu. Yusuke fær einkabílstjóra, unga konu, og milli þeirra fer að myndast nánd. Hann ræðir einnig við Koji og segir honum að hann hafi vitað af sambandi þeirra en ekkert sagt vegna þess að hann var hræddur um að missa Oto. Sagan er mikil örlagasaga og áður en yfir lýkur neyðist Yusuke til að stíga á svið í stað Koji og vinnur mikinn leiksigur í hlutverki Vanja frænda. n Bíó Paradís Örlagasaga eftir murakami Frumsýnd 11. mars 2022 Aðalhlutverk: Hidetoshi Nishijima, Tôko Miura og Reika Kirishima Handritshöfundar: Ryûsuke Hamaguchi, Haruki Murakami og Takamasa Oe – byggð á samnefndri smásögu Haruki Murakami Leikstjóri: Ryûsuke Hamaguchi Í myndinni Nautnum (Pleasure) kemur Bella, 19 ára sænsk stúlka, til Bandaríkjanna þakin 25 húð- flúrum, með gataðar geirvörtur og þrá um að komast í kvikmyndir. Ekki hvaða kvikmyndir sem er heldur klámmyndir. Bella, sem notar nafnið Bella Cherry í kláminu, byrjar á botninum. Hún deilir húsi með sjúskuðum herbergisfélögum og kemst smám saman inn í heim fullorðinsmynda. Eftir því sem hún kynnist her- bergisfélögum sínum betur kemst hún að því að til að verða klám- stjarna þarf ung kona að leggja mikið á sig og framkvæma mjög ógeðfellda og jafnvel hættulega hluti. Þetta er stóra sviðið þar sem tvö- föld endaþarmsmök fyrir framan myndavél eru eitthvað svipað og þrefalt snúningsstökk hjá listdans- ara á skautum. Æfingin skapar meistarann. Smám saman færist Bella nær stjörnuhimninum í sínu fagi. Hún kemst að hjá frægum umboðs- manni, Mark Spiegler, sem í myndinni leikur sjálfan sig, en hann gengur undir viðurnefninu Shylock (okurlánarinn). Með því að verða ein af „stúlkum Spieglers“ er hún komin í hærri deild en gömlu herbergisfélagarnir. Við taka tryllt sundlaugarpartí, myndatökur í glæsivillum Los Angeles og námskeið í öllum helstu brögðum klámiðnaðarins. Bella er viljasterk og sjálfsörugg og í hrekkleysi sínu heldur hún að hún geti breytt faginu til að þjóna hennar þörfum. Að lokum stendur hún þó frammi fyrir því að þurfa að velja hvort hún er fús til að fórna sál sinni fyrir frægðina. Myndin er frumraun Ninja Thyberg, handritshöfundar og sálin fyrir frægðina Frumsýnd 31. mars 2022 Aðalhlutverk: Sofia Kappel, Revika Anne Reustle og Evelyn Claire Handritshöfundur: Ninja Thyberg Leikstjóri: Ninja Thyberg leikstjóra, en stuttmynd hennar með sama nafni hlaut Canal+ verð- launin í Cannes 2013. n Bíó Paradís Opnunarviðburðurinn er í boði þýska sendiráðsins á Íslandi. Þýskir kvikmyndadagar verða í Bíó Paradís 11. til 20. mars 2022.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.