Fréttablaðið - 04.03.2022, Síða 27

Fréttablaðið - 04.03.2022, Síða 27
Vellíðan og góð heilsa eru sönn lífsgæði. Laufey Steindórsdóttir, hjúkrunarfræðingur Laufey Steindórsdóttir hefur gengið í gegnum breytinga- skeiðið og segir löngu tíma- bært að samfélagið leggi blessun sína yfir upplýsta og opinskáa umræðu um skeiðið. Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti af lífsskeiði kvenna og eitthvað sem allar konur ganga í gegnum, hins vegar er afar einstaklings- bundið hvernig konur upplifa tilteknar breytingar. Sumar konur upplifa frelsi og fagna þessum tímamótum og því að vera komnar á þann stað í lífinu að búa yfir meiri sjálfsþekkingu, visku og þroska. Hins vegar eru sumar hverjar sem kvíða fyrir þessum breytingum og þeim líkamlegu og andlegu einkennum sem geta fylgt í kjölfarið. Breytingaskeið kvenna Flestar konur finna fyrir því þegar hormónabreytingar hefjast, þó svo að þær geri sér ekki alltaf grein fyrir því að um upphaf breytingaskeiðs sé að ræða. Á meðan sumar konur fara létt í gegnum þetta tímabil eru aðrar konur sem upplifa töluvert skert lífsgæði. Einkenni hormóna- breytinga geta verið afar mismun- andi á milli kvenna en algengustu einkenni sem konur upplifa eru hitakóf, nætursviti, þreyta, svefn- leysi, pirringur og depurð. „Ein- kenni breytingaskeiðsins eru eins mismunandi og við konur eru margar og því er mikilvægt að við tölum saman og leitum leiða sem gagnast hverri einstakri konu. Vellíðan og góð heilsa eru sönn lífs- gæði,“ segir Laufey Steindórsdóttir hjúkrunarfræðingur. Að vera kona er pínu flókið Laufey Steindórsdóttir hefur upp- lifað breytingaskeiðið með ýmsum kvillum og deilir hér með okkur sinni reynslu. „Í gegnum mitt lífsskeið hef ég áttað mig á því að hormón stýra mínu tilfinninga- lífi að miklu leyti en mun meira en ég kæri mig um. Þegar ég var 43 ára varð ég skyndilega stygg, stíf, varnarlaus og vonlaus en það var eitthvað sem að breyttist,“ segir Laufey sem síðar meir leitaði til kvensjúkdómalæknis með sín ein- kenni. „Ég fékk staðfest með blóð- prufu hjá mínum kvensjúkdóma- lækni að sjálft breytingaskeiðið væri hafið. Ég verð að viðurkenna að ég vissi nánast ekkert um þetta dularfulla skeið. Engin í mínu nærumhverfi hafði rætt um breyt- ingaskeiðið og ég sem starfandi hjúkrunarfræðingur hafði ekkert kynnt mér efnið. Þá hófst heim- ildaleit og sjálf leitin að lausnum til að bæta mína líðan en ég gat ekki hugsað mér að tapa lífsneistanum á besta aldri en þannig leið mér. Svefnlausar nætur með hitakófi og svitaköstum, sveiflur í skapi og pirringur var daglegt brauð og svo gerðist það sem ég ætlaði varla að trúa, ég fór að missa hárið. Fallega, þykka hárið mitt sem hafði verið mitt stolt bara hrundi af í óþægi- lega miklu magni sem mér þótti verulega sárt. Að vera kona er pínu flókið að mínu mati en jafnframt fannst mér tekinn frá mér hinn sanni lífsneisti sem var kynhvötin, hún hreinlega gufaði upp.“ Tölum saman og leitum leiða að bættri heilsu og líðan „Fyrir sumar konur getur verið nóg að fara náttúrulegar leiðir til að slá á einkenni og aðrar byrja á horm- ónum. Þegar mér leið sem verst var minn bjargvættur náttúru- bætiefnið Femarelle sem systir mín hvatti mig til að prófa. Eftir rúmlega tveggja vikna inntöku var ég farin að finna mun á svefngæðum því hitakófin nánast hættu. Ég tók Fem- arelle í heilt ár og er mjög ánægð með þann ávinning sem af þeim hlaust. Í dag er ég byrjuð á hormón- um en get svo sannarlega mælt með Femarelle sem náttúrulegri lausn við vægari einkennum breytinga- skeiðsins. Það er löngu tímabært að samfélagið leggi blessun sína yfir upplýsta og opinskáa umræðu um þetta margbreytilega skeið í lífi kvenna. Tölum saman og leitum Breytingaskeiðið gerði snemma vart við sig Laufey Steindórsdóttir hefur gengið í gegnum breytingaskeiðið og segir löngu tímabært að samfélagið leggi blessun sína yfir upplýsta og opinskáa umræðu um skeiðið. MYND/AÐSEND Femarelle eru hormónalausar vörur hannaðar fyrir konur á mismunandi stigum tíðahvarfa og fást í þremur gerðum. leiða að bættri heilsu og líðan,“ segir Laufey sem vill gera breytinga- skeiðið að eðlilegu umræðuefni og fá almenning til að gera sér grein fyrir því sem fylgir þessu skeiði. Femarelle á breytingaskeiðinu Femarelle hefur notið mikilla vinsælda hjá konum allt frá 35 ára aldri og ekki er það að ástæðu- lausu. Femarelle er náttúruleg lausn en vörurnar eru hann- aðar fyrir konur á mismunandi stigum tíðahvarfa sem hefjast yfirleitt upp úr þrítugu þó svo að einkenna verði ekki vart strax. Femarelle vörurnar eru byggðar á rannsóknum leiðandi kven- sjúkdómalækna og hafa slegið á fjölmörg einkenni sem tengja má hormónabreytingum. Vörurnar innihalda sérstakt efnasamband sem kallast DT56a en það er unnið úr óerfðabreyttu soja sem hefur þau áhrif að slá á einkenni, ásamt hörfræi og B-vítamínblöndu sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfseminni. Femarelle vörurnar eru hormónalaus lausn gegn einkennum breytingaskeiðs og eru hannaðar fyrir konur á mis- munandi stigum tíðahvarfa. Femarelle er fáanlegt í þremur tegundum sem hafa það sameigin- legt að innihalda DT56a ásamt víta- mínum og bætiefnum sem henta fyrir 40+, 50+ og 60 ára og eldri eins og umbúðirnar gefa til kynna. n Fæst í stórmörkuðum, apótekum og heilsuverslunum. Léttu lifrinni lífið • Lifrin er allt í senn; vinnslustöð, geymsla og dreifingarmiðstöð því allt sem við látum í okkur eða á, fer í vinnsluferli í lifrinni. • Lifrin sinnir yfir 100 mismunandi störfum í líkamanum og tengist hún beint eða óbeint allri líkamsstarfseminni. • Þreyta og þróttleysi geta verið merki um að mikið álag sé á lifrinni. • Active Liver eflir lifrarstarfsemina, stuðlar að eðlilegum efnaskiptum og heilbrigðri meltingu. Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. ALLT kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 4. mars 2022

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.